Dáinn á 2 vikum, plís skoðið:/

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
heoheo
Posts: 1
Joined: 05 Jan 2012, 00:16

Dáinn á 2 vikum, plís skoðið:/

Post by heoheo »

Ókei ég átti gullfisk sem var keyptur 22.desember og hann var að deyja núna.
Þegar hann var keyptur var sagt að þetta væri fersksvatnsfiskur og seldar kúlur með honum til að éta. Ég átti að skipta um smá af vatni á hverjum degi í kúlunni og skipta alveg um vatn einu sinni í viku.
Ég skipti reglulega um smá af vatninu og í dag var ég að skipta alveg um vatnið en skildi samt smá eftir af gama vatninu eftir. Eftir að ég var búin að því fór fiskurinn að hegða sér svo furðulega, andaði þannig að hann teygði "varirnar" geðveikt langt út (hafði aldrei séð það áður) og borðaði ekki matinn sem ég gaf honum. Svo fór hann alltaf að leggjast á hliðina á yfirborðinu, en þegar ég hreyfði við kúlunni þá hreyfði hann sig, svo dó hann núna.
Hefur einhver hugmynd um hvað ég hafi gert vitlaust :/? Er þvílíkt sár yfir þessu.
Já annað, þegar ég fékk hann var hann með rauðan blett á hausnum á annarri hliðinni og augað var allt kolsvart á meðan hitt augað var bara venjulegt. Svo sýndist mér rauði bletturinn vera að stækka. Var fiskurinn eitthvað veikur þegar ég fékk hann? Er hægt að fara í búðina og kvarta :/? Er allavega mjög ósátt með þetta.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Dáinn á 2 vikum, plís skoðið:/

Post by keli »

Hvernig var hitastigið á vatninu sem þú settir í staðinn fyrir gamla vatnið? Ef fiskurinn var hraustur fyrir, þá myndi ég giska á að það hafi verið of mikill munur á hitastiginu sem var fyrir í búrinu og það sem fór aftur.

Svo er líka ekki gott að skipta um allt vatn í búrinu, venjulega dugar alveg 30-70% vatnsskipti, eftir aðstæðum.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Post Reply