Page 13 of 13

Posted: 04 Dec 2008, 13:15
by keli
Hvar komstu þér upp hobbyaðstöðu?

Posted: 04 Dec 2008, 18:54
by pípó
Og hvenær á svo að bjóða manni í sund í í lítrunum Hlynur :lol:

Posted: 04 Dec 2008, 19:12
by Squinchy
Hlaut að koma að því að einhver hérna myndi setja upp krossvið búr :)

Koma svo myndir :D

Posted: 04 Dec 2008, 20:34
by Jakob
Það eru skrímsli í húsinu !!!
ójá 8)

Posted: 05 Dec 2008, 20:33
by Vargur
Smá update af monsterunum.
Allt gengur glimrandi, allir virðast hafa það gott. Congisusarnir hafa tekið vaxtarkipp sem ég hélt að væri óvanalegt.
Rtc stækkar og breikkar og skóflufésið líka og þakka ég það reglulegum vatnsskiptum

Image
Sú asíska er flott en rauði liturinn er að dofna én mér skilst að það sé eðlilegt varðandi þennan lit. Hún er ekkert sérstaklega myndavæn og er stressuð og vör um sig við allan óvanalegan umgang.

Image
Congisus og gibbi.

Image
Báðir congisus að kúra saman. Þessir djöflar eru þrælskemmtilegir, mikið á ferðinni og ekki skemmir útlitið.

Posted: 05 Dec 2008, 23:46
by Jakob
Mjög flott. Verð eldrauður í framan af öfund þegar ég skoða myndirnar af P. Congicus. :oops:

Aró er bara helvíti flott, eðlilegt að liturinn dofni hjá Red Banjar Arówönum, en hann gæti komið aftur með aldrinum.

Posted: 11 Jan 2009, 23:55
by Vargur
Er ekki kominn tími á að segja frá tilvonandi monsterinu.
Kvikindið er kallað hornsílið eða bjórkippan (hans ulla) en er sennilega Cichla ocellaris eða Cichla monoculus.

Image
Kvikindið er ekki nema 8 cm en ef allt gengur upp gæti þetta orðið 50-60 cm skrímsli.
Fiskurinn er nokkuð skemmtilegur og virðist nokkur karakter, hann er mjög vakandi um hvað er að gerast í kringum hann og alltaf í viðbragðsstöðu.

Er ekki best að hafa þennan með í þræðinum þó verið sé að spjalla um hann annarsstaðar.
Image
Þetta er blendingur af Red-tail catfish og Shovelnose.
Ég á fyrir Tiger shovelnose og tvo Rtc og þessi tekur það besta úr báðum tegundum.
Hann er 30 cm og er ansi skemmtilegur, stressast ekki upp eins og shovelnose og er ekki jafn pirrandi í græðginni og Rtc.

Posted: 16 Jan 2009, 22:18
by Jakob
Gott að sjá að litli pjakkur hefur það fínt, er hann kominn af lifandi?

Posted: 16 Jan 2009, 22:59
by Vargur
Nei, hann vill ekkert nema lifandi fóður, hann stekkur reyndar strax á allt sem fer í búrið en skyrpir öllu fóðri út aftur, rækjubitum og öllum fiskamat.
Ég hef bara alið hann á convict seiðum.

Posted: 12 Feb 2009, 22:14
by Vargur
Smá up-date af Cicla, hann er nú farinn að éta rækju og fiskbita en lítur ekki við þurrfóðri, reyndar stekkur hann á allt sem fer í búrið en spítir öllu þurrfóðri út úr sér.
Það er ágætt að hann sé farinn að éta annað en lifandi þó það breyti svo sem ekki miklu þar sem convictarnir eru svo dugleigir að framleiða seiði.

Image

Posted: 13 Feb 2009, 14:16
by Jakob
:góður:

Posted: 14 Feb 2009, 13:25
by Vargur
Image

Rtc heldur áfram að stækka og er sennilega kominn í 35 cm, sporðurinn er vel rauður og fálmararnir ótrúlega langir.

Posted: 14 Feb 2009, 19:32
by animal
Vargur wrote:Image

Rtc heldur áfram að stækka og er sennilega kominn í 35 cm, sporðurinn er vel rauður og fálmararnir ótrúlega langir.
Hvað er með honum?, minn hérna í denn bar ábyrgð á ansi mörgum "Hvörfum" og þar á meðal ansi mörg Monster.

Posted: 14 Feb 2009, 19:44
by Vargur
Hann er með asísku drottningunni og tveimum P. congisus í búri og hefur ekki látið neitt hverfa sem ekki átti að fara. Á næstunni fer hann svo sennilega í 1000 lítra búrið með Tsn og RtcxTsn.

Sá gamli sem ég átti áður var orðinn talsvert stærri og bar ábyrgð á nokkrum hvörfum meðal annars gullfallegri Geopagus kvk sem ég taldi vera fullstóra í kjaftinn á honum og svo tók hann styrju en skyrpti henni út eftir 2 daga.

