Búrin mín, 720L á bls.11
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
- Andri Pogo
- Posts: 5003
- Joined: 26 Mar 2007, 17:58
- Contact:
- Andri Pogo
- Posts: 5003
- Joined: 26 Mar 2007, 17:58
- Contact:
- Andri Pogo
- Posts: 5003
- Joined: 26 Mar 2007, 17:58
- Contact:
Nýjasti fiskurinn, Clown Knife. Svakalega flottur og algjört átvagl.
Það kom á óvart hvað hann getur opnað kjaftinn mikið þegar hann fékk lambahjarta, eins og bílferja!
Hann er nánast allan daginn eins og á myndinni, ekkert að fela sig.
Að éta blóðorma.
Og frændurnir saman.
Myndir teknar í flýti. Félagarnir að hvíla sig saman, Senegalusinn notar Black Ghost sem sæng
-||-
Sængin var farin að hreyfa sig of mikið og Senegalus eitthvað pirraður...
...en þeir komu sér aftur fyrir
Og að lokum heildarmynd af búrinu, dundaði mér við að setja inn hvaða fiskar eru þar. Ég tek glaður við ábendingum ef einhverjar tegundir eru rangnefndar. Litlu rauðugga tetrurnar fara samt í kvöld til systur minnar svo þær verði ekki étnar í nótt.
- Andri Pogo
- Posts: 5003
- Joined: 26 Mar 2007, 17:58
- Contact:
- Andri Pogo
- Posts: 5003
- Joined: 26 Mar 2007, 17:58
- Contact:
Venusarfiskarnir tveir sem voru eftir fóru til systur minnar. Konan vildi ekki að þeir yrðu étnir.
En Clown Knife er farinn að láta meira bera á sér. Sérstaklega þegar ljósið er slökkt, er búinn að vera fylgjast með honum í morgun og hann var að reyna að næla sér í Boesmani Hann lítur ekki við tetrunum, sér greinilega að það er ekki mikill matur á þeim hehe.
En ég vona þó að hann fari ekki að éta þá. Gaf blóðorma og lambahjarta áðan sem Clown-inn borðaði eiginlega allt áður en hinir komust í það.
Gaman að þessu.
En Clown Knife er farinn að láta meira bera á sér. Sérstaklega þegar ljósið er slökkt, er búinn að vera fylgjast með honum í morgun og hann var að reyna að næla sér í Boesmani Hann lítur ekki við tetrunum, sér greinilega að það er ekki mikill matur á þeim hehe.
En ég vona þó að hann fari ekki að éta þá. Gaf blóðorma og lambahjarta áðan sem Clown-inn borðaði eiginlega allt áður en hinir komust í það.
Gaman að þessu.
- Andri Pogo
- Posts: 5003
- Joined: 26 Mar 2007, 17:58
- Contact:
Bætti við 2 nýjum regnbogafiskum í dag, þónokkuð stærri en Boesmani sem voru til staðar og stækka varla mikið meir.
Held að þeir séu Melanotaenia misoolensis
Annar er meira gulur en hinn meira blár. Þeir eru mjög aktívir og litlu Boesmani elta þá einsog mömmu sína
Og þess má til gamans geta að ég gerði fyrstu vatnaskipti hjá mér áðan. Tók nú ekki nema nokkrar mínútur en ég skipti um 23 lítra eða ~13%
Ætti ég að gera það vikulega eða sjaldnar? Fleiri lítra?
Held að þeir séu Melanotaenia misoolensis
Annar er meira gulur en hinn meira blár. Þeir eru mjög aktívir og litlu Boesmani elta þá einsog mömmu sína
Og þess má til gamans geta að ég gerði fyrstu vatnaskipti hjá mér áðan. Tók nú ekki nema nokkrar mínútur en ég skipti um 23 lítra eða ~13%
Ætti ég að gera það vikulega eða sjaldnar? Fleiri lítra?
- Andri Pogo
- Posts: 5003
- Joined: 26 Mar 2007, 17:58
- Contact:
- Andri Pogo
- Posts: 5003
- Joined: 26 Mar 2007, 17:58
- Contact:
- Hrannar E.
- Posts: 98
- Joined: 18 Jan 2007, 06:27
- Location: Grindavík
- ~*Vigdís*~
- Posts: 525
- Joined: 20 Sep 2006, 19:03
- Location: Úthverfi dauðans Aldur: 30ára
- Contact:
Vigdís, ef þú vissir eitthvað um latnesku þá auðvitað væri þér fullljóst að albonubes (alba nubes) merkir white cloud en fiskurinn fannst eimitt fyrst við White cloud(ensk þýðing) fjöll í Kína. Almennt eru þeir þó held ég þekktir sem Venusarfiskur i Evrópu (evrovision).
Þessir fiskar eru alveg stórskemmtilegir og nokkuð sérstakir vegna þess að vafamál hefur verið hvaða ættkvísl þeir teljast til, persónulega hélt ég að þetta væri tetra eða jafnvel danio en raunin er að þeir flokkast undir ættkvísl karpa.
Þessir fiskar eru alveg stórskemmtilegir og nokkuð sérstakir vegna þess að vafamál hefur verið hvaða ættkvísl þeir teljast til, persónulega hélt ég að þetta væri tetra eða jafnvel danio en raunin er að þeir flokkast undir ættkvísl karpa.
- Andri Pogo
- Posts: 5003
- Joined: 26 Mar 2007, 17:58
- Contact:
Senegalus gerði okkur ansi skelkuð áðan!
Við komum heim um 9-leitið, höfðum verið úti í 6klst og ég byrja á að gefa fiskunum að borða.
Svo þegar ég lít yfir búrið sé ég hvergi Senegalus
Búrið er vel lokað og búinn að líma fyrir snúrugötin þannig hann gæti ekki hafað sloppið.
Ég ríf lokið af og leita betur en ekkert.
Þá er eini staðurinn eftir dælan og lokið á henni er ekki nógu vel lokað, götin fyrir rafmagnssnúrurnar eru nógu stór fyrir hann að troða sér í.
Slekk á dælunni og tek filterana frá en sé ekkert.
Svo eftir smástund sé ég Senegalus kíkja upp úr dælunni
Hann hafði semsagt stokkið uppúr vatninu og ofaná dæluna, smeigt sér niður meðfram rafmagnssnúrunni og legið þar fastur, kannski í smástund, kannski í marga klst.
Ég náði að lokka hann upp og út úr dælunni með rækju.
Ég er bara þakklátur að þetta hafi gerst núna en ekki þegar ég verð í útlöndum eftir mánuð. Ég límdi niður debetkort fyrir götin til bráðabirgðar, gegn betur frá því fljótlega.
Ég gleymdi myndavélinni útí bíl þannig ég náði engum myndum af honum syndandi í dælunni

