Mig grunar reyndar að hún verði ekki alveg jafn krúttileg þegar hún stækkar, en ég hef alltaf gaman af fiskum sem eru öðruvísi - svolítill karakter í svoleiðis kvikindum.
Vargur wrote:Þessi stutta er flott og virkar fínasti fiskur.
Skondið, það eru eins og vanti bara eina rönd í búkinn.
Voru fleiri svona ?
nei það var bara þessi öftustu tvær rendurnar eru samvaxnar á hægri hliðinni, hinum megin vaxa þær saman hálfa leið og klofna svo, svona eins og Y á hvolfi
Þetta gæti reyndar verið skemmtilegt verkefni fyrir mjög þolinmóðan mann sem vill rækta upp af metnaði stuttbúks frontosu línu en að öðru leiti á þessi fiskur ekki að fá að fjölga sér.
Vargur wrote:Þetta gæti reyndar verið skemmtilegt verkefni fyrir mjög þolinmóðan mann sem vill rækta upp af metnaði stuttbúks frontosu línu en að öðru leiti á þessi fiskur ekki að fá að fjölga sér.
Þolinmóðan mann sem hefur uþb 50 ár laus til að koma nokkrum kynslóðum af frontum upp
Eimmitt, skemmtilegt fjölskyldu verkefni.
Ég sé fyrir mér ca 20-30 ár í að byggja grunninn og svo ætti þetta að fara að rúlla með ræktunarpörum eftir 50-70 ár.
Gætum séð þessa fiska í búðum í hundraðatali snemma á næstu öld.
Núna er undirhakan á Borleyi -konunni minni orðin ansi áberandi..ég get samt ekki séð mikið uppí hana...en það er samt eitthvað..það eru komnir 22 dagar, á ég ekki bara að fara að strippa hana?Kellingarnar eru alltaf að slást núna..afhverju gæti það verið? kallinn virðist vera að reyna að stía þeim í sundur...en núna þegar ég er að horfa á þá,þá er kallinn að henda þessari með undirhökuna í burtu....
það er svoooo gaman að sjá seiðin koma út ...andri hélt utan um hana og ég opnaði..
seyðin eru sko algjörlega tilbúin og meira en það...þau eru 1 cm og voða sæt meira að segja komin smá appelsínugulur litur í þau
Nokkuð merkilegt og skemmtilegt að fá seiði undan villtum fiskum.
Villtir fiskar eru oft kallaðir F0 og þessi fyrsta kynslóð ræktuð undan þeim kallast F1, ef þessum er fjölgað kallast sú kynslóð F2 og svo koll af kolli.
Það var aðeins farið í að snyrta gróðurinn enda var hann fullmikill og aftasta vallisnerian var orðin svo löng að hún var farin að liggja allan hringinn eftir yfirborðinu.
fyrir 2.vikum:
núna:
Borleyi karlinn og önnur kerlan, þetta er sú sem kom með seiðin:
Seiðin voru flutt yfir í neðsta rekkabúrið og hafa breyst ótrúlega mikið síðan á sunnudeginum:
Búrið hennar Ingu er nú pakkað af fiskum og flott.
Ég skellti Jack Dempsey-unum mínum 8 úti vegna flutninganna og garinum líka.
Garinn fer í rekkann þegar ég nenni að setja vatn í fleiri búr en við ætlum að leyfa Jack Dempsey að njóta sín aðeins lengur þarna.