Geta skalar og discus verið saman í búri ?

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
forsetinn
Posts: 305
Joined: 10 Oct 2006, 13:32

Geta skalar og discus verið saman í búri ?

Post by forsetinn »

Hafið þið prófað að vera með skala og discus saman í búri ?
Hvernig virkar það ?
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Menn hafa prófað það en hvort það sé hollt fyrir discusin veit ég ekki og mig blóðlangar til að prófa það sjálfur en ég er sjálfur með skalla og silver dollara en þetta eru aggresivir fiskar og rifa i sig matin á meðan discusin er hlédrægur og borðar rólega.
Láttu mig endilega vita ef þú kylir á þetta hvernig komi til með að ganga. :)
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Það er ekki mælt með sköllum og discusum saman, meðal annars útaf einhverjum pestum sem skallar bera og eru ónæmir fyrir, en discusar geta farið illa útúr.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Sammála Kela.
Ég mundi td. ekki taka sénsin á þessu sjálfur en ég veit um tvo aðila se eru með diskus og skala saman, í báðum tilfellum gengur vel en það eru meiri líkur á að diskarnir grípi einhverjar pestir og ég mundi ekki taka sénsinn með svona dýra fiska.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ég hef lesið um að þetta sé ekki góð blanda, einmitt útaf einhverjum sjúkdómum sem skallarnir geta borið.
Svavar
Posts: 385
Joined: 03 Sep 2007, 08:51
Location: Sauðárkróki

Post by Svavar »

Úlfur Úlfur er oft sagt og margt hefur verið ritað um þennan koktel með að blanda saman diskusum og sköllum, sitt sýnist hverjum. þetta með að skallar geti borið "einhverja" sjúkdóma hefur mér synst að í flesum tilfellum sé verið að tala um sníkjudýr þar að segja tálknorma, invortis orma, coastíu, og hugsanlega einfrumunga í þörmum, þetta ætti að vera hægt að leysa með að baða fiskana áður en maður sleppir þeim saman.
Hinsvegar er það atferlið sem skallarnir (náfrændur diskusana) hafa sem hefur valdið því að ég er á þeirri skoðun að þeir passa ílla saman og það er matgræðgi að verstu sort (reyndar fynst mér ekkert eins gaman og að fóðra skalla hóp) hættan er einfaldlega sú að þeir aféti diskuanan og þó að það sé "ullu" fóðrað þá er það einkenni skalla að þeir hjóla hreinlega í fóðrið og þó svo að þeir séu búnir að éta sig sadda þá geta þeir einfaldlega með þessu atferli fælt diskusana frá fóðrinu og stressað þá upp sem er oftar en ekki ávisun á einfrumunga síkingu hjá þeim. Sumir hava reynt þetta með ok árangri aðrir hafa látið þetta vera, ég hef valið þrátt fyrir alla mína skalla að láta þetta vera og hef ekki í higgju að breyta því, og mæli frekar með því að menn hafi þessa frændur í sitt hvoru búinu.
Diskus og aðrir skrautfiskar.

Heimasíða http://www.facebook.com/#!/pages/Skraut ... 2348325143
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Vargur wrote:Sammála Kela.
Ég mundi td. ekki taka sénsin á þessu sjálfur en ég veit um tvo aðila se eru með diskus og skala saman, í báðum tilfellum gengur vel en það eru meiri líkur á að diskarnir grípi einhverjar pestir og ég mundi ekki taka sénsinn með svona dýra fiska.
Afhverju ertu sammála kela ef þú veist af sumum sem gengur vel með skalla og discusa?
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég er sammála honum af því skalar og diskusar eiga ekki samleið að mörgu leiti og reyndar bendir Svavar á helstu ástæðurnar.
Auðvitað er margt hægt með góðum vilja og eins og ég segji þá veit ég dæmi þess að fólk hafi þessa fiska saman, ég persónulega mundi samt ekki taka sénsinn.
Post Reply