Lax í fiskabúrum

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Fetzer
Posts: 44
Joined: 28 Jan 2007, 18:30

Lax í fiskabúrum

Post by Fetzer »

Ég hef verið að velta fyrir mér hvort það sé ekki séns að hafa lax eða bleikju , regnbogasilung eða bara urriða í 550l fiskabúri! hefur enginn reynt nýlega?

eg veit að pabbi var með þetta þegar hann var ungur en svo bara slátraði félagi pabba pabbaþeim ,, (vinur afi) og át þá þegar pabbi var í vinnuni haha :o
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég held að það sé ekkert stórmál ef kælibúnaður er í búrinu og góður hreinsibúnaður eða sírennsli.
550 l eru þó sennilega ekki stórt fyrir þessa fiska.
Það er talvert af fiskabúrum með kaldvatnsfiskum, bæði ferskvatns og sjávar hér á landi í ýmsum stofnunum osf. td. í Náttúrugripasafninu í Kópavogi og Húsdýragarðinum. Ég hef reyndar aldrei kíkt á þetta, kannski er kominn tími til.
Fetzer
Posts: 44
Joined: 28 Jan 2007, 18:30

Post by Fetzer »

Vargur wrote:Ég held að það sé ekkert stórmál ef kælibúnaður er í búrinu og góður hreinsibúnaður eða sírennsli.
550 l eru þó sennilega ekki stórt fyrir þessa fiska.
Það er talvert af fiskabúrum með kaldvatnsfiskum, bæði ferskvatns og sjávar hér á landi í ýmsum stofnunum osf. td. í Náttúrugripasafninu í Kópavogi og Húsdýragarðinum. Ég hef reyndar aldrei kíkt á þetta, kannski er kominn tími til.

já það væri nett að fá allvegana að sjá hverning þetta gengur, myndir og svona ef eitthver er að gera þetta hehe sem eg efast um :D
User avatar
Varlamaður
Posts: 1221
Joined: 06 Nov 2006, 16:02
Contact:

Post by Varlamaður »

Silungar hafa td. verið settir í litlar tjarnir við hús á höfuðborgarsvæðinu og haldið þar sumarlangt. Ég veit ekki hvaða lítrafjöldi er í þessum tjörnum en sumar þeirra hafa varla verið yfir 500 lítrar.
Ég sá einnig laxa í litlum tilbúnum polli við laugarvatn einhverntaíman.
Post Reply