Er einhver hér sem kannast við það að Ropefish ráðist á hvor annan? Ég var með einn í 110L búri og bætti við 3 nýjum Ropefish um daginn sem að hanga alltaf saman, en sá gamli virðist ekki kunna vel við nýja félagsskapinn og bítur óspart í síðurnar á þeim og ég tók eftir því áðan að einn þeirra var illa laskaður í framan Virðist hafa verið bitinn í framan og er orðinn hvítur í andlitinu og annað augað virðist vera laskað, komin einhverskonar himna yfir það. Er hræddur um að hann sé blindur á því. Ég flýtti mér að setja hann í sótthreinsaða einangrun og vona að hann jafni sig. Ætti ég að fjarlæga óeirðarsegginn og leyfa hinum að vera í friði eða sjá hvort að þeir vingist með tímanum?
Ég er með hella og holar hauskúpu og mikinn gróður í búrinu. Er hann svona aggressívur vegna þess að honum finnst sér ógnað? Verð að prófa að bæta við felustöðum