Hérna eru 2 procambarus sp marble seiði og heill hellingur af sniglum. 2 hellar og smá gróður.
Notaði sand frá bm vallá 25kg poki á sama verði og 2kg poki í dýrabúðunum ef ekki ódýrara.
Guðjón B wrote:fínt búr , plönturnar mættu kannski vera aftar í búrinu
takk
hvað meinaru aftar?
Búrið er nefnilega á milli stofu og eldhúss,
þannig að það er hægt að horfa á það frá báðum hliðum svo ég setti plönturnar í miðjuna
Og grjótin eru ætluð sem 2 hellar fyrir sitthvort humar seiðið.