Jæja nú þegar ég var með 140l búr laust þá keypti ég með gúbbífiska (5kvk og 3kk). Ég setti eina gúbbíkellingu í gotbúr (fljótandi í búrinu) en svo þegar ég slökkti ljósin var hún ennþá í búrinu en svo þegar það er búið að vera slökkt í svona 2 klukkutíma og ég ætlaði að taka myndir (nightshots) hafði hún hoppað aftur í búrið svo að ég setti hana í búrið aftur og eftir stutta stund hafði það sama gerst
Hvað á ég að gera, fá mér nýtt flotbúr?
Af hverju gerir hún þetta?
Bara illa upp alin hjá þér Þegar ég var með seiði í flotbúri þá stukku fiskarnir stundum upp í það, sérstaklega zebra danoarnir en líka gúbbíkerlingin. Smá panikk að ná þeim uppú aftur en þeir náðu ekki að éta neitt.
Þú bara verður að vera með flotbúr með loki - gúbbíkerlingar gera þetta oft, enda engin ástæða til að hanga í einhverju litlu leiðinlegu búri ef maður getur stokkið smá og komist í stórt búr
Ég setti bara plastskilrúmið sem fylgir yfirleitt með flotbúrunum ofan á sem lok og einnig grindina úr öðru flotbúri... best að gera eikkað slíkt bara: lok, lok og læs