Page 1 of 2
400L Búrið mitt [Toni]
Posted: 27 Aug 2011, 21:47
by Toni
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
Posted: 27 Aug 2011, 21:59
by Andri Pogo
sjór er nú ekki minn tebolli en þetta er flott uppröðun í búrinu á neðstu myndinni... hvaða fiska ætlaru að setja í búrið?
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
Posted: 28 Aug 2011, 08:36
by Toni
Herru ég er kominn með par af nemo og einn Damsel, leyfa þeim aðeins að koma flórunni af stað, einnig kominn með meira liverock. Skal henda inn nýrri mynd á eftir.
Andri sjórinn var aldrei minn tebolli en ákvað að prufa aðeins að fara útí þetta þó ég sé ekki með 100% búnað eins og er...
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
Posted: 28 Aug 2011, 10:44
by Toni
Hér er ein nýleg af búrinu
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
Posted: 28 Aug 2011, 14:40
by Squinchy
Þetta lítur bara æðislega út
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
Posted: 28 Aug 2011, 14:43
by ulli
Þetta er flott
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
Posted: 28 Aug 2011, 17:27
by ins19
Glæsilegt!
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
Posted: 28 Aug 2011, 21:56
by Toni
Takk takk
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
Posted: 28 Aug 2011, 22:10
by svanur
frábært
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
Posted: 28 Aug 2011, 22:19
by Toni
Er ekki einhver meistari sem getur sagt mér hvað þessir heita
[1]
[2]
[3]
[4] Og rakst á þennan áðan gott/slæmt ?
úps soldið stórar myndir
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
Posted: 02 Sep 2011, 19:07
by kristjan
Flott byrjun hjá þér. Eitt sem ég vill samt benda þér á það er það að tunnudæla getur reynst hættuleg í saltvatnsbúrum þar sem i mediunni getur farið að byggjast upp úrgangsefni og þá virkar tunnudælan frekar eins og nitrate verksmiðja heldur en hluti af hreinsunarbúnaðinu. Frekar myndi ég taka alla mediu úr dælunni og nota hana sem straumdælu. Ég byrjaði með tunnudælu og var í endalausu brölti með hana og ekkert gekk upp en svo skipti ég yfir í sump með próteinskimmer, svamphreinsidælu og smá refugium og þá fór að ganga betur, samt var alltafvandræði með nitrate. Svo tók ég svampinn úr og er því núna bara með próteinskimmer og þetta smá refugium og það hefur aldrei verið neitt vesen síðan. Próteinskimmerinn tekur mest af drullunni og restina ryksugar maður bara af botninum í sumpnum þegar skipt er um vatn.
Þetta a neðstu myndinni er bristle ormur sem er hluti af cuc (clean up crew) i burinu þ.e hann étur urgang fra fiskunum og matarleyfar þannig það fari ekki að rotna i burinu með þeim afleiðingum að nitrate/nitrite/ammonia fer að aukast. Semsagt goður ormur
Þó ber að varast að koma við hann ef þú ert eitthvað að brölta í búrinu þar sem hann er þakinn broddum sem er víst sárt að fá í sig. Ef hann verður mjög stór getur hann einnig farið að valda vandræðum t.d. hef ég lesið um að þeir hafi étið fiska á næturnar þegar þeir sofa.
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
Posted: 02 Sep 2011, 20:06
by ulli
Pic 2-4 er Furry green mushroom.
þarf helst að sjá hit undir Actinic ljósi :s
ps pic1 er þetta frá Dgarðinum?
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
Posted: 06 Sep 2011, 00:59
by Toni
Jæja gott að vita að þetta sé "góður" ormur
hehe en já langar hrikalega í sump og skimmer, ætla aðeins að sjá til. Gengur allavega mjög vel hingað til.
Gott að vita með sveppina
en já pic1 er grjót úr dýragarðinum. kannastu eitthvað við það ?
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
Posted: 06 Sep 2011, 01:06
by Toni
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
Posted: 07 Sep 2011, 14:36
by botnfiskurinn
Helvíti flott!
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
Posted: 07 Sep 2011, 20:41
by ulli
Toni wrote:Gott að vita með sveppina
en já pic1 er grjót úr dýragarðinum. kannastu eitthvað við það ?
