Page 14 of 32
Posted: 02 Jul 2008, 10:29
by Ásta
Bömmer, það voru allir að bíða eftir blóðugum sögum
Posted: 02 Jul 2008, 10:35
by Andri Pogo
hehe
en eftir að hafa lesið mig meira til um þessa fiska þá eru þeir ekki jafn kolklikkaðir og maður myndi halda þrátt fyrir kjánaglottið á honum og tennurnar fínu... amk ekki í þessari unglingastærð.
Það er alveg stolið úr mér smá íslenska en hann
just minds his own business og lætur stærri fiska alveg vera.
En auðvitað breytist það þegar hann stækkar því þá eru hinir farnir að vera ekki svo stórir
Posted: 02 Jul 2008, 10:38
by Ásta
Hvað getur hann orðið stór í búri?
Posted: 02 Jul 2008, 10:47
by Andri Pogo
Mesta skráða stærð á þessari tegund er um 100cm en það er óalgengt.
Meðalstærð fullvaxinna er um 70-75cm og hann ætti líklega að ná því líka í búri, annars eiga þeir að stækka frekar hægt þannig það gæti tekið þónokkur ár að bíða eftir því.
Annars man ég ekki eftir að hafa séð stóra af þessari tegund í búri, eflaust því það tekur langan tíma, þannig það verður líka bara að koma í ljós
Posted: 02 Jul 2008, 11:41
by vkr
Ég hef einmitt lesið nokkur dæmi um að þessir fiskar séu settir í blönduð búr,
og það er yfirleitt mikið talað um þetta með hraðsynda fiska, þeir virðast ekki hafa áhuga á bráðini ef að það er of létt að veiðan hana..
En annars ætla ég að segja 1000kall á að skalinn verði fyrstur, hann var svo girnilegur að sjá eitthvað
.. hehe
Posted: 02 Jul 2008, 18:48
by Andri Pogo
uss þá þekkiru ekki skalan okkar
það var hann sem var að skoða tigerinn hehe
Posted: 05 Jul 2008, 00:40
by Andri Pogo
Posted: 05 Jul 2008, 21:24
by Andri Pogo
Gaf Tiger annan gullfisk áðan en hann virtist ekki vera svangur því hann lét hann vera.
Ég skrapp útí videoleigu og þegar ég kom aftur sá ég hann stökkva á gullfiskinn. Ég greip myndavélina og náði smá klippu :
Svo er hér ein sem mér fannst frekar fyndin, þetta er þegar ég lét gulla útí.
Pangasiusinn er bara á sínu venjulega krúsi en gefur aðeins í þegar hann sér gullfiskinn og þá þaut Tigerinn á eftir Pangasius, því þessir fiskar elta (og/eða bíta) oft það sem syndir hratt framhjá þeim.
Ég sá hann elta Pangasiusinn nokkrum sinnum en hann glefsaði aldrei í hann.
Eins og sést á seinna videoinu er búrið mitt alveg að deyja úr leiðindum og tómleika.
Posted: 05 Jul 2008, 21:31
by vkr
Mér finnst það algjör snilld að þetta skuli ganga svona vel (enþá)
þetta er svo djö*ulli vel upp alið hjá þér
En hvað er pangasiusinn annars stór hjá þér ?
Posted: 05 Jul 2008, 23:11
by Andri Pogo
ég fylgist bara vel með, ég treysti þessum klikkhaus ekki beint. Allir í búrinu eru sallarólegir en hann alltaf frekar hyper og smellandi kjaftinum í allar áttir.
Pangasiusinn er í kringum 30cm
Posted: 06 Jul 2008, 21:02
by Andri Pogo
Posted: 06 Jul 2008, 22:29
by RagnarI
eitt sem er að mér finnst vanta alla fiska í ljósið virðast allir hanga í myrkrinu og þess vegna virðist búrið vera svo tómlegt
Posted: 06 Jul 2008, 22:57
by Andri Pogo
jamm ég er enn að bíða eftir nýrri ljósastæðu, en jú megnið af þessum fiskum kýs að vera í myrkrinu fyrst það er í boði.
