Page 10 of 32

Posted: 27 Apr 2008, 22:26
by Andri Pogo
já ég læt þig vita Ari!

en neinei ég get prófað að bæta við nokkrum hraðsyndum smáfiskum til að fá hann meira á stjá, kannski verður hann öruggari með sig eftir að lungafiskurinn fór,

Posted: 27 Apr 2008, 22:27
by Ari
hann er snögur að rústa flowerhorn ef hann vill það :) ég mundi bæta jaguar eða red terror

Posted: 27 Apr 2008, 22:34
by Inga Þóran
kannski að setja hann bara í mitt búr :) hann myndi pottþétt fíla sig þar :lol:










djók...myndi ekki tíma því :)

Posted: 28 Apr 2008, 23:38
by Andri Pogo
Nú var ljósið hægra megin í búrinu eitthvað að klikka, það dó i gær og hefur bara verið myrkur þeim megin.
Ég verð að fara að komast að því af hverju þetta er, en ég prófaði að gamni að setja ljósið vinstra megin á fullan styrk til að sjá hvaða fiskar vilja halda sig í myrkrinu og hverjir þola birtuna :P

Þeir sem hanga í myrkrinu:
Clown knife
Black ghost
P. palmas palmas
P. ornatipinnis
Lungnafiskur

Þeir sem synda um allt eða halda sig í birtunni:
Pangasius
Arowana
Lima shovelnose
P. palmas polli
P. senegalus
Ropefish
Hujetur
Skali
Pleggar


Annars er það að frétta að ég var búinn að fjarlægja allar rætur og eru bara plöntur núna, sumir fiskarnir eru meira á ferli en mestu næturfiskarnir finna sér alltaf einhvern felustað í plöntunum.
Það eru orðin frekar mikil læti í polypterusunum þegar ég kem að búrinu, opna lokið eða er að stússast eitthvað. Ef einum bregður stökkva 3-4 til með látum. Allir hinir fiskarnir eru annars til friðs.
Búrið er svosem fullt af fiskum og það gáfulegasta í stöðunni væri að fækka eitthvað en svo getur maður ekki valið á milli og vill halda þeim öllum!

og ein mynd af búrinu svona til að vega uppá móti blaðrinu í mér, ekki alveg í sínu besta formi, ég er frekar óánægður með það núna eftir að ræturnar fóru, plönturnar eru hálf aumingjalegar og vatnið er alltaf skítugt og hálfgruggugt.
Stundum langar manni bara að breyta um, skipta út fiskum eða möl / taka plöntur og hafa það alveg bert / bæta við plöntum of fækka fiskum og svo framvegis.....
Myndin var reyndar tekin í gær áður en hægra ljósið dó:
Image

Posted: 05 May 2008, 12:35
by Andri Pogo
jæja þar sem ég er kominn með leið á búrinu mínu einsog það er ætla ég að nota þessa viku í að gera minn eigin sjónvarpsþátt á heimilinu.
Ég á að vísu ekki videokameru þannig að ég ljósmynda bara ferlið :P

Image


skelli jafnvel inn einhverjum myndum af herlegheitunum á næstu dögum

Posted: 13 May 2008, 23:07
by Andri Pogo
jæja ég er byrjaður að breyta aðeins til í búrinu, breytingin verður nú samt ekkert stórkostleg til að byrja með.
Ég ætlaði að skipta sandinum út fyrir möl því sandurinn gerir búrið gruggugara en mölin. Ég lét það á smá bið því mér finnst sandurinn fallegri og ég prófaði að róta hressilega til í honum til að ná sem mestri drullu og gerði svo stór vatnsskipti.
Annars var ég að setja tvær nýjar rætur í búrið og ætla að laga gróðurinn til og meira skraut er á leiðinni fljótlega.

