nebbalingur og 500 ltr oscarsbúr.

Umræður um afrískar sikliður og amerískar í stærri kantinum

Moderators: Vargur, Hrappur, Ásta

User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

Post by Hrappur »

Vargur wrote:Það er aldeilis að skepnurnar vaxa hjá þér, er ekki bara stækkunargler í búrinu. :?
það er rækjan maður. . power food.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Rækjan er fín, sérstaklega vegna þess að hún sóðast ekki um allt búr.

Image
User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

Post by Hrappur »

lítið að frétta af nebbapolli nema þá að convict parið er með 6 seyði sem eru að nálgast sentimetrann (ef ekki komin yfir), sem mér finnst nokkuð gott þar sem búrið er strípað og engir felustaðir en nóg af hungruðum úlfum.. .. óskarar stækka og stækka og einnig eru súkkulaði síkliðurnar eitthvað að skjóta sig , orðnar vel stórar og greinilega í hrygningarhugleiðingum en fá ekki mikinn frið . .

hárþörungur ekki á neinu undanhaldi er núna að reyna að rugla hann í ríminu með því að hafa ljósin kveikt í 3 tíma slökkt í 4 og svo kveikt aftur í 5 .. .. annars er nóg af næringarefnum fyrir hann .. ..
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

Hvað ertu með af botnfiskum í búrinu? eitthvað til að þrífa upp eftir óskarana
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Er þetta brúni þörungurinn ? Er það ekki þá bara ljósleysi, spurning um að þrífa glerplöturnar ofan á búrinu kannski. :?
User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

Post by Hrappur »

5 bótíur
1 plegga
1 brúsk
1 rauðugga hákarl
Last edited by Hrappur on 11 Dec 2006, 18:29, edited 1 time in total.
User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

Post by Hrappur »

Vargur wrote:Er þetta brúni þörungurinn ? Er það ekki þá bara ljósleysi, spurning um að þrífa glerplöturnar ofan á búrinu kannski. :?
nei ekki er þetta brúnþörungur . . . rauð/hárþörungur.. .. sá sem er einna verst að ráða við . venjuleg þörungaráð mega sín lítils gagnvart þessum $%"#$% .. ..
User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

R.I.P.

Post by Hrappur »

rauði óskarinn ákvað að stytta líf sitt með því að stökkva uppúr búrinu og var ófögur sjón sem mætti manni þegar maður kom heim úr vinnunni í dag.

mældi kallinn og var hann 17 1/2 cm með sporði og tæp 200 g
(reyndar frekar þornaður).

stór og myndarlegur óskar . .
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Usss, gamla greyið, ég held að þetta sé eitthvað fiskasamsæri þessa dagana, ég er búinn að missa slatta af fiskum svona síðustu daga, var eimitt að finna saulosi kerlingu á gólfinu áðan, náði reyndar að koma lífi i hana.

Ég hefði haldið að sá gamli væri stærri.
User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

Post by Hrappur »

já þetta var ekki gamli heldur rauði , við fengum okkur á sama tíma hjá tjörva í nóv - okt. . sá gamli er töluvert stærri . . og enn fullfrískur.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ahh, ég var búinn að gleyma honum.
Djö... var hann orðinn stór, minn er sennilega max 12cm.
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

Var ekki lok á búrinu? Það getur verið fúlt að missa fiska uppúr, hvað þá óskar
User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

Post by Hrappur »

Gudjon wrote:Var ekki lok á búrinu? Það getur verið fúlt að missa fiska uppúr, hvað þá óskar
jú það er glerplata , smá rifa í enda sem ég hélt að væri of þröng fyrir þessa gaura svo ég var nú ekki að hafa áhyggjur af því. . .
User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

Post by Hrappur »

loksins frídagur frá vinnu !!

.. stóðst ekki mátið og hreinsaði tunnudælur og skipti út slatta af vatni .

annað bara í horfinu .
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

loksins frídagur frá vinnu !!
Heppinn að fá frí á Jóladag. :D
Varstu eins og kerlingin í jólamatnum í auglysingunni frá Vr ? þú hefur kanski ekki séð auglýsinguna vegna vinnu. :?
User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

Post by Hrappur »

Vargur wrote:
loksins frídagur frá vinnu !!
Heppinn að fá frí á Jóladag. :D
Varstu eins og kerlingin í jólamatnum í auglysingunni frá Vr ? þú hefur kanski ekki séð auglýsinguna vegna vinnu. :?
það var nú gert smá grín að okkur við matarborðið , vorum 3 þar sem hafa unnið hörðum höndum í matvöruverslunum í des. . lögðum okkur bæði fyrir og eftir mat. :) .. .. hvaða auglýsingu ? en þetta er skemmtilegasti tími ársins !! ekki spurning. .
User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

Post by Hrappur »

nokkrar nýjar myndir..

súkkulaði síkliðurnar (fengu nöfnin nóa og síríus um jólin) sem eru í hrygningar hugleiðingum þessa dagana þó að ekkert gerist hjá þeim . . . en þau eru að snyrta steina og róta í mölinni og sýna alla þá tilburði sem síkliður gera í þessum ham . . en það vantar eitthvað upp á . ? ? kannski eru þetta bara 2 kellingar að le***st ?

en það eru flottir litir í þeim þessa daga og þessar rólegheitasíkliður eru ekkert lamb að leika sér við núna , tóka pleggann áðan og rasskelltu (hann var sá eini sem hætti sér of nálægt. )..

