Ég var að kaupa svona test strip sem testar pH, KH, GH, NO3- og NO2-
Ég veit EKKERT hvað er gott og hvað er slæmt.. Einhver sem getur útskýrt hvað er æskilegt í hverju fyrir sig og hvernig ég get lagað óæskilegt magn af þessu (og líka hvað þetta allt þýðir )
Núna með glænýtt vatn er ég með ca pH 6,4-6,8. KH ca 3. GH ca 3-7. NO3- á milli 50 - 100 og NO2- er 0
Test strip 5 in 1
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
Þetta er allt í fínu lagi, NO3 mætti vera aðeins lægra. Eina leiðin til að losna við NO3 er að skipta út vatni.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Fiskabúraefnafræði 101
Þegar úrgangur brotnar niður í fiskabúrum skapast fyrst ammónía, svo eru bakteríur sem breyta ammóníu í nítrít (no2) og svo baktería sem breytir nítríti í nítrat (no3). Eina leiðin til að losna við nítrat er að vera með mikið af plöntum sem nýta sér það sem áburð eða skipta um vatn.
Meira hér: http://www.bestfish.com/breakin.html
PH, GH og KH er harka vatnsins, en fólk pælir venjulega ekkert í því (og þarf venjulega ekki) nema PH. PH 7.0 er neutral, ef talan er stærri en 7 þá er vatnið basískt og ef undir þá er það súrt. PH skiptir litlu í fiskabúrum svo lengi sem það er á milli 6.5 og 7.8 eða svo, og mikilvægast er að það sé stabílt og lítið af sveiflum.
Sumir fiskar vilja basískt vatn, t.d. afrískar síkliður á meðan aðrir fiskar, eins og amerískar síkliður (og fiskar úr amazon) og fiskar sem eru úr mýrarsvæðum vilja vatn í súrara lagi.