búið að róta í sandinum og verið að tæma:
Image

Image

Risa vallisnera komin uppúr í bili:
Image

Nýju ræturnar:
Image

og verið að fylla aftur:
Image

Meira vesenið samt með aðra rótina, hún sökk ekki! Ég vona að hún geri það fljótlega.
Hægri ljósastæðan er búin að vera dauð í nokkra daga, ég notaði tækifærið og fjarlægði hana og læt kíkja á hana.
Svo er ég búinn að vera veikur síðustu daga og einstaklega latur í þokkabót þannig að ég hef ekki gert jafnmikið og planað var :P

Ekkert merkilegt að frétta af fiskum nema að einn clown knife stækkar fáránlega hratt miðað við hina og stefnir í stórglæsilegan fisk.
Arowanan hefur ekkert étið í svona 2 vikur og lítur ekki við mat.
Þegar ég var að tæma búrið sá ég einhverja bletti/sár/för ofan á henni, veit ekki hvað þetta er eða hvort þetta sé eðlilegt eða ekki:
Image

Posted: 13 May 2008, 23:36
by keli
arowanan lítur ekki alveg nógu vel út - sérstaklega rauðu flekkirnir. Er séns að fá betri mynd af þessu?


Arowanan mín tekur köst þar sem hún er ekki neitt sérstaklega hrifin af mat, tekur kannski 1-2 rækjur og búið. Núna er hún hinsvegar í einhverri geðveikri átlotu, sníkir með discusunum og stekkur á puttana á mér í hvert skipti sem lokið opnast..

Posted: 13 May 2008, 23:46
by Andri Pogo
rauðu flekkirnir eru eðlilegir, þetta er bara rauði liturinn sem sést mest á þeim við tálknin og í sporðinum.
Sést aðeins í þetta rauða hérna:
Image

en jú ég get reynt að ná betri mynd af þessu við tækifæri

Posted: 14 May 2008, 12:49
by Andri Pogo
Vatnið í búrinu er strax farið að skýrast

Image

Posted: 14 May 2008, 15:47
by Brynja
spennandi... alltaf gaman að fylgjsat með svona stórbreitingum!

Posted: 14 May 2008, 16:05
by keli
Djö eru hnífarnir orðnir hlussu stórir hjá þér :shock:

Posted: 14 May 2008, 19:34
by ulli
doltið tómlegt núna

Posted: 14 May 2008, 20:09
by Ásta
Nú varstu heppinn Andri að vera ekki á leið í sturtu ( og við stelpurnar óheppnar).

Sammála að það virki frekar tómlegt miðað við hvað þú hefur verið með af gróðri. Verður skemmtilegt að sjá framhaldið.

Posted: 14 May 2008, 21:09
by Inga Þóran
Ásta wrote:Nú varstu heppinn Andri að vera ekki á leið í sturtu ( og við stelpurnar óheppnar).

Sammála að það virki frekar tómlegt miðað við hvað þú hefur verið með af gróðri. Verður skemmtilegt að sjá framhaldið.
hahahha :lol: hann á pottþétt eftir að bæta við gróðri :wink:

Posted: 14 May 2008, 23:11
by Andri Pogo
takk takk

heyrðu jú búrið er nú langt frá því að vera tilbúið, það á eftir að bæta við meira dótaríi og svo alveg eftir að planta!
Ég nennti bara ekki að taka miðjuplöntuna upp því ræturnar hennar liggja útí alla enda búrsins.

Posted: 14 May 2008, 23:22
by ulli
Núnú þá er það skemtilegasta eftir..föndra og svona :)

Posted: 14 May 2008, 23:33
by Andri Pogo
Ásta wrote:Nú varstu heppinn Andri að vera ekki á leið í sturtu ( og við stelpurnar óheppnar).

Sammála að það virki frekar tómlegt miðað við hvað þú hefur verið með af gróðri. Verður skemmtilegt að sjá framhaldið.
ef þú bara vissir, ég stóð nefnilega bakvið stólbak þegar ég tók myndina :-)

..

