jájá, það kemur þó alveg fyrir að ein og ein fljóti upp, aðallega rótarlitlar plöntur.
ég fjarlægi svo síkliðurnar ef þær fara að vera með eitthvað rót.
Mér var hugsað til þín í gær Andri þegar ég fór í verlsunina Asíu við Suðurlandsbraut, til að kaupa hrísgrjón.
Eins og sannri konu sæmir þurfti ég að skoða allt í búðinni en þarna er allt morandi í súrsætum sósum, soya, dong chong og wang hong.
Þarna rakst ég líka á niðursoðinn hníf, þ.e. knifefish.
Hann er einhvern veginn skorinn niður og settur í krukku og framan á er þessi fína mynd af honum ásamt texta... eitthvað minced featherfin og jaríjaríjarí...
Mæli með að einhver hugrakkur fari þangað og kaupi og smakki
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
kíkti í búðina Ásta og ætlaði að smakka Clown knife.
þetta var því miður útrunnið hjá þeim og vildi ég ekki alveg hætta á að éta það annars gaman að skoða þarna. Í frystinum voru til heilir Clarias kattfiskar, Chönnur og fleira.
jebb!
þetta getur svosem komið fyrir flestar búðir og ég kippti mér ekki mikið uppvið það... fyrr en ég kíkti undir fanta dós sem ég keypti í sárabætur. Hún rann út á síðasta ári
Black Ghost er orðinn ansi góður með sig. Farinn að bíta frá sér og er orðinn duglegur að bögga Polytperusana.
Svo tók hann sig til í dag og drap einn stóran Convict karl
það eru annars svo margir mathákar í búrinu að það er varla að höndla bio-loadið. Spurning um að fækka eitthvað en verst er að ég vil enga fiska missa. Get víst ekki skipt jafnt ört um skoðanir og fiska og sumir.
En það er kannski spurning ef einhver gefur manni gott tilboð í risa Polypterus safn?
Hehe, ég er búinn að gera upp hug minn, finally..
En mér finnst búrið fallegt.
Að mínu mati er búrið fallegt en hér er eitthvað sem að ég mundi breyta:
Minnka gróður.
Losa mig við Jaguarana og hákarlinn.
-Veit ekki hvað skal gera með poly-ana.
Já skrítið, mér finnst eins og ég hafi sagt þetta áður.
Nei það á að henda búrinu inní stofu, ætla að hafa Jaguar par í búrinu, svo þegar fer að þrengjast þá mun karlinn verða einn.
En back to you.
Mér finnst ekki þess virði fyrir þig að láta polypterusana. En búrið með polypterusunum einum (kannski +1 fiskur, t.d. CK eða ATF).