Page 1 of 1
Piranha búr - Myndir
Posted: 25 Oct 2006, 13:06
by Gilmore
Hérna er lýsing og myndir af 400l Piranha búri.
Búrið var upphaflega sett upp í mars og voru þá Frontosur í því, en þær hafa nú flutt yfir í annað búr og Piranha komu í þetta búr í september með tilheyrandi breytingum.
Búr: 400l Juwel (Innri dæla fjarlægð).
Dælur: Eheim Professionel II 2028, Coralife Luftpump loftdæla.
Ljós: 1x36w flúrpera.
Fiskar: 14 stk Red Belly Piranha (verða 6 - 8 stk þegar þeir eru fullvaxnir). 01.07: Nú eru eftir 10 stk.
2 stk Raphael catfiskar.
1 stk Ancistrus.
2 stk Ancistrus Gold (dýrt spaug).
Myndirnar eru frekar dökkar vegna þess að lýsingin er frekar dauf í búrinu.
Posted: 25 Oct 2006, 16:08
by Hrappur
pirana/hauskúpu þema er heillandi . .
Posted: 25 Oct 2006, 17:00
by Stephan
Gaman að sjá hvað aðrir að gera með saman búrið !!
Spenntur að sjá seitna myndir þegar Pyranja er buin að stækja
Posted: 25 Oct 2006, 17:21
by ragz
Já flott búr og það verður ennþá flottara þegar fiskarnir eru komnir í góða stærð.. hvað ertu að gefa þeim að éta?
Posted: 25 Oct 2006, 17:23
by Vargur
nebbi wrote:pirana/hauskúpu þema er heillandi . .
...hauskúpuþemað, já !
Posted: 25 Oct 2006, 19:22
by ragz
Vá hvað þetta er raunveruleg hauskaupa? er hún í búri hjá þér? ... er hún kanski alvöru???
Posted: 25 Oct 2006, 19:59
by Vargur
Kanski....?
Ég skal sýna þér hana næst þegar þú kemur í heimsókn.
Posted: 26 Oct 2006, 08:00
by Gilmore
Ég er að gefa þeim hráar rækjur í skel, soðnar rækjur, þorsk, smokkfisk, Sera Granu Meat (síkliðumatur) og einstaka sinnum blóðorma, lifur og nautahakk. Þeir stækka þvílíkt hratt á þessu, en ég gef þeim ca. 4 sinnum á dag núna, en það þarf ekki að gefa þeim alveg eins oft þegar þeir stækka.
Þeir voru agnar smáir þegar ég fékk þá fyrir 4 vikum síðan, svona eins og tíeyringur. Þeir hafa stækkað þvílíkt síðan, eru komnir í góða tíkallastærð og eru farnir að roðna aðeins á kviðnum.
Ég er með búrið þar sem er talsverður umgangur en þá eiga þeir að verða vanir umganginum og verða ekki eins stressaðir og fælnir eins og þeir eru oftast. Þeir eru venjulega frekar rólegir hjá mér en ef það eru margir í heimsókn eða snöggar hreyfingar við búrið þá skjótast þeir í felur. Annars er heimilið yfirleitt frekar rólegt þannig að ég held að þeir verði orðnir nokkuð spakir eftir nokkra mánuði. Það er lykilatriði að sýna þessum fiskum þolinmæði.
Það væri mjög gaman að heyra reynslusögur hjá öðrum sem eru með eða hafa verið með Piranha einhverntíman.
Posted: 13 Nov 2006, 09:50
by Gilmore
Ég ætla að setja inn stutt videobrot af búrinu fljótlega!!!
Posted: 27 Jan 2007, 22:22
by Gilmore
Posted: 27 Jan 2007, 22:28
by Gudjon
ferlega flottur rauði liturinn í þeim
Ertu með einhverja aðra fiska með þeim?
Posted: 27 Jan 2007, 22:48
by Vargur
Fallegir og greinilega aldir á toppfóðri, litirnir er svakalega sterkir í þeim og fiskarnir frískir að sjá eins og reyndar allir fiskarnir hjá þér.
...En ég er ekki alveg að fíla þennan gerfigróður hjá þér.
Eru botnfiskarnir enn í búrinu ? Er Raphaelinn hentugur í piranha búr ?
Posted: 28 Jan 2007, 06:35
by Stephan
Þau er rosalegt flottir , alveg svakalega sjá hvað þau voru stækað
Posted: 28 Jan 2007, 09:17
by Birkir
stækka hratt, dreng.
Posted: 29 Jan 2007, 06:37
by Gilmore
Ég nenni ekki að vesenast með alvöru gróður. Mér finnst þessar gerviplöntur allt í lagi til að gefa smá contrast.
Botnfiskarnir eru ennþá í búrinu, gæti samt verið að það sé búið að éta annan albino ancistusinn, hef allavega ekki séð hann lengi. En Rafael er eini fiskurinn sem er talinn eiga séns á að lifa lengi með Piranha, sökum þess að hann er svo felugjarnir. Samt sem áður sé ég mína oft koma út á matartíma og synda innan um Piranha og næla sér í bita. Allt annað er étið fyrr eða síðar, jafnvel Rafael líka.
piranhas eru cool
Posted: 18 Dec 2007, 23:39
by alexus
V'a hvað þeir eru ógeðslega flottir:D sést langar leiðir að það er farið vel með þá gott fæði
Posted: 13 Jan 2008, 21:00
by Jakob
vá svaka flottir komdu bráðum með smá up-date á myndir
Posted: 13 Jan 2008, 21:06
by keli
Síkliðan wrote:vá svaka flottir komdu bráðum með smá up-date á myndir
Ég er nokkuð viss um að hann sé búinn að selja þetta allt.
Posted: 13 Jan 2008, 21:09
by Jakob
ok sorry vissi þetta ekki
;)
Posted: 19 Feb 2008, 21:49
by bibbinn
hversu stórt er þetta búr
Posted: 19 Feb 2008, 21:51
by Jakob
Þetta er 400l Juwel Búr
Ég er að fara að fá þannig ligga ligga lái.
Re: ;)
Posted: 19 Feb 2008, 21:51
by Vargur
bibbinn wrote:hversu stórt er þetta búr
Það er best að lesa bara þráðinn.