Sniglar

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Tappi
Posts: 92
Joined: 24 Aug 2007, 14:10
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Sniglar

Post by Tappi »

Ég keypti mér búr fyrir nokkru og notaði áfram sandinn sem var í því. Ég sá 3 stóra snigla áðan og er að velta því fyrir mér hvort ég eigi að týna þá úr búrinu. En samkvæmt uppl. á öðrum þræði hér eru þetta vandræðagemmsar.

Þessi mynd er tekin af þessum þræði - http://www.fiskaspjall.is/viewtopic.php ... ht=sniglar og frá henni Vigdísi

Image

Á ég ekki að henda þessum sniglum út ef ég næ í skottið á þeim ?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Hentu þeim.
Reyndar ef þú sérð nokkra þá er það bara toppurinn á ísjakanum, þeir eru oftast mest á ferðinni á nóttinni.
Þú gætir prófan að kveikja ljósið eftir að það hefur verið slökkt í klukkutíma og séð hvort mikið sé af þeim.
Tappi
Posts: 92
Joined: 24 Aug 2007, 14:10
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Post by Tappi »

Ég sá þá eimmitt af því ég var búin að slökkva. Kveikti núna áðan og týndi 6 stk en missti einn. Ætli þetta verði ekki síðasta verk dagsins næstu daga - að týna snigla, maður ætti kannski að halda matarboð og hafa snigla í forrétt :)
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Ég er með hrúgu af þessum djöflum í búrinu hjá mér... Þeir bögga mig þó lítið þar sem þeir grafa sig í sandinn á daginn og koma upp bara á nóttunni. Þá er hinsvegar allt krökkt :shock:


Ég held að það sé nær ómögulegt að losna við þá alla nema rústa búrinu, og því hef ég ekki nennt.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Ef þú ert með plöntubúr með viðkvæmum plöntum þá myndi ég taka hann úr en ef þetta er búr bara með fiskum eða harðgerðum plöntum þá gerir þessi snigla tegund ekkert annað en að losa þig við þörunga
Kv. Jökull
Dyralif.is
Tappi
Posts: 92
Joined: 24 Aug 2007, 14:10
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Post by Tappi »

Ég er reyndar með eitthvað af plöntum en ég veit ekkert hvað þær heita né hversu viðkvæmar þær eru. Þær þola allavega litlu brúnu sniglana.

Ég er að vinna í því að gera þær betri en þær voru orðnar svakalega flottar í gamla búrinu og uxu mjög vel.

Ég ætla allavega að hirða þá næstu kvöld og sjá svo til.

Takk fyrir svörin drengir.
RagnarI
Posts: 440
Joined: 14 Nov 2007, 15:40
Location: 107 Reykjavík

Post by RagnarI »

hvernig líta ramshorn sniglar út þegar þeir eru litlir ég fann nefnilega snigil í búrinu mínu og han lítur út eins og brúnn ramshorn snigill ca 3mm í þvermál kuðungurinn.

fannst það samt frekar skrýtið þar sem plönturnar er ég búinn að eiga í laaaaangann tíma og aldrei séð snigil áður
96L Samfélagsbúr
16L Afrískur Klófroskur
2l Rækjur
eyrunl
Posts: 292
Joined: 03 Apr 2008, 22:02
Location: Kópavogur/Rvk

...

Post by eyrunl »

hvernig komast þeir í búrið?... :S
Eyrún Linda
User avatar
Piranhinn
Posts: 917
Joined: 22 Apr 2007, 15:55
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Re: ...

Post by Piranhinn »

eyrunl wrote:hvernig komast þeir í búrið?... :S
Komast t.d. þegar þú kaupir þér fisk og færð laumufarþega með (snigil)
sem að þú greinir ekki vegna stærðar, svo koma þeir í ljós þegar þeir eru orðnir stærri.
eyrunl
Posts: 292
Joined: 03 Apr 2008, 22:02
Location: Kópavogur/Rvk

...

Post by eyrunl »

já ok ég skil :) og það eina slæma við þá er í rauninni bara að þeir éta plöntur og fjölga sér hratt? þeir eru ekkert eitthvað skítaplága?... eru þeir tvítóla?... :S
Eyrún Linda
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Algengast er að fá snigla með plöntum sem maður kaupir, þá fær maður venjulega eggjaklasa á laufblöðunum og svo tekur maður eftir sniglum eftir nokkrar vikur.

Þetta eru oftast frekar meinlaus kvikindi, bara ljótt að sjá þetta, sérstaklega þegar það er komið mikið af þeim.

Ég held að flestar tegundir þurfi 2 einstaklinga til að fjölga sér. Sumar eru tvítóla en geta ekki frjóvgað sjálfa sig, svo t.d. með eplasnigla, þá þarf maður karl og kerlingu. Og svo eru til sniglar sem geta frjóvgað sjálfa sig.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Post Reply