Posted: 15 May 2008, 00:45
by pasi
þetta er bara flott hjá þér... sammála um að það sé heldur tómlegt en miðað við hvað ég hef heyrt og séð þá verður það ekki lengi :P

Posted: 15 May 2008, 08:25
by Piranhinn
Þetta á eftir að lúkka vel... Hvenær byrjaðirðu að gefa Clown knife FGH? :lol:

Posted: 15 May 2008, 10:07
by Andri Pogo
ég byrjaði allavega í gærkvöldi að grisja risa vallisneriu bunkann minn,
Fyrir:
Image

Eftir:
Image

En ég veit ekki hvað FGH er valgeir? :P
En sá stærsti er duglegur að éta allt það fóður sem fer í búrið, hinir tveir eru aðeins rólegri á því.
Tók myndir í myrkrinu í gærkvöldi af þeim og hérna sést munurinn á þeim ágætlega. Sá stærsti er mikið breiðari, hærri og bara meiri um sig.

Image

Image

Posted: 15 May 2008, 12:50
by gudrungd
Andri Pogo wrote:ég byrjaði allavega í gærkvöldi að grisja risa vallisneriu bunkann minn,
Fyrir:
Image
Hentirðu Valisnerunni sem þú grisjaðir eða klipptir þú hana bara? Veit um eina sem gæti kannski notað svona!

Posted: 15 May 2008, 16:09
by Andri Pogo
klippti bara burt ónýt og ljót blöð en henti nokkrum litlum aumingjalegum plöntum. Ég var s.s. ekkert að henda neinu nothæfu :)
Ég gæti hinsvegar alveg látið frá mér eitthvað smotterí

Posted: 17 May 2008, 11:08
by Inga Þóran
arowanan er orðin ansi veik :cry: ég setti hana í sér búr og setti 10 msk af salti hjá henni....hún liggur bara á botninum..er voða lítið að synda :?

Posted: 17 May 2008, 11:13
by ulli
Image

ég hefði nú tekið hana uppúr meðan ég væri að róta upp sandinnum.
eru þessar arovonur ekki rosa viðhvæmar fyrir öllu?
en vona nú að hún braggist hjá ykkur.

Posted: 17 May 2008, 11:19
by Inga Þóran
eru þessir fiskar ekki vanir að synda í drullu í náttúrunni :)

Posted: 17 May 2008, 11:25
by ulli
ekki hugmynd veit ekkert um arovonur.en þetta eru fiskar sem lifa í ám er það ekki?
þá myndi þetta ekki ské þar,nema náturlega þegar það eru rosa vatnavextir en upp á móti vegur að það er alltaf sírensli þar og þarf meira til að off balenca þær..annars eru þessar myndir sem maður hefur séð úr þessum votnum eins og victoriu og malavi frekar tærar.

Posted: 17 May 2008, 11:28
by Inga Þóran
veit sossum ekkert um það...en veit það þó að hún veiktist ekki afþví að andri var að þrífa sandinn...enda ekki í fyrsta skipti sem búrið er þrifið síðan við fengum arowönuna.

Posted: 17 May 2008, 12:03
by Piranhinn
Mér datt FGH (Fish Growth Hormone) :lol: í hug þegar ég sá vöxtinn á þeim :) þeir stækka helvíti hratt hjá þér, sennilega vegna þess að þeir hafa gott rými :D

Posted: 17 May 2008, 18:21
by Andri Pogo
já plássið er nóg (ennþá) hehe

arowanan er búin að vera slöpp í nokkrar vikur og hefur ekkert étið.

Ég efa að þetta sé það miklar prinsessur að þær þoli ekki smá grugg í nokkrar mínútur.

Posted: 17 May 2008, 18:42
by ulli
ókey.en ertu búinn að salta?.
leiðinlegt að missa svona fiska í dyrari kantinnum