Bardagafiskar???

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
kolla
Posts: 6
Joined: 03 Jan 2008, 19:56

Bardagafiskar???

Post by kolla »

getur einhver frætt mig um bardagafiska? :)
User avatar
Kitty
Posts: 581
Joined: 06 Jul 2007, 16:36
Contact:

Post by Kitty »

Bardagafiskur eða Betta Splendens er upprunalega frá Asíu nánar tiltekið frá Cambódíu og Tailandi. Upprunaleg heimkynni þeirra eru grunnvatnsvæði í Tailandi þar sem þeir lifa jafnvel í pinkulitlum pollum á þurkatímum. Ástæðan fyrir að þeir geta lifað í smáum pollum er að þeir hafa svokallað völundarhús sem gerir þeim kleyft að taka súrefni úr yfirborði vatnsins.

Bardagafiskar eru jafn misjafnir og þeir eru margir með hvernig gengur að hafa þá með öðrum fiskum. Það eina sem er vitað fyrir víst að gengur ekki er að hafa tvo karlkyns bardagafiska í sama búri því þeir munu að öllum líkindum berjast þar til annar drepst og þaðan hafa þeir nafið Bardagafiskur. Þegar þeir sjá annan karlfisk þenja þeir út flipa í kringum höfuðið,derra sig , reygja og leggja til atlögu. Þessa hegðun er hægt að kalla fram með því að setja spegil uppvið glerið á búrinu sem þeir eru í og þeir bregðast ókvæða við spegilmynd sinni.

Þegar bardagafiskar hrygna þá býr karlinn til loftbólu hreiður, svo kreistir hann kerlinguna þar til hún hrygnir og límir svo hrognin upp í hreiðrið og ver þau þar með ráðum og dáð.

Kröfuleysi Bardagafiska á aðstæður hefur gert það að verkum að þeir eru oft hafði í búrum sem vekja upp siðferðilegar spurningar um hvort að aðstæðurnar sem þeim er boðið uppá séu réttlætanlegar.

Er eithvað frekar sem þú vilt vita um bardagafiska þá endilega spurðu.
kolla
Posts: 6
Joined: 03 Jan 2008, 19:56

Post by kolla »

ok takk :)
bubbla
Posts: 1
Joined: 20 Jan 2008, 20:28

fjölgun bardagafiska

Post by bubbla »

Var að spá varðandi fjölgun bardagafiska, þá er bardagakallinn minn núna í þessu svokallaða "hrognunarástandi" og er alltaf að búa til hreiður, sem eru þó ekki stór, og mikla húð á yfirborðið en hann er í kúlu og einhverstaðar heyrði ég það að hann dræpi kellinguna undir eins ef maður setti þau saman í kúlu, er það rétt? Einnig langar mig til að vita hvort þau geti eignast afkvæmi í kúlu eða hvort það þurfi að vera í stærra búri.
kolla
Posts: 6
Joined: 03 Jan 2008, 19:56

Post by kolla »

já hann drepur hana undir eins það var allaveganna sagt mér og ég held að þú þurfir stærra búr eða hvað ertu annars með stórt búr? :)
Rós
Posts: 128
Joined: 24 Jan 2008, 18:15

Post by Rós »

Ég er akkurat á fullu að fræða mig um Bardagafiska og hef fræðst frekar mikið, þó ég treysti mér ekki að segja neitt spes um þá.

En ég reyndi samt að setja spegil upp við karlana mína (á 2 í sitthvoru Búrinu) og ekkert gerðist, en þeir eru líka misjafnir. Þó það virki ekki hjá mér þá veit ég til um að hægt sé að setja spegil hjá öðrum og þeir verða spinnigal hehe

En ég vildi endilega leyfa þér að sjá karlana mína þegar ég leyfði þeim að "hittast" http://www.brs.blog.is/blog/rosin/entry/453174/


Svo var einn sem var svo mikið æði að gefa mér link ( :oops: man nú ekki hver það var en er nú samt ennþá með hann í pósti hjá mér)

En endilega máttu fræðast um þá þarna, mér finnst þetta æði kríli.

http://www.aqualandpetsplus.com/Betta,%20Housing.htm

Alveg endalaust um þá þarna :-)
kolla
Posts: 6
Joined: 03 Jan 2008, 19:56

Post by kolla »

okeyy takk fyrir sorry hvað ég sendi seint ;)
Post Reply