Page 1 of 2
Stærð á búri ?
Posted: 25 Nov 2007, 17:21
by Gaby
Posted: 25 Nov 2007, 17:55
by Vargur
Stórt ! Ef þú ætlar að hafa þessa fiska saman og fleiri til duga 400 lítrar eitthvað.
Það er kannski frekar málið að ákveða búrstærðina (eins stórt og hægt er) og vinna svo útfrá því.
Posted: 25 Nov 2007, 17:58
by Gaby
Já skil,
því að pabbi minn ætlar að smíða handa mér búr eins og ég vil, en mér langar ekki í of stórt búr,,
og þetta eru svona helstu fiskarnir sem mér langar að hafa í því,
Posted: 25 Nov 2007, 18:22
by Andri Pogo
iss fyrst kallinn er að bjóðast til að smíða hvaða stærð sem er, er um að gera og láta hann smíða yfir 1000L búr
Þá gætiru fengið þér tiger shovelnose en á endanum myndi hann samt éta hina.
Ef þú vilt ekki svona risabúr er alveg hægt að fá skemmtilega fiska í t.d. 400L búrið.
Aðal atriðið væri að sleppa tiger shovelnose, gætir þó fengið þér lima shovelnose í staðinn og wc og black ghost væru allir í góðum málum í 400L
Posted: 25 Nov 2007, 19:45
by Gaby
Posted: 25 Nov 2007, 19:54
by Andri Pogo
black ghost eru skemmtilegir, þarft bara að passa svolítið hverja þú setur með honum svona til að byrja með því þeir stækka hægt. Passa að setja ekki fiska sem gætu étið hann og að hann fái tækifæri til að éta svo hann svelti ekki, getur verið seinn að éta.
Posted: 25 Nov 2007, 19:58
by Gaby
Takk fyrir það
Hverja mælir þið svona sérstaklega sem gæti passað vel með black ghost
Posted: 25 Nov 2007, 20:23
by Andri Pogo
bara einhverja rólega / semi-grimma fiska sem eru ekki of gráðugir á mat og sem geta ekki étið hann.
Myndi t.d. ekki setja hann með síkliðum.
Minn er sáttur og étur vel, er með Polypterus-um, clown knife-um og fleirum.
Posted: 25 Nov 2007, 20:25
by Gaby
Posted: 25 Nov 2007, 20:38
by Vargur
Posted: 25 Nov 2007, 20:41
by Andri Pogo
í stuttu máli er það ætt fiska frá afríku sem hefur verið óbreytt frá tíma risaeðlanna, það eru um 17 tegundir eftirlifandi og flestar fáanlegar til einkaeignar, þó fáar tegundir hafa verið til hérna á Íslandi.
Þeir verða frá 30cm og uppí 100cm þó minnstu tegundirnar eru bara fáanlegar hér á landi.
Senegalus er algengastur.
Þeir eru ekki mjög grimmir og ganga vel með öðrum fiskum, þeir éta samt alla litla fiska.
Ropefish er líka náskyldur þeim, einn sinnar ættar.
nokkrar myndir af mínum
Polypterus palmas palmas
Polypterus senegalus
Lítill Ornatepinnis
Ropefish
Posted: 25 Nov 2007, 20:41
by Gaby
Getur black ghost líka verið með ropehead ?
Posted: 25 Nov 2007, 20:43
by Andri Pogo
já, black ghost ætti að geta verið með öllum minni polypterusum og ropefish.
Posted: 25 Nov 2007, 20:46
by Gaby
Posted: 25 Nov 2007, 20:47
by Inga Þóran
Posted: 25 Nov 2007, 20:50
by Andri Pogo
rope
fish eru til í fiskó, dýragarðinum og dýraríkinu.
polypterus senegalus eru til í fiskó.
polypterus ornatepinnis eru til í dýragarðinum.
black ghost eru til í dýragarðinum.
Posted: 25 Nov 2007, 21:37
by Gaby
Hvaða hita þola þessir fiskar
Posted: 25 Nov 2007, 22:05
by Andri Pogo
bara sama hita og allir aðrir venjulegir ferskvatnsfiskar, 24-26° er kjörhiti fyrir flesta
Posted: 25 Nov 2007, 22:10
by Gaby
Posted: 25 Nov 2007, 22:15
by Andri Pogo
já bara hvaða stærð af skölum sem er og hvaða ryksuga?
ef þú ert að tala um ryksugufisk skiptir það engu máli, það er ekkert nauðsynlegt að hafa ryksugur og black ghost étur þær líklega ekki.
Posted: 25 Nov 2007, 22:23
by Gaby
Er með Hoplosternum thoracatum
sem er c.a 10 cm og með einn brúsknef (kerlu) 5-6 cm
og nokkra skala sem eru frá 6 cm- 10 cm, er í lagi að setja þau í þetta búr með black ghost og þeim eða
Posted: 25 Nov 2007, 22:30
by Andri Pogo
já
Posted: 25 Nov 2007, 22:32
by Gaby
Posted: 25 Nov 2007, 22:34
by Inga Þóran
fer eftir því hvað búrið þitt á að vera stórt..
Posted: 25 Nov 2007, 22:35
by Gaby
Inga Þóran wrote:
fer eftir því hvað búrið þitt á að vera stórt..
400 lítrar,,
Posted: 25 Nov 2007, 22:35
by Inga Þóran
þá verður alveg örugglega ekki þröngt um þá..
Posted: 25 Nov 2007, 22:36
by Andri Pogo
nei auðvitað ekki, black ghost vill samt hafa góðan felustað.
Posted: 25 Nov 2007, 22:39
by Gaby
Okej, eins og hvað,
vitið þið um góðan felustað,
eins og hálfur blómapottur á hvolfi eða ?
Posted: 25 Nov 2007, 22:40
by Inga Þóran
gaby0702 wrote:Okej, eins og hvað,
vitið þið um góðan felustað,
eins og hálfur blómapottur á hvolfi eða ?
já til dæmis...eða rót..
Posted: 25 Nov 2007, 22:41
by Gaby
Inga Þóran wrote:gaby0702 wrote:Okej, eins og hvað,
vitið þið um góðan felustað,
eins og hálfur blómapottur á hvolfi eða ?
já til dæmis...eða rót..
Hvernig rót