Halló, ég er algjör byrjandi í þessu og er nýbúin að fá mér tvo gullfiska, einn svartan og einn appelsínugulan (báðir með slörsporð). Ég setti þá í nýtt búr fyrir sirka 4-5 dögum, og fyrir 2-3 dögum fór sá appelsínuguli að fá svarta bletti eða línur yst á sporðinn, og núna áðan tók ég eftir að það er smá svart á uggunum.
Ég er búin að vera að reyna að finna eitthvað á netinu um þetta en það eina sem ég finn eru bara sögur um gullfiska sem hafa fengið svarta bletti, verið veikburða og dáið svo.

Það eina sem mér datt í hug var að skipta um hluta af vatninu.
Báðir fiskarnir mínir eru samt hressir og hegða sér venjulega.
Kannist þið við þetta? Get ég gert eitthvað í þessu?