Áfram með ljósmyndakeppnina.
Öllum skráðum spjallverjum er heimilt að taka þátt.
Þátttakendur skulu senda mér myndir eða link á þær í einkapósti eða í tölvupósti á fiskaspjall@gmail.com fyrir 22. oktober.
Merkið póstinn Ljósmyndakeppni XI ´07
Myndir skulu ekki vera stærri en 640x480.
Ég mun svo setja inn myndirnar nafnlaust þegar fresturinn er búinn.
Eins og vanalega má myndefnið vera hvað sem er fiskatengt, eina skilyrðið er að viðkomandi hafi tekið myndina sjálfur.
Skrautfiskur áskilur sér rétt til að nota myndirnar hugsanlega til kynningar á félaginu eða á annan hátt í starfsemi félagsins.
Ljósmyndakeppni XI
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
- Andri Pogo
- Posts: 5003
- Joined: 26 Mar 2007, 17:58
- Contact: