Síðasta vígið fallið

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

gott vatnið hérna í Grafarvoginum.. :wink:

Vonandi fara þessi fallegu dýr að hrigna fljótlega aftur hjá þér. :)
Svavar
Posts: 385
Joined: 03 Sep 2007, 08:51
Location: Sauðárkróki

Post by Svavar »

Þetta með pH er að stríða mér á Króknum þar sem heitavatnið er pH 9,3 en það kalda er pH 7,3 þannig að ég kom mér upp varmaskiptir þannig að ég hita kaldavatnið upp en ef sýrustigið á heitavatninu væri í lagi þá væri ég bara að nota það. það gerði ég alltaf áður og var í fína lagi.
Diskus og aðrir skrautfiskar.

Heimasíða http://www.facebook.com/#!/pages/Skraut ... 2348325143
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

update maður eru diskusarnir búnir að hrygna aftur :D
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Nei, engin hrygning og allt óbreytt. Ég skil ekkert í þeim. :?
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

leiðinleg það :( Ég var að vona að sjá myndir af diskusa seiðum :(
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Búinn að prófa að troða discusana út af nautshjarta og skipta um mikið af vatni?
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Hvar er hægt að ná sér í svona nautshjörtu hér um slóðir?
User avatar
pípó
Posts: 1172
Joined: 05 Apr 2007, 09:28

Post by pípó »

Held að það sé hægt að láta þá í Nóatúni fá þetta fyrir sig,það var mér allavega sagt af einum Diskusa snillingi.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

keli wrote:Búinn að prófa að troða discusana út af nautshjarta og skipta um mikið af vatni?
Ég er búinn að vera hógvær á vatnsskiptunum, skipti síðast ca 30% eftir hrygninguna um daginn en skipti svo ríflega áðan, ca 60%
Ég hef bara gefið þurrfóður og aðeins frosna artemíu, nú fer ég að belgja þá út. :)
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

Hafa þau ekkert hryngt aftur hjá þér? :|
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Vargur wrote:
keli wrote:Búinn að prófa að troða discusana út af nautshjarta og skipta um mikið af vatni?
Ég er búinn að vera hógvær á vatnsskiptunum, skipti síðast ca 30% eftir hrygninguna um daginn en skipti svo ríflega áðan, ca 60%
Ég hef bara gefið þurrfóður og aðeins frosna artemíu, nú fer ég að belgja þá út. :)
Iss, allir discusasérfræðingar sem maður hefur verið að lesa dálka hjá sammála um að maður þarf að gefa próteinríkt og ferskt til að fá þá í hrygningastuð, ásamt ríflegum vatnsskiptum.. Þurrmatur getur svosem gengið, en hitt er vænlegra til árangurs.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
pípó
Posts: 1172
Joined: 05 Apr 2007, 09:28

Post by pípó »

Jæja félagi hvernig gengur þér með Diskana ? Ertu farinn að gefa þeim hjörtu ?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Diskusarnir eða hjartasjúklingarnir eru að koma til, þeir hafa síðustu daga fengið blóðorma en engin hjörtu og eru alveg vitlausir í þá, svo vitlausir í ormana að þeir koma upp á móti manni þegar maður nálgast búrið en eru svo fljótir að breytast aftur í taugahrúgur ef maður hnerrar í 10 metra radíus við þá. Þeir verða sennilega að fara á heilsuhæli þegar börnin koma heim. :?
User avatar
pípó
Posts: 1172
Joined: 05 Apr 2007, 09:28

Post by pípó »

Já þetta eru ferlegar taugahrúgu, hjá mér eru yngri fiskarnir farnir að jafna sig og eru að vera komnir með réttu litina en 2 ára fiskarnir eru ennþá ferlega trekktir og dökkir á litinn,annars hef ég verið að gefa einhverja hjartagúmmulaðisblöndu sem mister Guðmundur sagðist gefa sýnum fiskum en mínir eru ekkert hrifnir af því,skil þetta ekki því fiskarnir mínir eru frá honum,kannski tekur þá bara svona langan tíma að venjast nýum stað,annars eru þeir mjög hrifnir af blóðormunum :)hafa þeir ekkert hrygnt hjá þér aftur ?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Þeir hafa ekkert hryngt en eru núna komnir í búrið með arowönunni og kannski komast þeir í stuð á blóðormakúrnum.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Einkennilegir fiskar... ég var að leika mér að því að klappa mínum í gær :)

Mínir reyndar stressast aðeins upp ef það eru mikil læti í kringum búrið, en þeir eru fljótir að koma aftur og sníkja. Maður hefði haldið að þínir væru búnir að venjast þessu fyrir löngu...
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Post Reply