Ryksuga að breytast :S

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Ryksuga að breytast :S

Post by Sirius Black »

Jæja er búin að vera með búrið í gangi í um 3 vikur og ryksuguna í búrinu jafn lengi.

Núna upp á síðkastið hef ég tekið eftir skrítnum blettum á bakinu á henni sem stækka og eru samhverfir alveg yfir hrygginn, svona eins og O í laginu frá annarri hlið yfir á hina. Þannig að hún er ekki venjulega brún þar heldur aðeins ljósari. Þetta hefur verið að stækka á síðustu dögum og orðið núna svona samhverft í hring. Hún sýnir engin veikleikamerki, hamast við að sjúga allt eins og vanalega.
Vonandi er þetta ekki hvítblettaveiki eða eitthvað :shock: veit nefnilega ekkert hvernig hún lítur út :oops: En hef ekki hugmynd hvað þetta getur verið :wink:
Væri fínt ef að einhver hefði hugmynd um hvað þetta væri (og skyldi þetta röfl hjá mér :P ) eða gæti kannski sýnt mér myndir af hvítblettaveiki :oops: En eru það ekki bara litlar doppur eða? :oops:
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Myndir takk :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég segi eins og Keli, myndir takk.
Þetta er ekki blettaveiki, gæti verið einhverskonar fungus eða sár eftir einhvern sem er að nuddast í henni . Hvað er langt síðan þú skipir um vatn ?
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

Á eftir að taka myndir en þær koma vonandi á eftir.

En það er ekki langt síðan ég skipti um vatn, kannski svona tveir dagar og ég tek alltaf um 25-30% af vatni vikulega.
Var einmitt að pæla í þessu áðan á henni, er farin að halda að þetta hafi liggur við alltaf verið svona :shock: En ætla að koma með myndir á eftir ef að ég næ einhverjum myndum af þesssu hehe :P

Maður er svo stressaður, sér eitthvað hvítleitt á fisknum og maður heldur strax að þetta sé hvítblettaveiki hehe :P en skoðaði myndir af því í gær og þetta er pottþétt ekki það :) En held að enginn sé að nuddast í henni, hinir fiskarnir láta hana alveg vera :)
En kem með myndir seinna í dag og þá getið þið kannski sjúkdómsgreint hana ef að þetta er eitthvað svoleiðis :)
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Þetta hljómar bara eins og fungus... Er þetta eins og þunn mjólkurlituð filma?
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Getur verið að þú hafir sett of kalt vatn í búrið síðast ?
Stundum fá ancistur á sig ljósa fungus flekki ef þær hafa lent í kuldakasti.
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

Vargur wrote:Getur verið að þú hafir sett of kalt vatn í búrið síðast ?
Stundum fá ancistur á sig ljósa fungus flekki ef þær hafa lent í kuldakasti.
Nei ég held ekki, reyni alltaf að hafa það svona sirka jafnheitt og er í búrinu :)
En þetta fungus, er þetta þá einhver sveppur? Hvernig getur maður losnað við svoleiðis? Getur þetta líka farið á hina fiskana ef að þetta er það?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Fungus losnar þú við með salti eða funguslyfi en ég myndi ekki fara að gera neinar ráðstafanir nema þú sért viss um að þetta sé fungus.
Fungus smitast vanalega ekki á aðra fiska.
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

Hef ekki tekið mynd þar sem að þegar ég ætla að taka mynd þá er hún í felum hehe :P
En er farin að hallast að því að hún sé bara svona þar sem að í ákveðnum ljósskilyrðum þá sést þetta ekki :roll: Sést semsagt stundum og stundum ekki, fer bara eftir ljósinu.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Er þetta ekki bara liturinn á henni ?
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

Vargur wrote:Er þetta ekki bara liturinn á henni ?
Jú ég held það. Maður tók bara eftir þessi fyrir þarna nokkrum dögum en svo höfum við verið að skoða hana MJÖG reglulega :P og sjáum þetta stundum en svo þegar við lítum aftur þá sést þetta ekki. Þannig að þetta er örugglega bara liturinn á henni, maður hefur bara alltaf séð hana í réttu ljósi áður hehe :P
200L Green terror búr
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

ég held ég viti hvað þú átt við, ein lítil ancistra sem ég átti fyrir nokkrum mánuðum var líka svona, með einhverja ljósa flekki á henni..
Mér datt einmitt í hug að eitthvað væri að en hún er enn lifandi og líklega bara svona á litinn :?:
-Andri
695-4495

Image
Maren
Posts: 91
Joined: 03 May 2007, 20:11
Location: Hafnarfjörður/Reykjavík

Post by Maren »

Ég átti þrjár ancistrur sem voru allar svona flekkóttar. Stundum fóru flekkirnir og komu aftur. Eins og þetta sé eins konar "kynþroskaskeið" hjá þeim því þetta var akkúrat sá tími sem brúskurinn á eina karlinum byrjaði að myndast.
User avatar
pípó
Posts: 1172
Joined: 05 Apr 2007, 09:28

Post by pípó »

Eru það fiskarnir sem ég fékk hjá þér Maren ?
Post Reply