Haplochromis durgarnir mínir

Umræður um afrískar sikliður og amerískar í stærri kantinum

Moderators: Vargur, Hrappur, Ásta

User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Ásta wrote:Ég held það sé miklu skemmtilegra að horfa á þetta búr en arrowönuna (með stútfullri virðingu fyrir henni) svamla um á yfirborðinu.
Ég er ekki sammála... Ég og kærastan erum oft alveg dáleidd yfir að glápa á arowönuna mína, þetta kvikindi er svo tignarlegt og flott hvernig hún hreyfir sig að maður getur alveg gleymt sér fyrir framan búrið bara að glápa á einn fisk :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
jeg
Posts: 701
Joined: 30 Aug 2007, 22:58
Location: Hrútafjörður
Contact:

Post by jeg »

Ég er sammála Ástu 8)
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Vá flottur Stevenii :D
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Inga Þóran
Posts: 1482
Joined: 20 May 2007, 01:16
Location: rvk

Post by Inga Þóran »

þetta eru skuggalega flottir fiskar 8)
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Compressiers karlinn er alveg að ganga af göflunum, hann er búinn að sópa öllum fiskunum í búrinu yfir í annan helminginn og synir sig grimmt fyrir kerlunni, hún er ekki að sýna alveg nógu mikin áhuga en tilburðirnir í karlinum vekja þó athygli annara kerlinga í búrinu.

Image
Hér er mynd af kappanum á fleygiferð.

Það var bráðfyndið að fylgjast með gaurnum áðan sópa brúsknef í burtu og eftir að hann kom honum frá þá gægðist einn synodontis kattfiskurinn út undan steini og karlinn gerði sér lítið fyrir og greip utan um afturhlutann með stóra kjaftinum og synti með hann yfir í hinn helminginn og fleygði honum þar eins og hverju öðru rusli. Svona hef ég aldrei séð áður. :)
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

Vá þetta hefur verið mögnuð sjón!
Þvílíkur karakter!
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

magnaður :yay:
User avatar
acoustic
Posts: 631
Joined: 27 Apr 2007, 21:06
Contact:

Post by acoustic »

Hvað er að frétta úr þessu búri ekkert heirst síðan í mai ?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

acoustic wrote:Hvað er að frétta úr þessu búri ekkert heirst síðan í mai ?
Ekkert breyst síðan þá enda er ég þolinmóður annað en sumir... :)
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

:roll: :P
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég er jafnvel að hugsa um að losa mig við alla þessa fiska til að búa til pláss fyrir monsterin þó ég tími þeim varla.
Ef einhver hefur áhuga þá eru fiskarnirl til sölu. Myndir af öllum má sjá í þræðinum.

Þeir helst eru þessir, allir 12-15 cm.
Aulonocara jacobfreibergi kk.
Aulonocara o.b. kk
Aulonocara Red/blue kk
Copadichromis borleyi kk
Copadichromis borleyi kvk
Dimidiochromis compressiceps kvk
Nimbochromis livingstonii kk
Nimbochromis livingstonii kvk
Nimbochromis venustus kk
Nimbochromis venustus kvk (2stk)
Fossorochromis rostratus kk
Fossorochromis rostratus kk (2stk)

Einnig eitthvað af minni fiskum, 5-10 cm sem fást í kaupbæti með þeim stærri.

Áhugasamir vinsamlega sendi einkapóst.
Post Reply