Aðstoð með bardagafiska.
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
Aðstoð með bardagafiska.
Getur einhver frætt mig um hvernig og hvað maður á að gera til fá þá til að hrygna,var að fá mér 1 karl og 2 kerlingar og er með þetta í 25 lítra búri, á að vera með hreinsidælu, loftdælu og hvaða hitastig ef þarf hitara,og á að hafa þær allar saman eða ekki,sem sagt mig vantar upplýsingar um allt í sambandi við þetta frá A til Ö.
Karlinn á eftir að byrja á að drepa báðar kerlingarnar fyrir þér. Bardagafiskar geta ekki verið saman í búri nema rétt til að hrygna.
Lestu þetta:
http://www.bettatalk.com/breeding_bettas.htm
Lestu þetta:
http://www.bettatalk.com/breeding_bettas.htm
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Það eina sem ég veit um þetta er að það á helst ekki að vera loftdæla þar sem að það má ekki vera mikill straumur á yfirborðinu, það eyðileggur loftbóluhreiðrið. Í rauninni þarf ekki neitt nema hitara þar sem þessir fiskar geta lifað af verstu vatnsgæði því þeir ná í súrefnið frá yfirborðinu. Svo veit ég líka að það verður að vera lok á búrinu því þegar seiðin ná sér í loft þá má það ekki vera mikið kaldara en hitastigið í vatninu.
Þetta er allt rétt og gott, og það þarf í rauninni ekki hitara einusinni. Bara autt búr, með 10-20cm vatn, flotplöntur kannski og svo lok. Svo tekur maður kerlinguna þegar þau eru búin að hrygna, og karlinn í burt þegar seiðin byrja að synda.Maren wrote:Það eina sem ég veit um þetta er að það á helst ekki að vera loftdæla þar sem að það má ekki vera mikill straumur á yfirborðinu, það eyðileggur loftbóluhreiðrið. Í rauninni þarf ekki neitt nema hitara þar sem þessir fiskar geta lifað af verstu vatnsgæði því þeir ná í súrefnið frá yfirborðinu. Svo veit ég líka að það verður að vera lok á búrinu því þegar seiðin ná sér í loft þá má það ekki vera mikið kaldara en hitastigið í vatninu.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
- hafið bláa hafið
- Posts: 93
- Joined: 04 Feb 2007, 15:27
- Location: Reykjavík
Ég var alltaf að reyna að fá unga frá dverga gúramífiskunum mínum og mér var sagt að það væri mjög svipað að rækkta dvergagúramí og bardagafiska.
Maður hefur vattnið í 15 cm hæð og maður hefur hitan í 28 gráðum.
Maður lætur kallinn í og hann byrjar að gera hreyður svo þegar hann er búinn að því setur maður kelluna ofaní hjá honum. Hann kreistir hana svo en það getur samt drepið kelluna þannig að það væri gott að hafa auka búr til að hafa hana í til að jafna sig ef hún er nú ekki dauð.
Svo hugsar hann um eggin þar til að þau klekjast út og þá tekuru hann uppúr.
Þetta er bara í hausnum á mér svo ég man ekki allveg allt en það var einhvernvegin svona.