Næturlýsing á fiskabúri

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
hlb
Posts: 70
Joined: 16 Aug 2008, 20:25

Næturlýsing á fiskabúri

Post by hlb »

Bara ég aftur :roll: Er að spá í lýsingu hjá fiskum yfir nóttina. Þar sem búrið mitt er, er algert myrkur þegar loftljósið í herberginu er slökkt. Er betra að hafa týru hjá fiskunum, eða er í lagi að hafa myrkur? Hvað finnst fiskunum betra?
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Afhverju spyrðu þá ekki bara af því ? :lol:
Kv. Jökull
Dyralif.is
hlb
Posts: 70
Joined: 16 Aug 2008, 20:25

Post by hlb »

Squinchy wrote:Afhverju spyrðu þá ekki bara af því ? :lol:
:lol: Fiskarnir mínir eru eins og konan mín, skilja mig bara ekki :shock:
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ég myndi bara hafa slökkt.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

ég veit svosem ekki hvor er æskilegara en ég hef alltaf smá ljós hjá mínum, það er næturstilling á stóra búrinu og hef smá ljós kveikt á ganginum hjá hinum búrunum.
-Andri
695-4495

Image
hlb
Posts: 70
Joined: 16 Aug 2008, 20:25

Post by hlb »

Ásta wrote:Ég myndi bara hafa slökkt.


Kannski, það er bara svo svakalega dimmt!

Fann þetta á google

"Some aquarist have a night light in the aquarium. It is called lunar light too. In the nature, such light is normal for fish because at night it is not as dark as in a room"

Þar sem lokið á búrið er í smíðum, er spurning hvort maður setur ekki tvö ljósastæði í það.
User avatar
Hrafnkell
Posts: 321
Joined: 16 Mar 2007, 21:03
Location: Kópavogur

Post by Hrafnkell »

Nú veit ég ekki hvernig ljós þú ætlar að nota en ég myndi halda að ljós frá 1 flúrperu, þe helmingnum af ljósi búrsins væri allt allt of mikið ljós til að láta loga allan sólarhringinn.

Ef þú ert að smíða lok á 120L búrið, þá myndi ég hiklaust hafa amk 2 flúrperustæði. Ég er með 4 á 120L (en ég er að gera góðar aðstæður fyrir gróður).

Til eru elektrónískar ballestir sem hægt er að dimma, það er þannig sem menn útfæra næturljós venjulega.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Víst þú ert að smíða lokið sjálfur þá myndi ég ekki setja venjulegt ljósastæði fyrir næturljós, farðu frekar í verslunina Íhlutir og fáðu þá til í að aðstoða þig við að setja saman bláa díoðu lýsingu

Eða fáðu þér raka þétt Neon ljós sem má setja undir bíla, er með svoleiðis á 170L búrinu mínu
Image
Kv. Jökull
Dyralif.is
hlb
Posts: 70
Joined: 16 Aug 2008, 20:25

Post by hlb »

Squinchy wrote:Víst þú ert að smíða lokið sjálfur þá myndi ég ekki setja venjulegt ljósastæði fyrir næturljós, farðu frekar í verslunina Íhlutir og fáðu þá til í að aðstoða þig við að setja saman bláa díoðu lýsingu

Eða fáðu þér raka þétt Neon ljós sem má setja undir bíla, er með svoleiðis á 170L búrinu mínu
Image
Þetta er fín hugmynd! Ekki spurning, byrja á því að tala við snillingana í Íhlutum :)
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Annars er mun meira mál að gera þetta sjálfur úr díoðum ef þetta er stórt búr og mun kosta mun meira heldur en að kaupa Neon peru í N1 Sérverslunninni (gamla Bílanaust)

Þarft að eiga lóðbolta og fleirra til að gera díóðu lýsinguna góða

Spennubreytir á góðu verði finnur þú í versluninni Örtækni
Kv. Jökull
Dyralif.is
animal
Posts: 930
Joined: 07 Aug 2007, 22:49

Post by animal »

hlb wrote:
Ásta wrote:Ég myndi bara hafa slökkt.


Kannski, það er bara svo svakalega dimmt!

Fann þetta á google

"Some aquarist have a night light in the aquarium. It is called lunar light too. In the nature, such light is normal for fish because at night it is not as dark as in a room"

Þar sem lokið á búrið er í smíðum, er spurning hvort maður setur ekki tvö ljósastæði í það.

Held að fiskarnir séu ekki myrkfælnir, þannig að þér er alveg óhætt að hafa slökkt
Ace Ventura Islandicus
Post Reply