Image
Image

lutino oscar

Image

og svo akfeitur JD nýbúinn að troða í sig rækjum ..
Image
Last edited by Hrappur on 26 Dec 2006, 19:39, edited 2 times in total.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Við stelpurnar verðum nú bara stundum að bjarga okkur :wink:
Hvað eru þær annars stórar, súkkulaðisíkl?
Last edited by Ásta on 26 Dec 2006, 19:21, edited 1 time in total.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Er þetta Poulsen sandurinn ?
User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

Post by Hrappur »

sliplips wrote:Við stelpurnar verðum nú bara stundum að bjarga okkur :wink:
Hvað eru þær annars stórar, súkkulaðisíkl?
ca 19 cm þessi stærri hin ca 17 cm..
User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

Post by Hrappur »

Vargur wrote:Er þetta Poulsen sandurinn ?
nei því miður er hann ennþá í skottinu á bílnum . :(
User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

hrygning.

Post by Hrappur »

Sæl öll !
og gleðilegt nýtt ár. !

súkkulaðisíkliðurnar fögnuðu nýju ári með því að hrygna í fyrsta skipti vel rauðum hrognum .
þær fá nú ekki mikinn frið svo ég býst ekki við miklu + að þetta er fyrsta hrygning . .

myndavélin varð eftir hjá tengdó í gær svo ekki get ég komið með myndir strax. . .
User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

Post by Hrappur »

hrygningin hjá súkkulaði síkliðunum fór fyrir lítið einsog búist var við .

ég er með 3 eldmunna 2 kalla og eina kerlu núna gerði kerlingin sér litið fyrir og skipti um karl og hrygndi í nótt með bróður sínum ( eru ekki til einhver lög um svona lagað ?) þau hrygndu í holu í miðju búrinu og er allt logandi í slagsmálum í búrinu . .

convict eru að hrygna líka og súkkulaði eru í stuði svo búrið er allt sundurgrafið og tætt. . fleiri holur en á gólfvelli .

ég er staðráðinn í að fækka hjá mér svo pörin fái nú frið til að athafna sig .

ef einhverjum langar í
firemouth karl stóran og fallegan
3 nigaraguens 1 karl og 2 kerlur í fullri stærð
einnig lútino óskar .. 18 sm
þá er bara að koma og sækja.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Hvaða fiskar eiga þá að fá að vera eftir í búrinu ?
Ég get kannski veitt Óskarnum gott heimili ef enginn lýsir áhuga, þá læt ég mína tvo minni fara.
User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

Post by Hrappur »

Vargur wrote:Hvaða fiskar eiga þá að fá að vera eftir í búrinu ?
Ég get kannski veitt Óskarnum gott heimili ef enginn lýsir áhuga, þá læt ég mína tvo minni fara.
þá verða eftir
firemouth par.
convict par og svo er nú reyndar alltaf að bætast í seyðahópinn..
1*jack dempsey
5*bótíur
1* rauðugga hákarl
1*kribba kerling (karl óskast)
1*pleggi
1*brúskur
1*hammer head. (fæst gefins ef þú nærð honum)
2*Hypselecara temporalis (Chocolate Cichlid) par
og siðan en ekki síst gamli góði óskar.
Last edited by Hrappur on 07 Jan 2007, 16:40, edited 1 time in total.
User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

Post by Hrappur »

ojæja ,, það var búið að fylla upp í meeka hrygningarholuna þegar ég kom heim í dag og sást bara sporður af bótíu standa upp úr þar sem hún var að grafa eftir góðgætinu .. .. reyndar skondin sjón , en þörf áminning um að búrið er yfirfullt af fiskum og ef ég hef áhuga á að fá hrogn og seiði þá verð ég að losa út.

convict (duglegir litlir skrattar) komin með frísyndandi seiði svo 1 af 3 hrygningum er nú ekki svo alslæmt .

ég málaði bakhliðina á búrinu brúna og finnst mér það koma nokkuð vel út. . fiskar og plöntur skína skærar
User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

Post by Hrappur »

og svo nokkrar myndir af gömlu félögunum . . maður er svo lélegur í að bæta við að þetta er orðið einsog endursýning bara. . þó hafa sumir stækkað og blómstrað ..

fyrst búrið
Image
Image

firemouth karl. . félagi þessa fæst gefins eru nokkuð líkir nema hinn glansar meira og meira rautt í þessum. .
Image

firemouth parið karlinn búinn að fyrirgefa kerlunni framhjáhaldið
Image

Image

gamli óskar
Image
hmm matur ??
Image

og svo konfektmolarnir

Image
Image
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Fallegur nicaraguensinn, langar þig ekkert til að halda í þá ?
...jú auðvitað, hvernig spyr ég, þig langar sennilega til að halda þeim öllum en plássleysið...

Ég á þetta fína 240 l til sölu....
User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

Post by Hrappur »

Vargur wrote:
Ég á þetta fína 240 l til sölu....
hehe ég hef ekki efni á því . . það hefur hækkað svo í verði .
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Það fer á útsölu prísinn þegar verksmiðjan klárar að framleiða búrin min,
það eru sennilega 2 mánuðir í þau enn.
Post Reply