Posted: 15 Jul 2008, 00:13
by Andri Pogo
Það er orðið gaman að fylgjast með Tigernum í búrinu, hann er hressasti fiskurinn í búrinu og er farinn að raða í sig rækjunum á kvöldin, ég ætlaði að ná nokkrum myndum af honum leika sér að rækjunum en hún var batt.laus.
Annars hef ég verið að taka eftir stærðarmun á tveimur Polypterus palmas palmas sem ég hef nú átt í 11 mánuði.
Ég hélt þeir væru nánast eða alveg fullvaxnir þegar ég fékk þá en nú sé ég að annar þeirra er orðinn töluvert lengri og breiðari.
Mér fannst það merkilegt því þetta er ein minnsta Polypterus tegundin og allra mesta stærð þeirra er 30cm.
Þetta eru samt mestu felufiskar sem ég hef kynnst, ég hef átt þá í tæpt ár en þeir hafa legið nánast hreyfingarlausir bakvið rætur eða plöntur síðan þá og láta alls ekki sjá sig á flakki um búrið meðan ljós eru kveikt.
Leiðinlegt, því þessi tegund er gullfalleg.
Ég verð að fara að veiða þá upp og mæla betur, ég reyndi það einu sinni en sá varð kolbrjálaður og ég hætti við.
Þetta er sá sem hefur stækkað svo vel, en myndin er frá því ég fékk hann í ágúst '07:
Posted: 15 Jul 2008, 11:09
by Andri Pogo
þetta er sá sami og er á myndinni fyrir ofan, sést vel hvað búkurinn er orðinn þykkur:
Posted: 15 Jul 2008, 17:53
by Andri Pogo
Posted: 18 Jul 2008, 00:33
by Andri Pogo
ég hef verið að leita að einhverjum fallegum fiskum til að bæta í búrið undanfarið og það eina sem ég hef fundið áhugavert er of lítið til að setja í búrið en ég ákvað svo að taka einn í dag sem ég hafði nýverið hætt við.
Red-bellied Pacu varð fyrir valinu en ég hafði áður ákveðið að kaupa ekki þessa tegund því þeir munu líklega fara illa með plönturnar mínar.
Það kemur bara í ljós hvað ég get haldið þeim lengi
Ég hef lengi látið mig dreyma um svona fisk og þá sérstaklega red belly.
Þeir hafa líka það fram yfir þá svörtu að hámarksstærðin er örlítið minni.
Pacuar eru frekar umdeildir fiskar, annaðhvort er fólk hrifið af þeim eða alls ekki
þeir verða fáránlega stórir og kraftmiklir en það sem heillar mig mest er mataræðið þeirra en þeim finnst fátt betra en ávextir, grænmeti og hnetur.
Þeir eru vel tenntir eins og frændur þeirra piranha en í stað flugbeittra tanna hafa þeir tvöfalda röð af stórum tönnum sem minna skuggalega á mannatennur.
Þessi er 8-10cm en þar sem ég tók enga mynd læt ég eina af netinu duga í bili:
og einn mjög stór svartur pacu að gamni:
En ef einhver á eða veit af karlkyns Jaguar, Jack Dempsey, Pollini eða álíka síkliðum, stærri en 10cm, má hann endilega láta mig vita.
Posted: 18 Jul 2008, 01:00
by Ásta
Hann verður fínn á pönnuna síðar
Posted: 18 Jul 2008, 23:56
by Jakob
ef ad thu ert ad tala um paratilapia polleni tha eru their til i dyrarikinu grensasvegi
Posted: 19 Jul 2008, 00:00
by Andri Pogo
Andri Pogo wrote:...það eina sem ég hef fundið áhugavert er of lítið til að setja í...
