Skrítinn sporður

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Joigeir
Posts: 55
Joined: 01 Aug 2010, 17:01

Skrítinn sporður

Post by Joigeir »

Heyrðu er með yellow lab kerlingu og sporðurinn á henni er orðinn eitthvað skrítinn, það er eins og hann skiptist í marga litla búta, ( það eru svona línur í sporðinum og það er eins og það sé búið að rifna með þeim ) er þetta finrot /sporðæta eða hvað?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Það er einhver fiskur að bögga hana.
Joigeir
Posts: 55
Joined: 01 Aug 2010, 17:01

Já ok.

Post by Joigeir »

Já það gæti verið karlinn, þau eru ekki búinn að para sig saman ( munu þau endilega gera það?) en hann er mjög frekur og leiðinlegur við hana stundum eltir hana á röndum.
User avatar
Guðjón B
Posts: 1510
Joined: 13 Mar 2009, 13:59
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Guðjón B »

Emm.. Malawi para sig ekki beint.. hmm. :wink:
Kv. Guðjón Bergmann
180L
54 L
Joigeir
Posts: 55
Joined: 01 Aug 2010, 17:01

Núnú.

Post by Joigeir »

Núnú rosalega hef ég misskilið þá, hvað gera þeir þá :/ er rosa nýr í þessu :)
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

Það er yfirleitt svoldið fjölkvæni hjá þeim sko :) Yfirleitt betra að vera með nokkrar kerlur á móti einu karli. Er ekki oft talað um 1 kk á móti 2-3 kvk?

Hvað ertu með stórt búr og hvað marga fiska, ertu með malawi búr?
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

þeir hrygna með einni kerlingu og þegar þeir eru búnir að því, þá reka þeir hana burt og finna sér nýja.
Ef þessi sem er í búrinu hja þér vill ekki hrygna (er ekki tilbúin eða ekki í stuði)
þá finnst honum að hún sé bara ekkert til gangs og vill ekkert með hana hafa og reynir að reka hana burt.
En auðvitað kemst hún ekkert, hún er í búri.
Best er að hafa nokkrar kvk á móti einum kk og vel af felustöðum.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Post Reply