Getur salt aukið þrýsting í tunnudælu?

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Rodor
Posts: 935
Joined: 29 Dec 2006, 13:39
Location: Reykjavík

Getur salt aukið þrýsting í tunnudælu?

Post by Rodor »

Ég setti um hálft kíló af salti í 210 lítra búr í gærkvöldi. Í morgun var komið vatn tölvert fram á gólf og kom það úr Rena XP3 tunnudælunni. Ég hafði einnig hreinsað dæluna fyrr um kvöldið.

Ég er að velta því fyrir mér hvort það sé möguleiki á því að þrýstingur aukist inni í dælunni við það að skella salti beint út í búrið.
Ég tók dæluna strax úr sambandi og tengdi hana ekki fyrr en um hádegisbilið í dag og enginn leki er sjáanlegur núna.
Hvað segja aðrir hér, hafið þið lent í einhverju svona eftir saltbætingu?
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ég hef ekki heyrt þetta áður.
Ertu handviss um að þú hafir lokað dælunni nægilega vel eftir þrifin? Eða þá að hún sé nógu þétt?
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
Rodor
Posts: 935
Joined: 29 Dec 2006, 13:39
Location: Reykjavík

Post by Rodor »

Nei, ég er ekki handviss, en nokkuð viss um að hún hafi verið vel lokuð. Þegar ég tek dæluna úr sambandi þá lokast sjálfkrafa fyrir vatn frá búrinu, þetta er líklega svoleiðis í flestum tunnudælum. Það sem kom mér á óvart þegar ég tók stykkið sem slöngurnar eru festar við frá dælunni, það myndast smá skál í lokinu þegar stykkið er komið frá, var það hve mikið vatn var þar miðað við áður.

Ég er búinn að senda spurnigu inn á Vísindavefinn varðandi þetta. Ég pósta svarinu hér þegar það kemur. Þarf líklega að bíða í ár eftir svari þaðan.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Rodor wrote:Ég er búinn að senda spurnigu inn á Vísindavefinn varðandi þetta. Ég pósta svarinu hér þegar það kemur. Þarf líklega að bíða í ár eftir svari þaðan.
Það er eins gott að hafa góða biðlund :lol: en það verður fróðlegt að sjá hvað þeir segja.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Þar sem þú talar um að það sé vatn ofan í hólfinu þar sem slöngu tengið fer í, þíðir það að hausinn á dælunni hefur alveg lokast nægilega vel en ekki hjá slöngu tenginu, þar eru litlir O-Hringir/þétti hringir sem geta smitað vatn ef smá óhreinindi eru á þeim, við það byrjar hausinn á dælunni að fyllast af vatni

Svona dælur þola hellings þrísting þannig að saltað vatn hefur lítið sem engin áhrif á dæluna :)

Lykil atriðið við að setja tunnudælu saman eftir þrif er að skola O-hringina/Þétti hringina vel og nudda þá smá, og skipta út þegar þeir eru farnir að morkna
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Rodor
Posts: 935
Joined: 29 Dec 2006, 13:39
Location: Reykjavík

Post by Rodor »

Squinchy wrote:Þar sem þú talar um að það sé vatn ofan í hólfinu þar sem slöngu tengið fer í, þíðir það að hausinn á dælunni hefur alveg lokast nægilega vel en ekki hjá slöngu tenginu, þar eru litlir O-Hringir/þétti hringir sem geta smitað vatn ef smá óhreinindi eru á þeim, við það byrjar hausinn á dælunni að fyllast af vatni

Svona dælur þola hellings þrísting þannig að saltað vatn hefur lítið sem engin áhrif á dæluna :)

Lykil atriðið við að setja tunnudælu saman eftir þrif er að skola O-hringina/Þétti hringina vel og nudda þá smá, og skipta út þegar þeir eru farnir að morkna
Takk kærlega fyrir góðar upplýsingar :wink:
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Ég hef enga trú á því að þetta sé saltinu að kenna. Giska frekar á einhver óhreinindi eins og squinchy segir.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Post Reply