þetta sagði ég einmitt útaf polleni, ég sá þá einmitt á Grensás, en þeir eru bara of litlir fyrir búrið.
Posted: 21 Jul 2008, 18:01
by Andri Pogo
Pacu töffarinn
Posted: 21 Jul 2008, 18:19
by Andri Pogo
lima shovelnose sem ég fékk fyrir nokkru var ansi slappur í gær og var nær dauða en lífi, ég hef ekkert séð hann éta og fyrri eigandi hafði ekki heldur séð það.
Hann er mjög horaður og ég gæti trúað að hann muni svelta sig til dauða ef hann fer ekki að éta.
Ég gerði stór vatnsskipti í gær og saltaði smá og hann var farinn að synda um í morgun
Posted: 21 Jul 2008, 18:23
by Brynja
vá hvað Pagúinn er flottur!
Vonandi lifir skóflufésið... ég ætla ekki að koma til ykkar að reyna að bjarga honum.. það hefur ekki verið að gera góða hluti...
Posted: 21 Jul 2008, 21:35
by Andri Pogo
Skyndiákvörðun var tekin áðan...
Jaguar parið úr rekkanum var fært yfir í búrið!
Þau eru ~15cm, þarf að mæla þau betur en djöfull eru þau flott
Ég færði öll seiðin þeirra niður í neðsta rekkabúrið þar sem Borleyi seiðin voru, öll eru í svipaðri stærð og gengur vonandi vel eitthvað áfram.
Ég ætla svo að færa einhverja úr 720L búrinu yfir í búrið sem Jaguar voru í...
Vonum bara að þau hagi sér sómasamlega til að byrja með
Posted: 22 Jul 2008, 17:47
by Andri Pogo
Jaguar parið er búið að koma sér vel fyrir undir einni rót í búrinu, þessi rót tilheyrði Black Ghost áður og til að koma í veg fyrir slagsmál færði ég Black Ghost yfir í anddyrisrekkann.
Jaguar parið er byrjað að moka til sandinum, verður forvitnilegt að sjá hvernig þetta fer.
Hendi líka Regnabogasíkliðuparinu útí.
Posted: 22 Jul 2008, 22:18
by Eyjó
Andri Pogo wrote:lima shovelnose sem ég fékk fyrir nokkru var ansi slappur í gær og var nær dauða en lífi, ég hef ekkert séð hann éta og fyrri eigandi hafði ekki heldur séð það.
Hann er mjög horaður og ég gæti trúað að hann muni svelta sig til dauða ef hann fer ekki að éta.
Ég gerði stór vatnsskipti í gær og saltaði smá og hann var farinn að synda um í morgun
Magnað að þessi fiskur skuli enn lifa. Ég sá hann aldrei éta þegar ég átti hann.
Posted: 22 Jul 2008, 22:41
by Andri Pogo
var hann svona vanskapaður á kjaftinum og augnlaus þegar þú fékkst hann "nýjan" eða lenti hann í einhverjum ?
Posted: 22 Jul 2008, 23:10
by Eyjó
Andri Pogo wrote:var hann svona vanskapaður á kjaftinum og augnlaus þegar þú fékkst hann "nýjan" eða lenti hann í einhverjum ?
Já hann lenti víst í chönnu áður en ég fékk hann gefins.
Posted: 23 Jul 2008, 12:22
by Jakob
Sá hann bara 1sinni éta hjá mér, búinn að vera matarlaus í nokkra mánuði. Greyið.
Posted: 28 Jul 2008, 00:56
by Andri Pogo
Var aðeins að prófa nýja myndavélina, ekkert sérstakar myndir en bara sýna nýju íbúana í búrinu...
Jaguar karlinn alltaf flottur:
Kerlan:
Nokkrar litlar sem hafa það gott, Regnbogasíkliðupar (þau efri) og Vieja bifasciatus sem mér var selt sem Maculicauda:
Og þessi kyssulegi lá í felum: