Page 18 of 32
Posted: 06 Oct 2008, 23:41
by whapz
Hrikalega er ég að öfunda þig út í nennan Lapradei, Ekkert annað en fallegur.. eeeek Mig langar í
Posted: 10 Oct 2008, 20:03
by Andri Pogo
Stærri Ornatipinnis & Lapradei, báðir 30cm:
Smá stærðarmunur
Retropinnis (sá minni) er þó 18cm:
Trimac í feimnislitum:
Posted: 31 Oct 2008, 09:10
by Andri Pogo
Jaguar parið er alltaf að hrygna en ekkert gengur hjá þeim, alltof mikið stress í kringum þau í búrinu.
Er að að spá í að gefa þeim sérbúr í jólagjöf
Posted: 31 Oct 2008, 13:51
by Jakob
Posted: 06 Nov 2008, 19:07
by Andri Pogo
keypti glæsilegan fisk í dag í Dýragarðinum, Texas (Carpintis) og fór í smá myndatökugír í því tilefni:
ekki fleiri merkilegum myndum náði ég þar sem það er bara ljós öðru megin í búrinu og hann kom ekki oft í birtuna, enda stjórna Jaguar þeim helming... en nokkrar af þeim
karl
kerla
karl
kerla að segja Lapradei að hunskast burt, en einsog sést kannski þá eru polypterusunum nokkuð sama um áreiti frá öðrum:
Posted: 06 Nov 2008, 19:52
by Gremlin
Hvað var Texas sirka stór.
Posted: 06 Nov 2008, 20:32
by mixer
djöfuls naggli er þetta... tekur varla eftir að það hengur jaguar á hausnum á honum
Posted: 06 Nov 2008, 22:58
by ulli
Fallegur texas.
ég var rosa sniðugur og fek með jack dempsey par.bara einn eftir.. rtc feitur daginn eftir :S
Posted: 06 Nov 2008, 23:27
by Andri Pogo
Gremlin wrote:Hvað var Texas sirka stór.
ætli hann sé ekki svona 15cm+
Posted: 13 Nov 2008, 10:41
by Andri Pogo
þessi var drepinn í nótt
mjög svekktur, þetta var einn sá flottasti í búrinu og entist bara í viku...
veit ekki hver drap hann, það hafa ekki verið nein slagsmál í gagni.
Posted: 13 Nov 2008, 19:51
by audun
leiðinlegt því hann var mj0g flottur, hvaða verð er á svona dýri og er hann allveg rólegur
Posted: 13 Nov 2008, 19:56
by Andri Pogo
fékk hann á góðu verði en ég get ekki sagt með skapgerðina í þessari tegund því ég þekki hana ekki meira en þetta en ég held að þetta séu ekki rólegustu síkliðurnar.
Posted: 13 Nov 2008, 19:57
by pípó
audun wrote:leiðinlegt því hann var mj0g flottur, hvaða verð er á svona dýri og er hann allveg rólegur
Hann hlítur að vera rólegur,hann er dauður
Posted: 13 Nov 2008, 23:03
by Gremlin
Minn Texas var í kringum 10cm og var mjög oft að tukta 15-17cm Midas og Óskarinn minn sem er eitthvað yfir 20cm þannig að þeir eru harðir af sér.
Posted: 15 Nov 2008, 13:08
by Andri Pogo
heldur betur óheppni í búrinu í nótt, ég kom að Limunni dauðri undir rót, hún var pikkföst með kjaftinn fullan af möl greyið. Það hefur mikið gengið á hjá við að reyna að losa sig því hún var mjög illa farin og farin að mygla svakalega ofaná það...
Posted: 17 Nov 2008, 01:13
by Andri Pogo
eitthvað er óheppnin að elta mig... fyrst er einn drepinn, svo fremur einn sjálfsmorð og í kvöld sé ég að Green Terror dregst meðfram botninum á hlið, nær bara ekki jafnvægi og heldur sig á botninum.
Það sér ekkert á honum að öðru leiti
Posted: 17 Nov 2008, 01:17
by Vargur
Hmm... ég veit ekki til þess að fiskar fremji meðvitað sjálfsmorð nema lífið sé orðið verulega slæmt. Hvernig er nitratið hjá þér ?
Posted: 17 Nov 2008, 01:25
by Andri Pogo
neinei segi svona, hann festi sig eflaust óvart undir rótinni...
ég tékkaði á nítratinu og það er alltof hátt, milli 50 og 100... þrátt fyrir að hafa gert 70% vatnsskipti í gær eftir Limuóhappið
Posted: 17 Nov 2008, 07:45
by keli
Önnur 70% vatnsskipti undir eins.. Það hefur verið einhver svakalegur nitrat toppur hjá þér..
