Nú er maðurinn búinn að næla sér í 400 lítra búr juwel náttúrulega og ég er búinn að vera kanna netið í ca viku og búinn að búa til smá lista yfir fiska sem ég er spenntastur fyrir vildi bara kanna hvort þetta myndi ganga upp
¨
*4-6 eldmunnar
*2 óskarar
*par af jack dempsey
*1-2 green terror
*par af convikt
geri mér fulla grein fyrir að green terror verður mjög árasgjarn þegar hann verður stór.
Óska sem flestum svörum.
Fiskaval í 400 lítrana
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
Mér líst ágætlega á þetta, það er ekkert sem ég mundi breyta sérstaklega nema eftir mínum eigin smekk.
Ég legg til að þú byrjir bara með sem flestar tegundir og þá fiska í minni kantinum og fækkir svo jafnóðum þegar þú sérð hvaða fiskar heilla þig mest.
Ath að þessir fiskar stækka hratt og það eru ekki nema nokkrir mánuðir þar til þarf að taka fyrstu grisjun í búrinu.
Ef búrið á að ganga vel og vera skemmtilegt þá borgar sig ekki að hafa það yfirfullt af fiskum.
Ég byrjaði td með margar tegundir í 400 lítrum og er að enda með þrjár amerískar sikliður í búrinu um 1 1/2 ári síðar.