Bardagafiskavesen

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Gunnsa
Posts: 346
Joined: 09 Apr 2007, 22:41
Location: Kóp IS

Bardagafiskavesen

Post by Gunnsa »

Mér gengur skelfilega að finna einhverja fiska sem bardagafiskurinn gengur ekki í skrokk á, mér var sagt að hann gæti verið með platy þannig að ég prófaði það en hann er byrjaður að berja þá. Get ég sett platy fiskana með dvergsíkliðum og skölum í 160L búrið?

Svo væri frábært að fá reynslusögur af bardagafiskum og hvað gengur með þeim. Hann er í 55L ca. og er aleinn vegna samskiptaörðuleika
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Ég hef haft bardagafisk með Gúbbý, sverðdrögum, diskusum, skölum, litlum frontosum, litlum JD Neon og aldrei lent í veseni með hann

gæti bara verið eintakið sem þú ert með, fiskar hafa mismunandi hegðun alveg eins og við manfólkið :P

Edit: Bara ekki setja bardagafisk með gotfiskum sem þú ætlar þér að ná einhverju undan því þeir eru mjög lúmskir að ná seiðum
Kv. Jökull
Dyralif.is
Bruni
Posts: 199
Joined: 30 Dec 2006, 20:57
Location: Reykjavík

Betta

Post by Bruni »

Leyfðu honum að kynnast tígrisbörbum. Hann verður eflaust fyrirferðarminni eftir það.
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Post by Bob »

Veit ekki. ég er með bardagafisk í 54L búri sem er frekar crowded. fyrsta daginn var smá slagsmál en núna nokkrum dögum síðar eru einu slagsmálin í matartímanum hehe
Ekkert - retired
Post Reply