Það er enginn að pósta neinu hérna svo ég ætla leyfa mér að segja aðeins frá vextinum.
Yfirlitsmynd
Sveppir sem ég fékk á kostakjörum hér á síðunni.
t.v. Pinapple brain coral (að ég held) það er soldið erfitt að gefa honum að borða en ég er búinn að sjá nokkra nýja munna koma fram. Hann virðist ekki senda út fálmara á nóttunni eins og ég hefði búist við en hann hefur borðað brine shrimp sem ég hef skilið eftir ofan á honum.
Svo hafa þessir polyps fjölgað sér vel en ég stelst líka til að gefa þeim að borða. En ég hætti því örugglega, svo þeir yfirtaki ekki allt.
Candycane sem ég keypti af SAS, það virðast einhverjir munnar vera að skipta sér og ég reyndi sérstaklega að mata þá sem höfðu ekki tekið á sig almennilega mynd.
Ég varð að setja hann á botnin því mér tókst ekki að skorða hann nægilega vel í grjótið og krabbinn var alltaf að velta honum svo hann endaði með höfuðin í sandinum, svo hann fær að vera þarna þar til þetta er orðið soldið stæðilegra.
Cabbage leather coral sem ég keypti með búrinu, hann er búinn að stækka nokkuð mikið og það er að spretta fram nýr angi þarna eins og sést. Ég hafði líka klippt aðeins af honum og fraggið dafnar vel.
hitt og þetta
Meira af þessum flottu sveppum sem ég keypti hérna.
Þessi myndarlegri toadstool og coloured polyps þarna ofan á t.h.
fyrrgreint fragg sem er búið að sirka tvöfaldast í stærð á brine shrimp.
Mig langar reyndar að sjá soldið meira hvernig ykkar búr eru að þróast. Vil hvetja ykkur til að sýna okkur hinum.
Allt að spretta
Moderators: keli, Squinchy, ulli
- Alí.Kórall
- Posts: 131
- Joined: 02 Jul 2012, 16:35
- Location: Garðabær
Allt að spretta
mbkv,
Brynjólfur
Brynjólfur
Re: Allt að spretta
þetta er að verða myndalegt hjá þér
- Alí.Kórall
- Posts: 131
- Joined: 02 Jul 2012, 16:35
- Location: Garðabær
Re: Allt að spretta
Þakka þér fyrir.S.A.S. wrote:þetta er að verða myndalegt hjá þér
Ég þykist samt vita að ég er með nokkuð öðruvísi gerð af toadstool en þessi algengasta. Minn er t.d. nokkuð frábrugðin þínum.
t.d. er hann svona eiturgrænn litur í honum eins og úr áherslupenna á stofninum og soldið flatari að ofan.
Það er einnig soldið freistandi að fóðra sveppina þar sem þeir borða á svo sérstæðan hátt.
mbkv,
Brynjólfur
Brynjólfur
Re: Allt að spretta
Hvað er búrið búið að vera lengi í gangi ?
- Alí.Kórall
- Posts: 131
- Joined: 02 Jul 2012, 16:35
- Location: Garðabær
Re: Allt að spretta
Það er búið að vera í gangi síðan um miðjan ágúst.
En það var ekki alveg hreint start. Og eiginlega flest grjótið er t.d. úr fiksabúrum þar sem það er búið að vera lengi.
En það var ekki alveg hreint start. Og eiginlega flest grjótið er t.d. úr fiksabúrum þar sem það er búið að vera lengi.
mbkv,
Brynjólfur
Brynjólfur
Re: Allt að spretta
Þetta fer vel af stað hjá þér en ný búr eru oft óstöðug þannig að ýmislegt getur gerst og best að gera bara ráð fyrir því.