Hvað eru gubby lengi með seiðin

Guppy, endler, platy, sverðdragarar og aðrir gotfiskar

Moderators: Elma, Vargur

Post Reply
Darrih
Posts: 1
Joined: 25 Nov 2008, 13:43

Hvað eru gubby lengi með seiðin

Post by Darrih »

Vill einhver segja mér það.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

21-30 daga.
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Post by Bob »

ok nennti ekki að búa til nýjan þráð enda algjörlega óþarfi fyrir nýja spurningu..

Þú segir að þær séru með seiðin í 21-30 daga. ok þegar ég fékk gúbbý kelluna mína fyrstu þá var hún ágætlega feit... viku seinna enþá feitari og svört aftast við gotholuna

Núna er liðinn rétt rúmur mánuður síðan ég fékk hana og ekkert komið enþá..
Ætti ég að gera einhvað.? setja hana í fötu inní lokaðan skáp í nokkra klst eða bara láta hana vera? hún er fáranlega feit miðað við nýju kellinguna og fyrir sona viku lá hún bara á botninum og inná milli synti hún upp og niður eftir glerinu og svo bara stopp á botninum eða við yfirborðið...

What should I do?
Ekkert - retired
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

gotfiskar, eins og guppy og molly t.d. geta haldið í sér seiðinum ef kerlurnar eru stressaðar. Gott er að setja þær í fötu, upp í skáp, með kannski smá gróðri í og auðvitað vatni. Því hærri uppi sem fatan er, því betra, hiti leitar upp á við og hitar í leiðinni vatnið í fötunni.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Post by Bob »

og þar sem maður er ekki með hitara í fötuni. hvað ma þá vera með hana lengi í fötunni áður en maður þarf að skipta um vatn? eða þolir hún alveg að vatnið sé við stofuhita bara?
Þarf að taka vatnið úr búrinu eða bara beint úr krana?
Ekkert - retired
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

50/50 bara. Fatan verður að vera hrein og ónotuð. Fer eftir stærð fötunnar. 10L fata dugar líklega í viku áður en þú þarft að skipta um vatn. Þarft ekkert endilega að gefa fóður á meðan þú ert með fiskinn í fötunni.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Post by Bob »

en hvað með að nota bara vatnskönnu. sem er nokkra lítra? hefur bara verið notuð undir vatnaskipti í búrinu.

þarf ekkert að gefa seiðunum strax eða fljotlega eftir að þau koma?

og þarf ekki að hafa mömmuna í eyrnapinnaboxi eða einhverskonar gotbúri svo hún éti ekki seiðin?
Ekkert - retired
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

ég setti einu sinni guppy kerlingu í lítið glas yfir nótt, hélt að hún væri með bloat og ætlaði að gefa henni smá séns áður en ég sturtaði henni. Um nóttina gaut hún um 30 seiðum.

Ef það er dimmt hjá henni þá á hún erfiðara með að sjá seiðin og getur þessvegna ekki étið þau. Fylgstu bara með, hvort það koma seiði og taktu þau jafnóðum, best að hafa þau í netseiðabúri sem þú hefur í aðalbúrinu.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Post by Bob »

Allright. settum 50/50 vatn í vatnskönnuna og settum hana uppí skáp inní eldhúsi. vonum að þetta hjálpi greyinu einhvað. henni virtist nú samt ekkert lýtast á þetta hehe. nú kikir maður bara á hana aftur í fyrramálið og ef einhvað er komið fer maður og reddar sona netabúri. eða setur bara l´tið plastbox í búrið. annars munu skalarnir, black ghostinn og bardagafiskurinn fá hlaðborð O.o
Ekkert - retired
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Post by Bob »

Jæja. þar kom að því. settum gúbbý kelluna feitu í krúsina í gær uppí skáp. svo þegar við vöknum í morgun er hún orðin grönn og fín og enginn svartur blettur á henni. og rúmlega 20 lítil seiði syndandi um allt. húnhefur greynilega náð að éta helling þrátt fyrir myrkrið :s

en 20+ er skárra en ekki neitt segji ég bara. verst að ég get ekki slept greyjunum næstum því strax útí búrið þar sem að þetta verður ekkert nema smá biti fyrir skalana og Black ghostinn og bardagakallinn. :s

ætti maður að fjárfesta í sona gotbúri eða einhvejru álíka?
Ekkert - retired
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Gotbúr eru amk ansi mikið betri en litlar krukkur ;)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Post by Bob »

myndi kanski ekki segja litil krukka. er í sona 3-4L vatnskönnu. en já. skil þig. þetta er bara fyrsta gotið hjá okkur ever. væri ekkert á móti því að nokkur lifðu af... þarf ekki sér fóður undir þessi kríli? þetta er ekkert nema augun og "hali" hehe
Ekkert - retired
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Artemia, fersk, frosin eða frostþurkuð eða bara fínmuldar flögur.
Passaðu bara að gefa ekki of mikið.
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Post by Bob »

ok. s.s. í lagi að gefa þeim flogurnar. will do .. er að fara í dýragarðinn núna að kaupa búr undir þau. sé hvort maður komi kanski ekki bara heim með sér fóður líka :)

takk fyrir alla hjálpina :)
Ekkert - retired
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Post by Bob »

Jæja. ég ´tok semsagt seiðin úr könnuni og setti í sér gotbúr og tók gubbý kelluna frá aftur og setti inní skáp aftur. núna er hún búin að vera þar í allan dag og ég áhvað að kíkja á hana en ekkert komið. getur verið að 23 stk af seiðum sé það eina?

fynst það frekar lítið miðað við þær tölur sem maður hefur heyrt....

þegar ég setti hana aftur í könnuna þá var hún enþa eins og hún væri pínu feit og með smá svart aftast. en svo núna er hún jafn feit svosem en ekki með neitt svart en búin að skíta slatta...

Er þetta þá bara búið eða á e´g að hafa hana einhvað lengur þarna? og þá hvað lengi?
Ekkert - retired
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

23 er ekkert óeðlilegt ef hún er ekki mjög stór. Sumir stofnar eru svo frjósamari en aðrir.
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Post by Bob »

Hún er nú alveg ágætlega stór. og var spiiiiikfeit. þannig ég bjóst við meira.

Læt hana vera þarna allavega til morguns eða annað kvöld og sjé ef ekkert er komið þá er hún búin :)
segjum það bara hehe
Ekkert - retired
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

mínar guppy kvk gutu u.þ.b 10-40 seiðum í einu, auðvitað voru einhver étin og svo einhver dauð eða vanþroska og dóu stuttu seinna. Þær voru ekki mjög stórar en samt sæmilegar. Þær stóru sem eignast alveg 100-150 stk, eru líka ---------------------------- svona stórar.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Post by Bob »

já ok. færi hana þá aftur í búrið á morgun eftir vinnu :) takk fyrir upplýsingarnar :)
Ekkert - retired
Post Reply