Rót Rodors og ribbaldarnir
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
Rót Rodors og ribbaldarnir
Hér er mynd af rótinni minni og tveimur síkliðum. Sá stærri er Cyphotilapia Frontosa úr Tanganyika vatni og sá minni er Melanochromis auratus úr Malawi vatni. Inni í rótinni liggur 17 sentimetra pleggi í felum.
Last edited by Rodor on 29 Oct 2007, 17:56, edited 1 time in total.
Ég keypti hana um leið og búrið í búðinni á móti Kringlunni, man ekki hvað hún heitir, ábyggilega dýra- eitthvað.
Þessi rót hefur aldrei litað neitt út frá sér.
Það er fullt af holum í henni og einhverju sinni tók ég hana upp úr og var búinn að vera með hana í nokkrar sekúndur þegar bótían lætur sig loksins detta úr henni. Bótían treður sér bara inn í holur sem rétt rúma hana og þarf svo að bakka út!

Ég fékk hana í Fiskó.
Heildarmynd já, ég er ekkert ánægður með heildarmyndina og þess vegna er hún ekki komin. Ég fékk mér fullt af plöntum í byrjun sumars og plantaði þeim aftast í búrið, sem lifandi bakgrunn, þær uxu vel og voru fljótar að ná yfirborði. Meðan ég var í sumarfríi þá höfðu síkliðurnar gengið verulega á þær og nú er eftir smá rótarskot.
Kannski ég svari bara eins gamall kall í verslun á Laugaveginum svaraði mér einu sinni. Ég ætlaði að kaupa af honum snuff, neftóbaksduft, það var þá nýbúið að banna sölu á því hérlendis.
Ég spyr því kallinn hvar snuffið sé. Og svarið var. "Það er á sínum stað"! Heildarmyndin er líka á sínum stað

Hann varð svona hjá mér. Hann hefur fengið HITH og svo er þetta svo vitlaust og gráðugt kvikyndi að honum er alveg sama þó hann tálgi á sér hausinn.Vargur wrote: Guttormur greyið hefur nú einhverntíman verið í slæmum höndum að mér sýnist, þú hefur sennilega (vonandi) fengið hann "notaðan".
Ég var með sjálfvirkan matara meðan ég var í fríi sem gaf mat í gegnum lúgu. Hann varð var við það þegar matarinn fór í gang og stökk alltaf upp í lúguna og tálgaði á sér hausinn. Þannig að hann getur sjálfum sér um kennt.
Það eru nú margir kallar með skurði á hausnum eftir fjöruga æskudaga. Þetta sést vel þegar við látum raka á okkur hausinn. Þú hlýtur að hafa fengið HITH í þinn haus Vargur
Já þeir eru alræmdir með þessi hopp sín óskararnir, þegar þeir fatta að maturinn kemur að ofan þá stökkva þeir eins og bjálfar, alþekkt er að þeir meiði sig á ljósum og búnaði í lokinu.
Einn óskarinn í fiskabur.is var svo gráðugur að leið og maður opnaði lokið þá stökk hann upp úr og ofan í fötu ef maður hélt henni fyrir neðan.
Í eitt skiptið var Guðmundur að sýna fólki hvernig lokið virkaði á búrinu og um leið og hann opnaði stökk óskarinn í fangið á honum.
Ég verð merkilega lítið var við Hith á mínum haus enda passa ég oftast hausinn, reyndar hafa farið nokkur spor í hann en allt náð að gróa vel.