1/2 tonn

Umræður um afrískar sikliður og amerískar í stærri kantinum

Moderators: Vargur, Hrappur, Ásta

Post Reply
User avatar
pípó
Posts: 1172
Joined: 05 Apr 2007, 09:28

Post by pípó »

Ekki málið :D
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Það er allt í "orden" hér eins og við segjum í gettóinu 8)

Seiðin dafna vel en ég hef fundið 2 til viðbótar sem eru ekki eins og seiði eru flest, það er einhver bilun í þeim. Ég ætla samt ekki að slátra strax heldur sjá til hvernig málin þróast.

Fronturnar eru svo bara þarna í rólegheitum, þær sem hafa verið með hrogn eru allar búnar að kyngja svo ég þarf ekki að hafa áhyggjur af neinu strippi á næstunni.
Adonis plegginn er farinn að koma ansi oft fram og ég er alltaf jafn hrifin af honum. Held ég hljóti að eiga bærilega mynd af honum sem ég negli inn næst þegar ég er í "stöði".
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Hvernig er seiðin bækluð ? Allt í lagi að skoða þau en það þarf að passa að þetta komist ekki upp og endi í búri hjá einhverjum. Svona fiskar geta gert leiðinda skandal í ræktun.
Fronturnar í fiskabur.is komu stundum með bækluð seiði, munnsvipurinn var öðruvísi á þeim.
Ætli þetta sé algengt hjá frontosum ?
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Já, ég passa vel upp á að þessi seiði lendi ekki í búri með öðrum.

Það er eins og aftari hlutinn á öðru seiðinu sé stífur, það syndir ekki alveg eðlilega og hitt seiðið er horað og syndir hálf aumingjalega.
Ég hef verið að fá talsvert af fyrirspurnum um seiði en ég vil ekki láta þau frá mér strax ef eitthvað meira kemur upp.

Ég á eina frontu úr fiskabur.is sem er með einkennilegan munnsvip, á nokkrar myndir sem ég skelli inn næst þegar ég nenni að opna mína tölvu.
Ég veit ekki hvort þetta er algengara hjá frontum en öðrum fiskum, það hlýtur oftast að koma eitthvað uppá með svona stóra hópa.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Hefur þessi með munnsvipinn verið að hrygna ?
Spurning um að skipta henni út svo gallinn erfist ekki, það getur reyndar vel verið að svo sé ekki en ég mundi ekki taka sénsinn.
Með svona fiska þá á maður að grisja úr lélegri eintökin ef maður hefur áhuga á að rækta undan þeim.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Svona gallagen geta líka hoppað yfir kynslóðir.. þessvegna er fólk svona gratt við að drepa vanskaplinga og passar sig á að rækta ekki undan þeim..

Margir stofnar fiska í þessu hobbíi sem eru orðnir mengaðir, útaf skyldleikaræktun, erfðagöllum og blöndum. Viktoríu og malawi síkliður hafa til dæmis farið sérstaklega illa útúr blöndun - Það er orðið vandamál að fá viktoríusíkliður sem eru eins og þær sem eru í vatninu. Og svo gerir það það enn verra að síkliðurnar í viktoríuvatni eru margar hverjar útdauðar útaf lélegum ákvörðunum mannsins... En það er nú efni í annan þráð :P
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Nei, þessi með munnsvipinn hefur ekkert verið að hrygna. Ég myndi heldur aldrei taka undan henni ef svo færi.
Hún hefur stækkað svolítið hjá mér en er sennilega of ung ennþá.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Þetta er sú með skrítna munninn

Image
Image

Og þessi gaukur er hættur að vera feiminn

Image
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Þessi kerling getur örugglega ekki haldið eggjum þannig að þú þarft líklega ekki að hafa áhyggjur af henni.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

hann er svo flottur gaurinn þinn!!! vá vá vá...! :shock:
hvað verður hann stór?
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ég held að gaurinn geti orðið 25 cm.
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

Ásta wrote:Ég held að gaurinn geti orðið 25 cm.
Vá mig langar í svona :P alveg ofsalega flottur!! hlakka til að sjá þegar hann verður stærri
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ég fékk þennan í Fiskó og það var annar til rétt fyrir jól.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Er til einhver formúla um hvað skal gefa mikið af rækju per eina frontósu?
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ég var að fatta að ég hef ekki sett eina einustu mynd af seiðunum. Hér er ein til að byrja með og ég fer svo beint í myndatökur :roll:

Image
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Æ, eins og sést nennti ég ekkert að vanda mig svo ég dembi bara nokkrum. Seiðin eru um 2 cm.

Image
Image
Image
Image
Image
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

Bara alveg hreint glæsileg ha :-)
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Mun taka enn glæsilegri myndir á morgun, ha, þó þær komi kannski ekki hingað inn... hehe
Inga Þóran
Posts: 1482
Joined: 20 May 2007, 01:16
Location: rvk

Post by Inga Þóran »

Ásta wrote:Mun taka enn glæsilegri myndir á morgun, ha, þó þær komi kannski ekki hingað inn... hehe
hahahahhahaahhahahaha :rofl:
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Alltaf skemmtilegt að vera með helling af seiðum... Sérstaklega þegar seiðin eru eitthvað sem er hægt að losna við - ekki bara convict djöflar eða eitthvað svoleiðis :D
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Inga Þóran
Posts: 1482
Joined: 20 May 2007, 01:16
Location: rvk

Post by Inga Þóran »

seiðin eru svo flott hjá þér ásta!!!
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

Glæsilegt!
Gaman að sjá myndir af litlu krúttunum.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Enn eina ferðina er ég með kerlu sem er með stútfullan munn af hrognum. Það kom ekkert úr seinasta holli en þá voru 2 kerlur með hrogn.
Ég hef verið að gefa meiri rækju en venjulega svo kannski er það aðaltrixið með þessar frontur.

Ég fékk mér nýjan kribbakarl um helgina þar sem hinn drapst og þessi nýji hvarf eftir 2 daga. Ég hef calvusinn stórlega grunaðann um verknaðinn en hann virðist ekki sérlega hrifinn af kribbunum.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Nú er einn kk með sár á hausnum, annað hvort eftir conflict við annan gaur eða hann hefur skrapað sig á steini. Það vantar alveg hreistur á blett ca. stóran eins og gamla flotkrónan.
Ég saltaði svolítið í búrið, er eitthvað annað sem ég ætti að gera nema bara að fylgjast með honum?
Ég hef ekki aukabúr fyrir hann.

Hvernig er með svona kk þegar þeir eru alltaf að slást, láta þeir svona þangað til annar drepst eða bara lúffar?
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Ég held að þetta sé ekkert til að hafa neinar stórkostlegar áhyggjur af.. Frontosur eru fremur friðsamar af svona hlunkum að vera, og drepa venjulega ekki bræður sína. Bara fylgjast vel með kauða og sjá hvort sárið grói ekki ágætlega.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Thanx, ég fylgist með.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Það er ekkert ólíklegt að hann hafi bara verið að troðast, frontur eru frægar fyrir það að troða sér á vafasama staði sérstaklega ef styggð kemur að þeim. Það gæti verið sniðugt að skipta út grjóti sem er með hvassar brúnir ef eitthvað er af því í búrinu.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ég er einmitt með brotna granítplötu og það eru ansi hvassar brúnir á henni.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Datt inn í Fiskó í dag og þar datt í poka Blue Phantom (L-128)
Hér er bráðabirgðamynd sem ég fann á netinu, ég tek fljótlega
Image
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

úúú flottur :wink:
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Post Reply