Ég lennti í því í nótt að einn gúbbífiskanna hjá mér drapst og svo hinn í hádeginu í dag
Var að pæla hvað gæti ollið því, þeir héldu sig alveg frá því ég fékk þá alltaf efst í vatninu
Og í gærkvöldi þegar ég gaf þeim og hinum fiskunum að borða þá voru þeir alveg óðir í matinn en hinir svona bara eðlilegir og fóru annarslagið upp að fá sér.
Væri gaman að fá að vita einhvern fróðleik um þetta ef einhver hefur.
Dauður gúbbí
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
Re: Dauður gúbbí
hvað eru þeir í stóru búri og hvernig eru vatnsskiptin hjá þér.
einnig, hvaða aðrir fiskar eru með þeim í búrinu?
einnig, hvaða aðrir fiskar eru með þeim í búrinu?
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Re: Dauður gúbbí
Sko ég var bara að byrja með fiska á þriðjudaginn, og það er par af sverðdragara, ein ryksuga og einn gullfiskurElma wrote:hvað eru þeir í stóru búri og hvernig eru vatnsskiptin hjá þér.
einnig, hvaða aðrir fiskar eru með þeim í búrinu?
Re: Dauður gúbbí
ertu nokkuð búin að gefa mikið á þessum tveim dögum?
Hvað er búrið margir lítrar?
Kannski voru gúbbarnir bara slappir þegar þú fékkst þá.
Hvað er búrið margir lítrar?
Kannski voru gúbbarnir bara slappir þegar þú fékkst þá.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Re: Dauður gúbbí
Búrið er 54L, ég bjóst svo sem við því að þeir hafi bara verið slappir sko, langaði bara að vita hvort einhvern sérfræðingurinn hér hefði einhverja kenningu um þetta. Var aðalega að pæla hvort það segði mér eitthvað að þeir héldu sig alltaf efst uppi í vatninu. Eða er það þannig sem gúbbí hagar sér?Elma wrote:ertu nokkuð búin að gefa mikið á þessum tveim dögum?
Hvað er búrið margir lítrar?
Kannski voru gúbbarnir bara slappir þegar þú fékkst þá.
Re: Dauður gúbbí
ef þeir hanga bara hreyfingarlausir við yfirborðið og gera ekki neitt, þá er það óeðlilegt.
Þeir eiga að synda út um allt.
Kannski var vatnið í pokanum kaldara en vatnið í búrinu (eða öfugt) og fiskanir fengu sjokk þegar þeir fóru í búrið.
En það er hægt að giska endalaust hvað gæti hafa verið að
Þeir eiga að synda út um allt.
Kannski var vatnið í pokanum kaldara en vatnið í búrinu (eða öfugt) og fiskanir fengu sjokk þegar þeir fóru í búrið.
En það er hægt að giska endalaust hvað gæti hafa verið að
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Re: Dauður gúbbí
jájá.. enda skiptir þetta engu máli.. var ekkert að fíla þá sérstaklega... held þeir hafi bara verið þunglyndir því mér fannst þeir leiðinlegir.. hehe.. ég er að spá í að fá mér molly par í staðin..
Re: Dauður gúbbí
gúbbar geta reyndar verið mjög skemmtilegir og mjög fallegir fiskar.
Mér finnst mjög gaman að taka myndir af þeim.
Það gæti verið að þeir hafi verið hræddir við gullfiskinn.
Gullfiskurinn á eftir að éta flest öll seiði sem koma.