
En það var alveg hrikalega erfitt að stilla skápinn undir svo að hann yrði réttur en svo þegar allt vatn var komið í búrið þá sáum við að búrið er skakkt


En jæja maður náttúrulega setti saman þennan skáp sem er svona erfitt að stilla og svo var sett búrið ofan á og ég ákvað að hafa lifandi plöntur í þetta skiptið og keypti svona næringu til að setja undir mölina og hérna er þetta svo komið í

Svo var mölin sett ofan í, sem var búið að skola vel, eins gaman og það er


En ég setti skrautið sem að var í hinu búrinu í þetta líka þar sem að allavega tveir fiskar hafa tekið ástfóstri við þennan hlut

Síðan var búrið fyllt, allt bara með 10L fötum, tók svona smá tíma hehe.

Svo var komið öllum dælubúnaði sem eru bara rör frá tunnudælunni en það gekk erfiðlega þar sem að það týndust sogskálar í draslinu hérna þannig að þetta hangir svona einhvern veginn þarna. En svo var einnig hitarinn settur sem að ég held að virki ekki eins og hann á að gera.

Síðan voru perurnar settar í og það var ekkert létt, en svo las maður bæklinginn sem að fylgdi með og þá skýrðist þetta allt



Sést reyndar ekki mikill mundur á myndunum sem að voru teknar með ljósið á og svo án. En búrið verður alveg svakalega fjólublátt eða svona næstum því bleikt með ljósin á

En svo eru þarna 5 litlar plöntur sem að eru einhverjir mini twisterar sem ég fékk hérna á spjallinu