Image

Image

Posted: 14 Feb 2009, 19:52
by animal
Nákvmlega!. ég missti Stórt Crenichiclu par, Chönnu og fleiri fiska. Tók ekki eftir neinu, bara svona hvar er þessi??? hef ekki séð hann lengi osvofr. en magnaður fiskur á sínum forsendum. Át u.þ.b Ýsyflak í hverri viku. Eru kannski til myndfir af honum hjá Stöð 2 ef það er ekki búið að henda eða eyða þeim.

Posted: 21 Mar 2009, 21:25
by Vargur
Jæja, cichla tók upp á því að drepast mjög svo óvænt.
ég skil reyndar ekkert í því þar sem hann var mjög hress, át vel og að sjálfsögfðu passað upp á vatnið. Hann var hinn hressasti í gær en steindauður í dag. :?
Kvikindið var mælt og reyndist 12cm og alveg heilbreiður.
Leiðinlegt að missa þetta framtíðar monster en svona er þetta.

Posted: 22 Mar 2009, 13:12
by Petur92
mjög skrítið :| mjög svekkjandi að missa svona flottann fisk

Posted: 03 Apr 2009, 23:17
by Vargur
Image

Image
Rtc á ferðinni með fálmarana á fullu.

Posted: 04 Apr 2009, 01:06
by animal
Hvað er RTC stór og Asíu Bjútíið

Posted: 04 Apr 2009, 01:49
by Vargur
Rtc hefur tekið fram úr þeirri asísku og er sennilega fullir 35 cm án fálmara, Arowanan er aðeins styttri. Báðir fiskarnir hafa þykknað mikið að undanförnu en lengdin stendur nánast í stað. Þeir eru báðir vel hressir og eru minna stressaðir eftir að ég hreinsaði gróður og fiska úr búrinu.
Þessi Rtc virðist fallegri en sá sem ég átti áður, hann er með miklu sterkari lit í sporðinum, lengri fálmara og auk þess laus við gill curlið sem hinn hafði.

Posted: 04 Apr 2009, 02:27
by animal
Bæði Showpiece fiskar. Minni bara á gleypigetu RTC :shock:

Posted: 04 Apr 2009, 14:45
by keli
animal wrote:Minni bara á gleypigetu RTC :shock:
Tek undir það. Ég myndi ekki treysta honum með arowönunni mikið lengur :)

Posted: 01 Jun 2009, 21:21
by Vargur
Skóflarnir hafa það fínt og eru alltaf að stækka.
Ég er farinn að reyna að gefa hybridinum minna og Tsn meira en það er erfitt þar sem hybridinn er gríðarlega gráðugur.

Image
Hybridinn er kominn yfir 40 cm.

Image
Hér eru skóflarnir báðir, það munar ekki miklu á lengdinni á þeim en hybridinn er miklu breiðari en Tsn.

Posted: 02 Jun 2009, 10:01
by Piranhinn
svakalega falleg monster :)

Posted: 02 Jun 2009, 10:25
by keli
Hybridinn er kannski skemmtilegri, en mér þykir TSN ansi mikið fallegri... Mynstrið er farið a vera ansi fallegt á honum :) Hvað ertu að gefa þeim oft?

Posted: 02 Jun 2009, 18:25
by Vargur
Ég hef enga sérstaka reglu á gjöfinni, gef annað slagið smotteri af þurrfóðri og svo fá þeir nautshjarta eða fiskbita á ca 3-4 daga fresti.
Stundum fer ég á bryggjuna og veiði ofan í þá og þeir fara létt með 2-3 15 cm ufsa með haus og hala.

Posted: 03 Jun 2009, 09:18
by guns
Vargur wrote:Stundum fer ég á bryggjuna og veiði ofan í þá og þeir fara létt með 2-3 15 cm ufsa með haus og hala.
Það er nákvæmlega svoleiðis sem á að taka upp á video og setja hingað inn! Þ.e. fóðurgjöfin, ég er ekkert endilega viss um að ég myndi nenna að horfa á video af þér að veiða niðri á bryggju ;) no offense að sjálfsögðu ;)

Posted: 03 Jun 2009, 14:26
by Piranhinn
Vargur wrote:Ég hef enga sérstaka reglu á gjöfinni, gef annað slagið smotteri af þurrfóðri og svo fá þeir nautshjarta eða fiskbita á ca 3-4 daga fresti.
Stundum fer ég á bryggjuna og veiði ofan í þá og þeir fara létt með 2-3 15 cm ufsa með haus og hala.
Holy crap það væri gaman að sjá það ! :)

Posted: 03 Jun 2009, 23:35
by diddi
held að þú þurfir bara að taka upp svona matartíma vargur ;)

Posted: 03 Jun 2009, 23:37
by Vargur
Menn með upptökugræjur eru velkomnir í heimsókn.