Bara halda þessu við
Ég prófaði að skella 2 neon tetrum í búrið í dag. Ekkert gerðist fyrstu mínúturnar og ég var á hraðferð þannig ég gat ekki fylgst lengi með.
Var svo að koma heim núna og þær eru horfnar.
Leiðinlegt að missa af þessu því ég er ekki viss hver borðaði þær, Clown-inn eða Senegalus. Veit ekki með black ghost, mér finnst hann svo rólegur.
En það kemur nýtt "skrímsli" á heimilið á morgun eða hinn...
Stay tuned

Jæja þá er ég búinn að fá nýtt skrímsli á heimilið
Krílið er nú samt allt nema skrímslalegt, enda bara um 5cm og voðalegt krútt:
Þetta mun vera hvítur Walking Catfish, mjög ánægður með hann og það verður spennandi að fylgjast með honum stækka.
Ég keypti sér búr undir hann því hann er alltof lítill fyrir stóra búrið. Hann fær að búa í nýja búrinu þar til hann hefur náð þokkalegri stærð.
Nýja búrið er 40l og kom ég því fyrir í bókahillu. Keypti dælu í það og ég notaði vatn og möl úr stóra búrinu þannig að ég startaði því bara deginum áður en ég sótti litla krílið.
Ég er með sama bakgrunn og á stóra búrinu og notaði líka hraun úr því.
Prófaði að planta Cabombu til að sjá hvort hún lifi það af. Er bara með Ikea hilluljós fyrir ofan búrið.

ég var nú með einhverjar ræktunarpælingar og ætlaði að fara að smíða mér búr undir það.
En þegar ég sá þetta kríli keytpi ég frekar strax búr sem mér bauðst undir hann.
Þegar hann fer í stóra búrið ætla ég kannski að vera með humra, eða eitthvað annað sniðugt sem er bæði skemmtilegt og gæti verið fóður fyrir skrímslin mín (þegar þau stækka)
En annars veit ég ekki hvort ég hafi eitthvað með krílinu ef þú varst að meina það Einar. Kannski einhverja gotfiska, hann var nú með nokkrum í búri í Fiskabúr.is þannig hann ætti að þola það
En þegar ég sá þetta kríli keytpi ég frekar strax búr sem mér bauðst undir hann.
Þegar hann fer í stóra búrið ætla ég kannski að vera með humra, eða eitthvað annað sniðugt sem er bæði skemmtilegt og gæti verið fóður fyrir skrímslin mín (þegar þau stækka)
En annars veit ég ekki hvort ég hafi eitthvað með krílinu ef þú varst að meina það Einar. Kannski einhverja gotfiska, hann var nú með nokkrum í búri í Fiskabúr.is þannig hann ætti að þola það
- Andri Pogo
- Posts: 5003
- Joined: 26 Mar 2007, 17:58
- Contact:
Er búinn að fá þrjá rauða flotta sverðdraga í litla búrið, einn kall og tvær kellur.
Munu þeir halda Walking catfish félagsskap og hugsanlega fóðra hann með seiðum
Ef vel gengur með seiðin þá fara þau líka í stærra búrið.
Búinn að bæta nokkrum plöntum við stóra búrið og það fóru þrjár litlar Cabombur í litla búrið ásamt javamosa (?).
Fann flott video af clown knife, hann á eftir að verða svakalegt flykki
http://www.youtube.com/watch?v=FpnhwlnOsAs