Það styttist í að ég taki upp svipuna og þvingi minn partner til að smíða lok yfir 500 ltr. búrið.
Einhver ljós verð ég að hafa og nú er spurning hvernig, þ.e. hvað spyr ég um og hvar spyr ég um það?
Hver gæti kostnaðurinn verið ca?
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
Ég fékk ljósin lítið notuð í mitt lok á 10þús.. 2x80w T5.
Mér finnst það passleg birta, getur líka verið með eitthvað af plöntum með því.
Þú getur talað við búlluna í hafnarfirðinum, flúrljós eða flúrperur eða eitthvað álíka, þeir selja svona startar og vatnsþétt ljósastæði, gæti verið ódýrara en að kaupa t.d.eitthvað tilbúið úr dýrabúð.
Mín reynsla er að ljós í þessum ljósabúllum séu litlu ódýrari ef þá eitthvað heldur en þau í dýrabúðunum en sjálfsagt að ath, passaðu þig bara að ljósið sé rakahelt.
Í Fiskabur.is má svo fá þessu fínu rakaheldu ljós, bæði T5 og T8.
T stendur fyrir tubular / túba, lögun perunnar.
talan stendur fyrir þykktina, talan er margfölduð með áttund tommu.
T5 er semsagt 5/8" eða 1,59cm þykk en T8 er 8/8" eða 2,54cm þykk
veit samt ekkert hver munurinn er á þessum hvað varðar fiskabúrsljós önnur en stærðin. Það var allavega mælt með T5 frekar en T8 þegar ég valdi ljós í nýja búrið mitt