Page 2 of 7
Posted: 09 Mar 2008, 23:11
by keli
Það styttist óðum í að ég sé orðinn sáttur með þetta búr sem stofustáss, hver fiskurinn öðrum flottari.. Arowana, discusar og skötur... Og svo trúðabótíur "for comic relief"
Konan er allavega mjög ánægð með þetta búr.
Ég smelli af yfirlitsmynd á morgun og svo af skötunum. Þær eru strax farnar að bæta aðeins á sig þyngd.
Posted: 09 Mar 2008, 23:42
by Vargur
Hvaða hitastig er/verður í búrinu ? Hvernig þola sköturnar háan hita ?
Posted: 09 Mar 2008, 23:47
by keli
Vargur wrote:Hvaða hitastig er/verður í búrinu ? Hvernig þola sköturnar háan hita ?
Hitastigið er/verður 25-26 - sköturnar eru víst góðar í því og discusarnir kvarta ekki heldur
Posted: 10 Mar 2008, 22:30
by keli
Karlinn er búinn að bæta slatta á beinin.. Kerlingin líka, en það er erfiðara að ná mynd af henni.
Posted: 10 Mar 2008, 22:36
by Vargur
Magnað kvikindi.
Posted: 11 Mar 2008, 18:36
by keli
Posted: 11 Mar 2008, 18:44
by Vargur
Slef flottar.
Ertu búinn að spá eitthvað í hvort þú skiptir út mölinni fyrir sand ?
Persónulega finnst mér hrikalega flott að sjá þær í sandi.
Posted: 11 Mar 2008, 18:53
by Andri Pogo
er ekki aðalákvörðunartakan hjá skötufólkinu hvort þeir séu með sand eða bara bare-bottom
Posted: 11 Mar 2008, 18:55
by jeg
Blessaður vertu ekkert að hætta að pósta myndum.
Gaman að sjá þessa fiska.
Já sandur er eflaust málið.
Posted: 11 Mar 2008, 18:57
by keli
Þær eru ekki í neinum vandræðum með það að grafa sig í þetta eins og þetta er, þannig að ég er á báðum áttum hvort ég nenni að standa í því að setja sand... Kannski hef ég bara svæði í búrinu þar sem er bara sandur, og rest eins og þetta er, með mölinni.
Posted: 11 Mar 2008, 20:36
by animal
keli wrote:Þær eru ekki í neinum vandræðum með það að grafa sig í þetta eins og þetta er, þannig að ég er á báðum áttum hvort ég nenni að standa í því að setja sand... Kannski hef ég bara svæði í búrinu þar sem er bara sandur, og rest eins og þetta er, með mölinni.
Nákvæmlega hefur bara 1/3 fínan sand, alltílagi að fá fleiri myndir af dýrðinni
Posted: 12 Mar 2008, 23:05
by keli
Jæja, ég nennti ekki að hlusta á tuð í fólki (ykkur!) yfir fínum sandi lengur þannig að ég dreif í því að láta fínan sand í um 1/4 af búrinu
Fékk 50kg poka í poulsen.. notaði um 10kg. Vantar einhverjum fínan sand?
Posted: 12 Mar 2008, 23:30
by Ásta
Ég ætla að skipta um möl hjá mér fljótlega og er að spá í svona hvítu.
Tala við þið þegar kemur að því.
Posted: 13 Mar 2008, 12:13
by Ellig
vá hvað þetta eru flottir fiskar hjá þér:D til hamingju með þetta
Posted: 13 Mar 2008, 21:50
by Eyjó
Mig vantar meiri sand í búrið mitt samt engin 40kg það væri fínt að geta fengið einhver 10-20kg hjá þér.
Posted: 17 Mar 2008, 21:56
by keli
smá æsingur á matartímum...
Posted: 26 Mar 2008, 22:20
by keli
sköturnar eru búnar að vera að haga sér ansi undarlega síðustu 2 sólarhringana og er ég orðinn frekar stressaður að þær séu að fara að gefa upp öndina... Vatnsgæði eru mjög góð, um 15 ppm nítrat og ph um 7.8 - sem á að vera í fínu lagi á meðan það er stabílt (sem það er). Ég er búinn að salta vatnið og hækka hitann en það hefur ekki haft nein áhrif svo ég sjái.
Discusarnir í búrinu eru í fínum fílíng þannig að ég hef ekki hugmynd um hvað er að ske... Ef einhver hefur gáfulegar hugmyndir þá er honum velkomið að skjóta.
Posted: 26 Mar 2008, 22:36
by Vargur
Hvernig eru þær að haga sér ?
