tunnudælur?????

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
naggur
Posts: 494
Joined: 29 Aug 2007, 21:05
Contact:

tunnudælur?????

Post by naggur »

ok, ég er búin að fá drullu leið á interial dællum í litlum búrum og var að spá í að fá mér tunnudælu, vargur er búin að benda mér á 1 stk hjá sér en ég er svolítið efins hvort ég ætti að taka hana eða ekki. ástæðan er sú að ég veit ekki hvort hún er MJÖG hávaðasöm og hvernig það myndi virrka í 75l búr með ram og tetrum. er einhver teljandi háfaði í þeim og slepp ég við loftdælu?

ég nenni ekki að taka interial dæluna og hreynsa hana vikulega
german blue ram (4 stk.)
tetrurnar 11
taugaveiklaði perlugúraminn
gullrún gúrami
já og síkliðan sem ég hélt að væri dauð :) sem er núna DAUÐ
User avatar
Atli
Posts: 225
Joined: 18 Dec 2006, 05:57
Location: Reykjavík

Post by Atli »

Ég hef aðeins reynslu af tveimur tegundum af tunnudælum sem ég hef átt, sú fyrri var mjög gömul Rena XP2 og síðan AM-Top 3338 (að mig minnir). Báðar dælurnar voru mjög hljóðlátar en það kom mér á óvart hvað er gott að eiga við þessar Rena, auðvelt að kippa henni frá og skipta um í henni vatni og þrífa svampana.

Ég er líka viss um að hann Vargur er ekkert að benda þér á neitt drasl, allavegana hef ég ekki fengið slæma ráðleggingar frá honum en (og á líklegast aldrei eftir að fá). Svo ég held að það sé í lagi að kaupa af honum. Vertu bara viss um að það sé auðvelt að fá nýja svampa og filterefni í dæluna og að hún sé fyrir aðeins stærri búr svo að hún gæti notast þér áfram ef að þú færð þér stærra búr seinna meir.
Heilaþveginn af fiskum - Blessaður af vatni
User avatar
naggur
Posts: 494
Joined: 29 Aug 2007, 21:05
Contact:

Post by naggur »

alla vegan er kassin 75l og myndi fara upp í 150l dælu mynst, jamm vargurinn svíkur eingan það get ég sjálfur staðfest
german blue ram (4 stk.)
tetrurnar 11
taugaveiklaði perlugúraminn
gullrún gúrami
já og síkliðan sem ég hélt að væri dauð :) sem er núna DAUÐ
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ég er bæði með Rena og Eheim tunnudælur og þær halda ekki fyrir mér vöku.
Gott og auðvelt að þrífa þær.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Eins og ég sagði í búðinni þá myndi ég skella í búrið Rena
Xp 2 tunnudælu. Hún dælir 1050 l/klst og er með stillanlegum krafti þannig það þarf ekki að hafa áhyggjur af því fiskarnir fjúki bara um búrið.
Þær eru hljóðlátar og endingagóðar og að mínu mati er mest fyrir peningin í kaupum á Rena tunnudælu.
Svona tunnudæla er líka alltaf framtíðar eign, sérstaklega ef þú ætlar í stærra búr og svo eru þessar dælur fínar í endursölu ef þær aðstæður koma upp.
User avatar
naggur
Posts: 494
Joined: 29 Aug 2007, 21:05
Contact:

Post by naggur »

u got ya self a deal. hvað kostaði hún aftur? sendu verðið á ep
german blue ram (4 stk.)
tetrurnar 11
taugaveiklaði perlugúraminn
gullrún gúrami
já og síkliðan sem ég hélt að væri dauð :) sem er núna DAUÐ
Post Reply