pípó wrote:Á ca 50 stykki til af ca 2 cm og verður ekki meira til í bráð,þannig að nú er síðasti séns að fjárfesta í þessum snilldar hreinsigræjum,300 kall stykkið, og plís sendið mér bara ep.
Fyrir ykkur fiskimann, Eirík og hina sem ekki treysta sér fyllilega til að senda ep þá gerði ég uppkast fyrir ykkur.
Copy/pastið bara textan og sendið pípó, tilvalið er að bæta sjálfur inn upplýsingum um hvenær þið getið helst komið osf.
Sæll pípó,
ég væri til í að kaupa af þér XX (setjið inn tölu) ancistur.
Hvernig er best fyrir mig að nálgast þær ?
Ef ég bið um fyrirspurnir í ep þá vill ég hafa það þannig,ég get ekki af því gert þó fólk eigi eftir að kaupa jólagjafir eða eitthvað annað og hafi ekki tíma til að sækja þetta til mín,eins og ég sagði þá er ég ekki með heimsendingar og nenni ekki að fá póst um áhuga á að fá ancistrur og hvort ég geti ekki komið með þær til viðkomandi af því að viðkomandi hafi ekki tíma eða er bíllaust,ef fólk getur ekki sótt þá sleppið því að senda mér póst.
vó, þetta er ekkert mál sko. Þar sem þetta er spjallþráður þá hélt ég að það væri ekkert mál að skrifa þar inná. óþarfi að taka svona hluti nærri sér. auðvitað getur þú ekkert gert að því þó fólk eigi eftir að gera þetta og hitt, en það hlýtur að vera í lagi að fá upplýsingar hvar þú ert á landinu og svara svo samkvæmt því. ég er t.d. á suðurnesjunum, gerir mér erfiðara fyrir að fara lengra í burtu yfir hátíðirnar. Ekki bjóst ég við að þetta svar mitt myndi valda svona miklum usla
biðst bara forláts ef ég hef eytt tíma þínum, en það var alls ekki meiningin mín. Gangi þér bara vel að selja ancistrurnar
kv. Eiríkur
söluþráður er ekki spjallþráður, ef fólk biður um ep, þá ætti ekki vera erfitt að fara eftir því. t.d ef seljandi vill ekki óþarfa pósta inn á söluþráðinn sinn.
mynni á það sem Pípó skrifaði
pípó skrifaði:
Á ca 50 stykki til af ca 2 cm og verður ekki meira til í bráð,þannig að nú er síðasti séns að fjárfesta í þessum snilldar hreinsigræjum,300 kall stykkið, og plís sendið mér bara ep.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L