Til sölu Convict par.

Hér getur þú auglýst til sölu eða óskað eftir fiskum og fiskavörum

Moderators: Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Til sölu Convict par.

Post by Ásta »

Til sölu er Convict par sem hrygnir látlaust.
Verð: 1000.-

Uppl. hér eða í ep.
User avatar
Hanna
Posts: 478
Joined: 10 Feb 2008, 16:55
Location: Álaborg Danmörk

Post by Hanna »

hæ er ný hérna hvernig convict eru þetta?? (eru ekki annars margar tegundir af convict?) og hvað eru þau stór :D er möguleiki á mynd :?:
What did God say after creating man?
I can do so much better
Atli_Piranha
Posts: 110
Joined: 10 Aug 2007, 18:05
Location: Reykjavík

Post by Atli_Piranha »

hversu stórir eru þeir, áttu mynd??
Kveðja
PiRaNhA
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Þetta er þessi venjulegi röndótti og þau eru meðalstór.
Image
Mynd tekin af netinu
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Atli, þú stekkur bara yfir á 6 og skoðar :wink:
User avatar
Hanna
Posts: 478
Joined: 10 Feb 2008, 16:55
Location: Álaborg Danmörk

Post by Hanna »

hvað þurfa þau ca stórt búr??
What did God say after creating man?
I can do so much better
Atli_Piranha
Posts: 110
Joined: 10 Aug 2007, 18:05
Location: Reykjavík

Post by Atli_Piranha »

já það er spurning, er með 12 stk seiði núna sem að á að vera fóður en er líklega bara með svona mikla letingja sem að nenna ekkert að elta þá (vonandi éta þér þá á endanum) og var að spá í hvort að eitthvað vit væri í að hafa par af convict í búrinu sem að myndi bara framleiða handa hinum dýrunum að éta hehe
Kveðja
PiRaNhA
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Hanna, ég myndi ekki hafa parið í minna en 40 ltr.

Atli, þau passa vel upp á seiðin svo það yrðu líklega einhver læti þegar aðrir ætluðu að fá sér snakk.
Reyndar endar það alltaf þannig hjá mér að allt hverfur, veit ekki hvort þau drepast eða eru étin.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Enn til sölu.
User avatar
lilja karen
Posts: 536
Joined: 14 Oct 2007, 21:21
Location: Akureyri. 17 ára

Post by lilja karen »

hvað geta þau verið lengi í 60l ?
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Til æviloka.
User avatar
lilja karen
Posts: 536
Joined: 14 Oct 2007, 21:21
Location: Akureyri. 17 ára

Post by lilja karen »

geta þau verið með kuðungaslíðkum?
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

lilja karen wrote:geta þau verið með kuðungaslíðkum?
nei, það borgar sig ekki þar sem kuðungasíkliðurnar eru svo litlar.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
drífa
Posts: 44
Joined: 01 Dec 2007, 14:18

Post by drífa »

Hvað með gubby, geta þeir verið saman ?
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

drífa wrote:Hvað með gubby, geta þeir verið saman ?
nei.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ég hef ákveðið að selja bæði pörin, þetta eru alltof kraftmiklir durgar sem félagar fyrir svona litlar síkliður.

Image
Þetta er karl ca. 10 cm
Image
Og þetta er spúsa hans, kannski 6 cm




Image
Þetta er hinn karlinn, ca 6-8 cm
Image

Er til í að skoða skipti á Tanganyika síkliðum.
Og kerlan á móti, hún er kannski 4-5 cm, smá en kná, síhrygnandi.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Þetta er enn til sölu.
Verðið er ekki heilagt, ég vil ekki þurfa að slátra þeim. Er þessvegna til í að taka pulsupakka er kornfleks sem greiðslu 8)
guns
Posts: 359
Joined: 30 Nov 2006, 01:04
Contact:

Post by guns »

Er með tvö pör sjálfur ;) annars hefði ég bætt við einu pari... stórskemmtilegir fiskar :)
User avatar
lilja karen
Posts: 536
Joined: 14 Oct 2007, 21:21
Location: Akureyri. 17 ára

Post by lilja karen »

eru þessir ekki stærri geta par af þeim verið í 60l ?
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Já, þú getur haft par í 60 ltr. en ekki mikið meira.
Post Reply