Jack Dempsey með seiði. Myndir.

Umræður um afrískar sikliður og amerískar í stærri kantinum

Moderators: Vargur, Hrappur, Ásta

Post Reply
Gremlin
Posts: 260
Joined: 04 Nov 2007, 20:03
Location: Grafarvogur 112. Reykjavík

Jack Dempsey með seiði. Myndir.

Post by Gremlin »

Jæja loksins heppnaðist hrygningin hjá parinu mínu og ég er yfir mig ánægður og ætla að skella inn nokkrum myndum til gamans. En hérna smá info um parið. Parið er búið að reyna fjórum sinnum áður en ekkert gengið eftir en núna viðist þetta hafa gengið og ég með Rúmlega hundrað frísyndandi seiði og ákafa foreldra sem verja þau með kjafti og klóm.
-------------------------------------------------------------------------------------
Image
Image
Image
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

Glæsilegt! verður spennandi að fylgjast með þessu.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Vá þvílíkur fjöldi :D
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Engar myndir af parinu?
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Alltaf magnað að fylgjast með seiðastússi.
Langar þig ekki að reyna að koma einhverju af þessu upp ?
bibbinn
Posts: 156
Joined: 19 Feb 2008, 21:30
Location: brh

Post by bibbinn »

gull falleg heh :) það voru svipað mörg hja mér en náði samt bara að halda um 15 á lífi og nuna eru 4 í buri hjá mér og eru orðnir um 12 cm :)
ég mæli með því að reyna að koma þeim upp og sjá hvernig þau verða :D
kv. Brynjar
audun
Posts: 228
Joined: 24 Apr 2008, 00:57

Post by audun »

þetta er eitthvað sem er spennandi, endilega pósta sem flestum myndum af uppvexti ef það heppnast
Gremlin
Posts: 260
Joined: 04 Nov 2007, 20:03
Location: Grafarvogur 112. Reykjavík

Post by Gremlin »

Jú auðvitað væri gaman að reyna koma flestu af þessu upp en vantar bara búr undir það og fjárhagurinn ekki sá besti og hátíð nálgast óðum og það kaupæði sem því fylgir. Ég kem með myndir af parinu strax og ég næ góðri mynd af þeim saman en núna er það ekki svo auðvelt. Ég ætla að leyfa þessu fyrsta fögnuði að vera í búrinu eitthvað til að byrja með og sjá svo hvort ég detti ekki inná ódýrann dal eða búr sem ég gæti alið þau upp í.
User avatar
haffi85007
Posts: 185
Joined: 31 Mar 2008, 21:09
Location: Njarðvík

hehe

Post by haffi85007 »

Endilega láta mig vita ef þig langar að losna við eitthvað af þeim :P
70 ltr og 21ltr
12x stk gúbbí (21ltr)
1xalbínóa koparryksuga (21ltr)
1x Gibbi (70ltr)
1xAnchistrur (4-5.cm) (21ltr)
User avatar
alexus
Posts: 84
Joined: 18 Dec 2007, 23:18
Location: Reykjavík,104

koma svo

Post by alexus »

já ef eitthvað fer á markaðinn endilega láta vita :D
"Mörkin milli geðveiki og snilldar verða bara mæld með árangri....."
110L
60L
54L
25L
Gremlin
Posts: 260
Joined: 04 Nov 2007, 20:03
Location: Grafarvogur 112. Reykjavík

Post by Gremlin »

Já ég læt sko vita. En núna virðist eitthvað hafa minnkað af seiðum í búrinu sem kemur mér ekki á óvart því seiðin voru sko farinn á stjá og voru greinilega búin að kanna búrið til hlítar og voru hreinlega allstaðar og eflaust fengið að kanna innihald maga nokkra búrfélaga sinna eins Óskars eldri og yngri og Midasar frænda og móðir og faðir út um allt búr bullandi sveitt við að bjarga afkvæmum sínum út daginn sem virtust aldrei ætla að hanga við hlið móður sinnar.
----------------------------------------------------
Ég ætla að reyna að vera búinn að redda mér 50-100L búri fyrir næstu hrygningu og koma einhverju seiðum undan og reyna að koma þeim upp. Ég veit að vísu um eitt 54L sem var áður í minni eigu en gaf vini mínum búrið undir Gullfisk sem hann drap með sínu kæruleisi með að aldrei að skipta um vatn og var vatnið Súkkulaði brúnt og illalyktandi og drap fiskinn á endanum. Hann vill ekki láta eða lána búrið þótt það sé bara uppi í hillu rykfallið og illa þrifið þannig að leitin heldur áfram af búri.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

hmm... hann er vonandi ekki enn með gullfiskinn í því :hehe:
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
alexus
Posts: 84
Joined: 18 Dec 2007, 23:18
Location: Reykjavík,104

lindared flippari

Post by alexus »

ojj linda það væri nasty :lol:
"Mörkin milli geðveiki og snilldar verða bara mæld með árangri....."
110L
60L
54L
25L
Post Reply