Verð á notuðum búrum

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Anna
Posts: 232
Joined: 23 Jul 2007, 22:33
Location: Reykjavík

Verð á notuðum búrum

Post by Anna »

Hvað er sanngjarnt að borga fyrir 190l hornbúr með skáp, dælu, og hitara? Ca 1,5 ára en notað í hálft ár.

Ég er svolítið tvístígandi, keyptum fyrir ca 3 vikum 54l búr fyrir krakkana, sem er gullfiskabúr, en málið er að MÉR finnst þetta svo gaman að ég er að spá í búr fyrir mig og datt niður á þetta notað. 8)

Ég veit ekki alveg hvaða fiska mig langar í, en eitthvað sem er ekki mjög lítið, en heldur ekki allt of stórt - finnst fiskar sem eru ca 5-8 cm fín stærð.

Skalar finnst mér flottir, en langar í litríka fiska, sem eru líka friðsamir, ég hef ekki taugar í bardaga og þess háttar.

Þannig að, 190l notað hornbúr úr dýralandi held ég - verð?

Anna
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Nýtt 190 l hornbúr kostar um 95.000.- í Fiskabur.is, með skáp og öllum búnaði þannig sjálfsagt er 40-60.000.- sanngjarnt fyrir notað búr.
Notuð hornbúr eru reyndar alltaf aðeins erfiðari í endursölu en hefðbundin búr. Auk þess eru hornbúrin hálfleiðinleg að mínu mati þannig ég mæli ekkert sérstaklega með hornbúri nema það sé það sem þú akkúrat villt.
User avatar
Anna
Posts: 232
Joined: 23 Jul 2007, 22:33
Location: Reykjavík

Post by Anna »

Nei, ég er ekki akkúrat að spá í hornbúri, en eini staðurinn sem ég get komið fiskabúri af sæmilegri stærð fyrir er akkúrat horn/skot sem er um 110 cm á langhliðina, og þar sem hornbúr af þessari stærð er bara 74 cm á hliðina þá hefði það passað ágætlega á þennan stað, og ég hefði getað haft símann á sama stað áfram :lol:

En ég held að ég segi pass við þessu búri, það heillar mig ekki hvað það er djúpt í miðjunni, fiskarnir njóta sín enganveginn.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Það getur verið að ég viti um ~200 lítra búr til sölu sem er um 110cm á lengd og 40-60 á breidd og hæð. Er með t5 perum í lokinu þannig að plöntur njóta sín vel og gæti jafnvel fylgt tunnudæla. Sendu mér PM ef þú hefur áhuga.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Post Reply