Sandur með skeljarbrotum ?

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
elliÖ
Posts: 231
Joined: 26 Feb 2010, 00:11
Location: Reykjarvík

Sandur með skeljarbrotum ?

Post by elliÖ »

Sælir spjallverjar ég er að spá hvor sandur með skeljarbrotum sé gott eða slæmt í ferskvatnsbúri er að spá hvort ég eigi að nota hann eða ekki hvað segið þið um það

Kveðja Elvar
Elvar
Aquastabil 530L diskusar
130L japanis endler
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Re: Sandur með skeljarbrotum ?

Post by Vargur »

Skiptir svo sem engu allajafna, ef þér líkar hann þá er málið að nota hann.
Hann gæti lækkað pH eitthvað en ef þú ert ekki með fiska eða plöntur sem þurfa sérstaklega lágt pH þá skiptir þetta engu.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Sandur með skeljarbrotum ?

Post by keli »

Vargur wrote:Skiptir svo sem engu allajafna, ef þér líkar hann þá er málið að nota hann.
Hann gæti lækkað pH eitthvað en ef þú ert ekki með fiska eða plöntur sem þurfa sérstaklega lágt pH þá skiptir þetta engu.
Skeljabrotin hækka pH, ekki lækka. Borgar sig líklega ekki að nota skeljasand í búr fyrir fiska sem þurfa lágt pH eins og vargurinn nefnir.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
elliÖ
Posts: 231
Joined: 26 Feb 2010, 00:11
Location: Reykjarvík

Re: Sandur með skeljarbrotum ?

Post by elliÖ »

Hvaða tegundir eru mest viðkvæmar fyrir þessu ??
kveðja Elvar
Elvar
Aquastabil 530L diskusar
130L japanis endler
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Re: Sandur með skeljarbrotum ?

Post by Elma »

þær tegundir sem vilja vera í súru vatni (lágt ph).. t.d fiskar frá Suður Ameriku.. t.d diskus og tetrur.
en t.d guppy vill vera í hörðu (basískt) vatni (hátt ph) og Afríkusíklðiður. (og eplasniglar)

ertu að spá í einhverju sérstöku varðandi þennan sand?
Hvaða tegundi eiga að vera í búrinu?
ef þú ert með rætur í búrinu , þá ættu þær að vinna eitthvað á móti hörkunni
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
elliÖ
Posts: 231
Joined: 26 Feb 2010, 00:11
Location: Reykjarvík

Re: Sandur með skeljarbrotum ?

Post by elliÖ »

Nei engu sérstöku varðandi sandinn ég er nú bara að speglura það verður sennilega gúbby og einhvað svoleiððis í þessu búri enn takk fyri góð og skjót svör kveðja Elvar
Elvar
Aquastabil 530L diskusar
130L japanis endler
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Re: Sandur með skeljarbrotum ?

Post by Vargur »

keli wrote:
Vargur wrote:Skiptir svo sem engu allajafna, ef þér líkar hann þá er málið að nota hann.
Hann gæti lækkað pH eitthvað en ef þú ert ekki með fiska eða plöntur sem þurfa sérstaklega lágt pH þá skiptir þetta engu.
Skeljabrotin hækka pH, ekki lækka. Borgar sig líklega ekki að nota skeljasand í búr fyrir fiska sem þurfa lágt pH eins og vargurinn nefnir.
Þetta átti auðvitað að vera hækka hjá mér. Ég þarf greinilega að lesa innleggin 2x áður en ég sendi eftir erfiða vinnudaga,
Post Reply