"bólur" á fiski
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
"bólur" á fiski
Hæ hæ er ný hérna og er í vandræðum með einn fisk í búrinu hjá mér. Málið er að ég er með 300 lítra búr sem ég setti upp fyrir ca 5 mánuðum allt hefur gengið vel í búrinu hingað til. Fyrir um ca 3 vikum síðan sá ég að einn marmara gúramin minn (held hann heiti það) var komin með eins og rauðan blett undir annan uggann ég saltaði búrið vel og og varð ekki vör við neina breytingar hvorki góðar né slæmar ástandið var óbreytt og fiskurinn var er virtist bara hress. Svo fór ég í tíu daga frí og setti svona forðamat stórann kubb í búrið hjá fiskunum, ég kom heim í gærkvöldi og allir fiskar voru hressir þara á meðal Gúraminn minn nema hann er kominn með einhverskonar bólur á sig Ég hef ekki hugmynd um hvað þetta gæti verið og hvað þá hvað ég get gert í þessu og er að vonast til að einhver fiskafróður hér inni gæti kannski hjálpað mér í að sjúkdómagreina fiskinn svo að ég geti jafnvel bjargað honum og komið í veg fyrir frekari sýkingar í búrinu hjá mér.
Takk fyrir það Ég var að reyna að skoða þetta betur áðan og finnst svolítið efitt að lýsa þessu. þetta eru eins og bleikar bólur ,var að spá hvort þetta gæti verið einhverskonar vörtur. Fiskurinn sem er vanalega bláleyddur er orðin næstum alveg litlaus og er með eins og rautt sár/hrúður við annan uggan. hann virðist hress þó að liturinn seigi mér annað hann liggur ekkert við botninn, eða hangir við yfirborðið hegðunin hjá honum virðist vera sú sama og hefur alltaf verið. Hinir fiskarnir eru allir eins og þeir eiga að vera engir blettir og engin skyndileg dauðsföll.