Hornsjónvarpið

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

User avatar
jeg
Posts: 701
Joined: 30 Aug 2007, 22:58
Location: Hrútafjörður
Contact:

Post by jeg »

Gleðin er að dala því nýji Skalinn er kominn með einhvern fjandans vírus.
Og er trúlega búinn að smita þann gamla.
Tók eftir því í dag að það var eitthvað skrítið við öndunina svo ég kveikti ljósið
og sá að það var kominn roði við tálkn og við uggarætur.
Gamli hagar sér ekki eðliega heldur og er með roða þó ekki eins mikinn.
Fór að hugsa hvort það gæti verið að sá nýji hafi verið sýktur þvi glansinn á honum er skellóttur.
Þ.e. glansar ekki allur.
Ég saltaði strax í búrið til að reyna að bjarga einhverju en það er nú ekki víst að það dugi neitt.
Núna er sá gamli farinn að reyna að nudda sig við í kringum tálknin
svo ég er smeik um að ég sé að fara að missa þá blessaða.
Skvísa
Posts: 13
Joined: 17 Aug 2008, 17:17
Location: Akureyri =)

Post by Skvísa »

Það var leitt að heyra =( vonandi braggast þeir=) :D btw géggjað búr =)
Litlu Dúllurnar mínar =)
User avatar
jeg
Posts: 701
Joined: 30 Aug 2007, 22:58
Location: Hrútafjörður
Contact:

Post by jeg »

Takk takk Skvísa.

Svo virðist sem söltunin hafi eitthvað haft að segja en þó er ég nú ekki viss.
Nýji Skalinn virðist vera betri allavega er ekki roði við bak og kviðugga eins og í gærkvöldi.
En enn er roði við tálkn en öndun er eðlilegri.
Gamli Skalinn er enn með roða við uggarót og öndun er ekki eðlileg.
Þeir átu hvorugur í gærkvöldi (og ef sá gamli ekki étur þá er hann lasinn)
Sítrónutetran virðist hafa nælt sér í einhvern hvilla líka og tel ég víst að hún verði öll fljótlega.
Eins eru nokkra Neon og Kardinála tetrur sem anda ört en aðrir fiskar virðast eðlilegir.
Ætla í vatnsskipti á eftir og vona að það lagi ástandið.
User avatar
jeg
Posts: 701
Joined: 30 Aug 2007, 22:58
Location: Hrútafjörður
Contact:

Post by jeg »

Jæja gerði vatnskipti ca. 45%
Svo þegar verið var að skoða fiskana eftir skiptin þá kom í ljós að Black Neon seiðið er ekki 1 heldur 2
Og litli maðurinn var nú heldur enn ekki glaður að sjá það fyrstur og sagði
" ég sagði það mamma ég sá tvö"

Ástandið er nokkuð svipað eftir vatnskiptin. Nýji Skalinn reyndar virðist vera með einhvern kláða.
Gamli Skalin át en ekki sá nýji en hann er ekki mjög kjarkaður í matinn að mér virðist.
Svo bara eins og hendi væri veifað var kominn hasarmynd.
Skalarnir tóku smá bögglotu. Þannig að nú eru þeir undir eftirliti.
User avatar
jeg
Posts: 701
Joined: 30 Aug 2007, 22:58
Location: Hrútafjörður
Contact:

Post by jeg »

Jæja svo virðist sem að allt sé að falla í góða dagskrá í Horninu.
Roðinn farinn og Skalarnir farnir að borða. Tetruranr eru reyndar eitthvað ekki alveg normal en þó betri.
Sítrónu Tetran gafst upp og fór í siglingu.
Böggið í Skölunum var ekki alvarlegar en það að nú er bara bullandi hamingja í gangi.
Þeir eru búnir að hamast við að hreinsa efsta steininn í Búrabyggðinni og reka alla úr horninu.
Svo nú er bara að vona að Hveitibrauðsdagarnir verði ljúfir.
User avatar
jeg
Posts: 701
Joined: 30 Aug 2007, 22:58
Location: Hrútafjörður
Contact:

Post by jeg »

Ekki virðist sem Tetru seiðin hafi lifað af.
Sá þau ekki við vatnsskiptin fyrir helgi en maður veit aldrei.
Image
Ohhh hvað bogaglerið getur verið erfitt viðureignar í myndatöku svo sorrý en eins svona af nýju Black Neon kvk
en ég fékk mér 2 því það var bara 1 og 5 kk.
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