Posted: 26 Mar 2008, 22:37
by Ásta
Ekki það að ég gæti haft nokkra hugmynd um hvað gæti verið að þeim en hvernig undarlega eru þær að hegða sér?
Það væri ömurlegt ef þær dræpust
Posted: 26 Mar 2008, 22:48
by keli
Þær synda útum allt og klessa á hluti. Svo virðast þær einhvernvegin vera pirraðar og taka kippi, eins og það sé eitthvað á þeim en það sést ekkert.. Svo beygla þær (sérstaklega kerlingin) stundum uppá sig og haldur þeirri stellingu í smástund...
Ég var að gefa þeim að éta og þær virðast éta ágætlega, en það virðist samt eitthvað vera að bögga þær.
Posted: 27 Mar 2008, 05:12
by ulli
chekka kopar!kopar = kriptonite á skötur og hákarla.allavega með saltvatns skötur og Hkarla
Posted: 27 Mar 2008, 11:09
by keli
ulli wrote:chekka kopar!kopar = kriptonite á skötur og hákarla.allavega með saltvatns skötur og Hkarla
Ah - góð hugmynd! Ætli það sé til einhverskonar kopar testkit? Ég veit ekki til þess að ég sé með neitt úr kopar í búrinu, ég held að það sé meiraðsegja ekkert úr málmi úr búrinu nema hitarinn og dælurnar... Líklega hægt að treysta á að það sé ekki kopar í því.
Sköturnar eru by the way enn lifandi en mér finnst þær vera eitthvað furðulegar ennþá - skoða það betur þegar ljósið kviknar hjá þeim um 1 leytið
Posted: 27 Mar 2008, 13:15
by ulli
held að það sé hægt að fá test fyrir þung málma.hringja bara í dyragarðin.
Posted: 27 Mar 2008, 14:02
by keli
ulli wrote:held að það sé hægt að fá test fyrir þung málma.hringja bara í dyragarðin.
Þeir áttu ekkert, ekki fiskó, dýraríkið né trítla heldur.
Posted: 27 Mar 2008, 14:16
by ulli
prófaðu vatnaveröld eða dyragarðin.statusinn á vatnaveröld er ekki góður en gæti verið að þeir ættu eithvað eftir.veit að það er til test fyrir þungmálma allavega saltvatns test held að það eigi samnt að virka fyrir fersk lika.svo er náturlega gott að prófa að skyfta út vatni ef það er kopar sem er að bögga þá eða eithvað svipað.nema þú sért búinn að því
Posted: 27 Mar 2008, 14:28
by keli
ulli wrote:prófaðu vatnaveröld eða dyragarðin.statusinn á vatnaveröld er ekki góður en gæti verið að þeir ættu eithvað eftir.veit að það er til test fyrir þungmálma allavega saltvatns test held að það eigi samnt að virka fyrir fersk lika.svo er náturlega gott að prófa að skyfta út vatni ef það er kopar sem er að bögga þá eða eithvað svipað.nema þú sért búinn að því
Ég er búinn að skipta um ansi mikið vatn uppá síðkastið, það er í raun ekki sérstaklega líklegt að það sé kopar sem er að bögga þær... Þær virðast líka vera farnar að éta miklu minna, þannig að þetta lítur ekki alveg nógu vel út..
Posted: 27 Mar 2008, 15:04
by ulli
Ekki eithver á Monster fish keppers sem gæti aðstoðað þig.myndi prófa þar
Posted: 27 Mar 2008, 15:26
by keli
Löngu búinn að pósta þar... Eitthvað voðalega lítið um svör þar samt
http://www.monsterfishkeepers.com/forum ... p?t=132538
Posted: 27 Mar 2008, 15:43
by ulli
nú er ég lens..en hvað með að prófa að skyfta öllum sandinum út.mér finst lúkið ekkert siðar með finum sandi.það er allavega virði 70þ að prófa
það sem ég hef lesið um skötur og þessa hákarla sem mér hefur lángað í át er allstaðar talað um finan sand.þó aðalega til að þær geti grafið sig allveg oni hann og falið sig.las meira seija að þær gæti óvart étið grófan sand ef það er í botninnum.er ekki 100%
Posted: 27 Mar 2008, 15:46
by Vargur
Þetta virðist ekki vera eitthvað plain fyrst þessir skötu sauðir á Mfk eru ekki að fatta þetta.
Ég varð reyndar bara pirraður að lesa þetta klór kjaftæði í þeim, þessir bjálfar halda að allur heimurinn þurfi að drekka mengað hlandvatn eins og þeir.