Heldur betur.
Tessi er sirka 5cmx4cm þetta er Man m8 Lr ekkert verra en annað en það var flutt inn af dýrabúðini í kef fyrir mörgum árum.
Annars er ég búin að gefast upp á því að finna hver það sem tók allt frá mér án þess að borga fyrir það.
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
Posted: 08 Sep 2011, 00:47
by Toni
Já var þessi bútur hluti af því ? ég get alveg fengið þá í dýragarðinu til að sanna það að ég hafi keypt þetta hjá þeim... spurning um að tjékka hvaðan þeir fengu þetta.. Ég vil alls ekki láta einhvern halda að ég hafi stolið einhvejru.
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
Posted: 08 Sep 2011, 04:44
by ulli
er alls ekki að seyja að þú hafir gert það
Sá sem hefur tekið frá mér hefur komið því í dýragarðin.
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
Posted: 14 Sep 2011, 22:22
by Toni
Smá video af rækjunni sem ég var að kaupa
http://www.youtube.com/watch?v=0oRQQEJcnsE
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
Posted: 20 Sep 2011, 23:28
by Toni
Getur einhver sagt mér hvað þessi sveppur var að gera.. allt í einu í gær tók hann sér til og lokaði sér alveg í svona klukkutíma, fékk hann eitthvað að éta eða ?
Fyrir
Eftir
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
Posted: 20 Sep 2011, 23:44
by Squinchy
langt síðan vatnskipti voru gerð ?, gott að mæla vatnið og sjá hvort ammonia NH4 sé á svæðinu, og svo Nitrite NO2 og Nitrate NO3
annars hefur eitthver líklegast verið að narta í hann
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
Posted: 21 Sep 2011, 17:53
by ulli
sennilega verið að étta.
gaf mínum stundum rækjur
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
Posted: 21 Sep 2011, 22:22
by Toni
Já þarf að mæla vatnið(sjóinn) hjá mér..
En Ulli já mér finnst það líklegt því ég var eimmit að gefa fisknum að borða þegar hann allt í einu lokaði sér
takk fyrir svörin
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
Posted: 09 Oct 2011, 23:58
by Toni
Ein sp. var að festa kaup á eina Anemone, nú er hún komin langleiðina bakvið grjót, þarf ég að hafa einhverjar áhyggjur af henni ?
keypti hana í gær og hún var í allan gærdag á sama stað og ég setti hana á og var voða flott þá. haldið þið að hún eigi ekki eftir að koma sér þaðan út og koma sér fyrir einhvernstaðar ?
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
Posted: 10 Oct 2011, 01:13
by Storm
grasið er oftast grænna hinumegin við klettinn fyrir anemone, ættir ekki að hafa áhyggjur held ég.
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
Posted: 10 Oct 2011, 10:03
by Toni
á maður að vera að standa í því að grafa hana upp og færa hana ? eða leyfa henni að rölta um búrið bara ?
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
Posted: 10 Oct 2011, 10:48
by kristjan
Anemonur finna ser sjalfar staðinn i búrinu sem hentar þeim best. Það þyðir ekkert að færa hana aftur þar sem hun færir sig þa bara aftur. Tu getur profað að breyta straumnum i búrinu og þannig gert eftirsóknarvert fyrir hana að færa sig sjálf eitthvert annað. Eg hef verið með nokkrar en alltaf hafa þessi ferðlög endað i dæluinntaki með tilheyrandj leiðindum.
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
Posted: 10 Oct 2011, 18:09
by DNA
Þær festa sig yfirleitt þar sem þær gera breytt úr sér rétt undir þar sem straumur er góður.
Ef það gerist ekki breyta dælunum.
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
Posted: 11 Oct 2011, 10:45
by Toni
Já hún er nú komin fram núna
ætla að leyfa henni að rölta aðeins um... hvað þarf að gefa henni að éta ? rækjubita ?
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
Posted: 11 Oct 2011, 16:12
by DNA
Já það dugar einu sinni til tvisvar í viku eða bara eitthvað sjávarfang úr dýraríkinu.
Ef þú ert með trúða þá færa þeir henni bita sem eru of stórir fyrir þá sjálfa.