Jæjajæja nú er ég mikið að velta því fyrir mér hvort ég ætti að skipta út 720L búrinu mínu fyrir rekka.
Er mikið að pæla í þessu og líst bara vel á þá hugmynd að hafa fleiri búr og fleiri fiskategundir en þó leiðinlegt að missa möguleikann á stórum fiskum.
Mér datt í hug að skella upp smá könnun að gamni.
Ef þið þyrftuð að velja (s.s. ekki hægt að hafa bæði) að hafa:
eitt stórt búr (t.d. 720L)
eða
rekka með 10x minni búrum (t.d. 250L + 2x90L + 3x60L4x30L),
hvort mynduð þið velja?
Það eru þessi típísku íslensku kreppu búr sem eru ekki með flottan lýsingar búnað (Sem þú hefur, þarft bara að skipta út perum), lítill skimmer og slök vatnskipti/gæði
Allt annað er eins þegar kemur að þrifnaði fyrir utan að það er engin tunnudæla sem þarf að þrífa
Squinchy wrote:
Allt annað er eins þegar kemur að þrifnaði fyrir utan að það er engin tunnudæla sem þarf að þrífa
Vatnsskipti beint úr krananum?
En svona í alvöru talað þá hef ég aldrei haft áhuga á sjávarbúrum, lít ekki einu sinni á þau í fyrirtækjum eða annars staðar og efast um að það breytist í bráð
Bruni wrote:Hafðu hvort tveggja. Það er ekkert skilyrði að búrið þurfi að vera með stórum fiskum, eða er það ?
neinei auðvitað ekki, en með stóra búrinu þyrfti ég að velja hvernig "þema" ég vil hafa í búrinu og ég er ferlega óákveðinn eitthvað eftir að ég seldi Polypterusana.
Með rekka hef ég möguleika á að hafa mörg þemu, einhverja stærri fiska og einhverja minni fiska, get tekið seiði frá og svona.
En hvað áttu annars við með að hafa hvort tveggja og ekki stóra fiska í stóra búrinu? Væri þá rekkinn ekki orðinn óþarfi?
En auðvitað væri ég alveg til í að hafa bæði stórt búr og rekka en íbúðin er ekki stór og ég vil ekki fylla hana af búrum, svo vantar peninginn fyrir rekkasmíðinni
Þessvegna tók ég fram að það þyrfti að velja annaðhvort, ekki bæði.
Ég efa að ég myndi tíma að losa mig við stórt búr til að fá mörg lítil, en ég skil alveg pælinguna hjá þér. Rekkar eru frábærir og gaman að dunda sér í þeim.
Gefðu þessu 2-3 daga og sjáðu svo hvort þú tímir að selja búrið til að fá mörg lítil. Ein pæling er líka að það er erfitt að gera rekka að stofustássi á meðan eitt stórt búr er minna mál.
Bara einhver kreppueldavél á mínu heimili evast um að verðmæti hennar nái upp fyrir 50þ kallinn í dag.
En eins og keli nefnir þá er ervitt að gera rekka að einhverju stofustási.
personulega myndi ég ekki setja rekka inn í stofuna hjá mér.
En væri til í að vera með 2 metra búr þar ef frúinn og fjárhagurinn myndi leyfa það.
kv
ellixx
180 lítra juwel.
54 lítra mp. til sölu
30 lítra tetra. gaf brósa
1200 lítra rekki. hættur ....... selt ,hent
Canon EOS 500D
Sigma 18-200.
ellixx wrote:
En eins og keli nefnir þá er ervitt að gera rekka að einhverju stofustási.
personulega myndi ég ekki setja rekka inn í stofuna hjá mér.
Já ég þarf aðeins að hugsa málið með þetta, ekkert stress svosem því enginn hefur beðið um að kaupa búrið ennþá
En rekkinn myndi ekki fara í stofuna þar sem stóra búrið er, hann myndi fara inná svefnherbergisganginn við hliðina á baðherberginu uppá að geta tengt yfirfall í niðurfall.
Einfalt mál Andri. Þú "ræktar" í rekkanum en elur seiðin upp í stóra búrinu sem getur verið fallegt með miklum gróðri sem þú grisjar reglulega þ.a. þetta stendur almennilega undir sér. Svínvirkar.
Já það er ekki svo galið, eina sem mér finnst neikvætt við það er að ég yrði að setja mörkin við samfélags-fiska, sem gætu verið saman í sátt og samlyndi í ýmsum stærðum á meðan áhuginn á síkliðum og oddballs er meiri.
Við erum þó mikið að pæla í þessu og erum helst á því núna að hafa 1-2 stór síkliðupör (ég er að reyna að hafa uppá gamla Jaguar parinu mínu) en konunni hefur svosem alltaf langað í gróður + smáfiska þannig maður veit ekki...
Gleymdu þessu með cichliðurnar. Taktu ár eða tvö með gotfiska, barba og eða tetrur og þú hættir að pæla í jagúar o.þ.h. Ert farinn að rækta og búrið samt stofustáss, sannaðu til
Ég myndi vilja rekkann.. þó gaman væri að hafa bæði.
ég er svo óákveðin og er alltaf að skipta um skoðun og vil breyta..
og því myndi rekkinn hennta mér betur.
Henni var svosem sama hvort ég myndi halda stóra eða smíða rekka, svo framarlega sem það væri annaðhvort, ekki bæði
Ég er annars eiginlega kominn á það að halda stóra búrinu í bili og geyma rekkasmíðar til betri tíma, þó vonandi ekki of lengi.