Alltaf gaman að lesa yfir þráðinn þinn skvíza, leitt með seiðin.
User avatar
jeg
Posts: 701
Joined: 30 Aug 2007, 22:58
Location: Hrútafjörður
Contact:

Post by jeg »

Takk!
Já ég er pínu svekt.
En vonum að það sjáist eitthvað aftur.
User avatar
jeg
Posts: 701
Joined: 30 Aug 2007, 22:58
Location: Hrútafjörður
Contact:

Post by jeg »

Ekkert hefur bólað á seiðunum svo þau eru talin af.
En þetta er helst að frétta að Brúskahjónin hafa tekið hvort annað í sátt
því fyrir viku sá ég hrogn á nýja felustaðnum sem ég setti í búrið.
Og nú viku seinna eru orðin frísyndandi kríli í tunnunni.
Fjöldann sé ég ekki þar sem hún er með steina fyrir opunum til að verja að hinir vargarnir kíki inn.
Svo er það gamli Skalinn hann er eitthvað ekki alveg hress blessaður.
Borðar og kemur og sníkir mat en ofandar þess á milli og hangir í hornum.
Gerði vatnsskipti í dag og vona svo bara það besta.
User avatar
jeg
Posts: 701
Joined: 30 Aug 2007, 22:58
Location: Hrútafjörður
Contact:

Post by jeg »

Kallinn er farinn úr tunnunni og seiðin væntanlega líka.
Ekkert hef ég þó séð af þeim en það er sosum ekki nein undra þar sem nóg er af felustöðum í grjóthellunum.
Nú eða vargarnir búnir að fá nammidag....?
En vona ekki.
User avatar
jeg
Posts: 701
Joined: 30 Aug 2007, 22:58
Location: Hrútafjörður
Contact:

Post by jeg »

Jæja ekkert virðist hafa komist á legg af þessum krílum eða vargarnir staðið vörð um snakkið.
En annars er kallinn kominn í tunnuna aftur og get ég ekki betur séð en að það séu komin hrogn.
Kannski maður reyni að nappa seiðunum næst áður en þau hverfa úr tunnunni.
User avatar
jeg
Posts: 701
Joined: 30 Aug 2007, 22:58
Location: Hrútafjörður
Contact:

Post by jeg »

Jæja framkvæmd var tunnuveiði í gærkvöldi sem endaði þannig að veiddust:
1 stk. Brúskapabbi.
10 stk. Brúskaseiði
Svo var hafist handa við að losa tunnuna og aðskilja seiðin frá pabbanum en hann var nú ekki á því að segja bless við þau.
En hafðist og var kallinum skilað í búrið sitt.
En þegar tunnan var tekin upp urðu eftir 2 seiði og var annað étið í hvelli af Barbanum sem búinn var að vakta tunnuna en hinu náði ég að bjarga.
Og eru núna 11 brúskaseiði sér í búri og vona ég að takist að halda þeim á lífi.
En eins og kom fram fyrir nokkru var Skalinn (eldri) með öndunarvanda sem hefur greinilega verið eitthvað í tálknunum sem var að plaga hann.
Hann er s.s. allur og farinn í siglingu.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Hvað eru þessi seiði orðin stór?
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
jeg
Posts: 701
Joined: 30 Aug 2007, 22:58
Location: Hrútafjörður
Contact:

Post by jeg »

Þau eru slatti stór miðað við 12 daga frá því ég sá hrogn.
Ætli megi ekki segja 1,5 cm.
Eru þau ekki stærri ef þau er fá?
User avatar
jeg
Posts: 701
Joined: 30 Aug 2007, 22:58
Location: Hrútafjörður
Contact:

Post by jeg »

Jæja þá var verið að skipta út vatni hjá litlu ræstitæknunum og kokmu þá í ljós 2 dauð.
Þannig að eftir eru 9 stk.
Þau virðast flest hafa stækkað síðan þau voru sett sér.
Vona bara að það verði ekki meiri dauðsföll.
User avatar
jeg
Posts: 701
Joined: 30 Aug 2007, 22:58
Location: Hrútafjörður
Contact:

Post by jeg »

Ekki urðu þau langlíf þessi brúskaseiði.
Nokkuð viss um að þau séu öll dauð.
En gæti þó leynst.
Vona það.
Gengur bara vonandi betur næst....!
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Krossum fingur.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
jeg
Posts: 701
Joined: 30 Aug 2007, 22:58
Location: Hrútafjörður
Contact:

Post by jeg »

Jæja farið var suður í síðustu viku og notaði ég tækifærið og gékk í Skrautfisk.
Mætti á fund og alles.
Verslaði mér 2 nýja íbúa í hornið.
2 stk. Bull dog plegga
Image
Ný lentur í búrið en ég var með þá yfir nótt í pokanum þar sem ég fór ekki heim um kvöldið.

Image
Frekar feimnir.

Image
En flottir.

Svo tók ég eftir glaðning í búrinu þegar ég var að sleppa nýbúunum......

Image
Brúskapabbi á hrognum (dagur 2 þ.e. daginn eftir að ég kom heim)

Image
Dagur 4 (væntanlega) og farið að sjást að augu eru að myndast.

Fjárfesti ég einnig í sniglum handa krökkunum en drengirnir hafa sérlega gaman af þeim.
En dáldið er síðan að sniglarninr þeirra dóu.
Image
User avatar
pípó
Posts: 1172
Joined: 05 Apr 2007, 09:28

Post by pípó »

Æðislegt að sjá hrognin :)
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Já sko, það er bara væntanleg fjölgun. Vonandi kemst eitthvað.
Skemmtilegir þessir Bulldog.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
jeg
Posts: 701
Joined: 30 Aug 2007, 22:58
Location: Hrútafjörður
Contact:

Post by jeg »

Já ég stillti tunnunni svona viljandi þar sem mig langaði svo að fylgjast með ferlinu.
En kallinn fór í þvílíka fýlu eftir að ég tók frá honum síðast en notaði svo tækifærið um leið og ég fór að heiman
og tældi sína kellu í búsaðinn.

Já flottir en feimnir.
Svo er Brúskafrúin nú ekki hrifin af þessum nýbúum og lætur þá finna það ef þeir eru fyrir henni.
User avatar
pípó
Posts: 1172
Joined: 05 Apr 2007, 09:28

Post by pípó »

Ekki eru þetta kistur frá mér er það ?
User avatar
jeg
Posts: 701
Joined: 30 Aug 2007, 22:58
Location: Hrútafjörður
Contact:

Post by jeg »

Nei fékk þessar hjá Atla hér á spjallinu.
Þær voru búnar að hrygna hjá honum 2x en fóru í fýlu við flutningana til mín
og ég beið í rúmt hálft ár og þá loksins hryngdu þær.
Þetta er 3ja hrygning hjá mér.
User avatar
jeg
Posts: 701
Joined: 30 Aug 2007, 22:58
Location: Hrútafjörður
Contact:

Post by jeg »

Dagur 5 og hrognin eru klakin.
Iðandi hrúga sést tæplega undir á steininum fyrir ofan hrygningarstaðinn.
Ætla að reyna að ná myndum til að skella inn.
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Til hamingju, alltaf gaman að fá fréttir úr imbanum, alltaf mjög flott búrin! :D
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

Hæ og takk fyrir síðast.. gaman að hitta stórbóndan loksins!


Gaman að fylgjast með þessu hjá þér.. spennandi að sjá hvað verður úr þessum mandarínum sem þú fékkst í búrið :wink:
User avatar
jeg
Posts: 701
Joined: 30 Aug 2007, 22:58
Location: Hrútafjörður
Contact:

Post by jeg »

Takk sömuleiðis.
Já vona að þetta heppnist núna en þó eru vargarnir margir svo það gæti endað í snakki.
Reyni kannski að bjarga þeim aftur.
Vandamálið er að halda lífi í þeim.
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

vonandi getur Pípó laumað nokkrum ráðum á þig.. svo að það sé hægt að koma þessum stubbum eitthvað upp.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Þetta er spennó.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
piranha-king
Posts: 18
Joined: 17 Dec 2008, 21:49

Post by piranha-king »

geggjað búr er með svona inn í eldhúsi :D
er að breyta 1800l búrinu mínu i reef
Post Reply