Posted: 17 Nov 2008, 13:03
by Andri Pogo
ég bara verð að vona það besta, ég hafði ekki tíma í vatnsskipti í nótt og fer ekki heim fyrr en seinnipartinn.
ég gróf reyndar upp eitthvað heima sem heitir Tetra EasyBalance og á að lækka nitrat. Sturtaði því útí í nótt en hann var enn á hliðinni þegar ég fór úr húsi í morgun
Posted: 17 Nov 2008, 13:12
by guns
Leiðinlegt að heyra... þetta er nefnilega svo gríðarlega flott búr hjá þér.
Posted: 22 Nov 2008, 12:28
by Andri Pogo
green terrorinn hresstist þegar ég gerði önnur stór vatnsskipti og er eins og hann á sér að vera núna...
annars hrygndu Jaguarnir aftur í gær... þetta gerist þá ca á 3vikna fresti hjá þeim:
Tigerinn er orðinn sæmilega feitur og góður:
svo var ég eitthvað að reyna að taka flassmyndir í myrkrinu en það gekk misvel..
henti þremur litlum Jack Dempsey útí búrið í fyrradag og það hefur gengið vel:
Posted: 27 Nov 2008, 22:55
by Andri Pogo
Það bættust tveir Ornatipinnis við Polypterus safnið mitt í kvöld
kærar þakkir til Pippa, sem sendi mér fiskana með flugi áðan.
Ég ákvað að mæla þá nákvæmt með reglustiku áður en þeir færu ofaní.
báðir nýkomnir:
Sá stærri, mældist 26cm, rosalega fallegir litir í mynstrinu sem myndin sýnir ekki vel:
Sá minni, 24cm:
Þá ákvað ég að veiða hina tvo Ornatipinnis sem ég á upp til að mæla þá líka, alltaf gaman að fylgjast með vextinum.
Þetta er sá stærsti, hann mældist 29cm:
Hann er búinn að stækka um 3cm síðan ég fékk hann fyrir 8mánuðum en búinn að breikka svakalega:
Svo er það sá minnsti, hann er orðinn 23cm og hef ég átt hann lengst eða í 15mánuði, hann lenti í smá slysi þegar hann var lítill og held ég að það sé ástæðan fyrir frekar hægum vexti:
Posted: 27 Nov 2008, 22:57
by Ásta
Það er rosalega mikið af flottum og vel teknum myndum á þessum síðum hérna.
Posted: 28 Nov 2008, 00:51
by Jakob
Glæsó
Ég kannast nú smá við þessa nýju frá pippa, var ----- <<svona nálægt því að kaupa þá þegar þeir voru enn um 10cm og í búð en Pippi náði þeim víst á undan mér
Helvíti flott að eiga 4 Pinnis.
Posted: 28 Nov 2008, 10:24
by Pippi
Já og takk sömuleiðis félagi.
Þeir eru mjög fallegir þessir polyar.
Enn Borleyi er að taka litina núna og hængurinn er alveg svaðalegur
Posted: 28 Nov 2008, 12:01
by Andri Pogo
nú er einhver að taka Lyonsi í gegn
meira vesenið alltaf með þessar síkliður, geta ekki bara allir verið vinir?
Posted: 04 Dec 2008, 00:22
by Andri Pogo
Við Inga tókum upp á því að kaupa okkur íbúð á dögunum og vorum við að flytja núna síðustu helgi.
Allt gekk vel með að flytja búrið og allir fiskar hressir eftir flutninga
Nokkrar myndir frá nýja staðnum
einn af þremur Jack Dempsey:
Jaguar karl og Retropinnis að skjótast framhjá:
stóra palmas polli kerlan mín hrognafull aftur:
Minnsti og stærsti Ornatipinnis og 15cm Senegalus, nýjasti íbúi búrsins:
Stóri Ornatipinnis og litli Sengalus ágætir saman:
og Delhezi sem er að stækka í öðru búri þar til hann er nógu stór í 720L:
hin hliðin:
Annars er ég að huga að smá breytingum í búrinu, skipta öllum síkliðum (og jafnvel fleiri) út fyrir gróður.
Posted: 04 Dec 2008, 10:49
by ~*Vigdís*~
Til hamingju með íbúðina!
Hefur verið ,,fjör" að flytja
Virka poly-arnir alveg með gróðri?
Posted: 04 Dec 2008, 11:23
by Andri Pogo
takk fyrir
jú þeir ættu alveg að ganga með gróðri, hef ekki lent í neinu veseni með það hingað til.