Búrið sprakk!
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
Búrið sprakk!
Jæja það ætlar ekki að ganga þrautalaust hér í Kópavoginum. Fyrst "svartidauði" í búrið og svo sprakk það áðan, botnlíming gaf sig.
Sem betur fer gerðist þetta ekki um nótt eða meðan við vorum í vinnu.
Sem betur fer lak "frekar hægt" úr því svo ég náði að bjarga vatni í fötur og setja fiskana og gróður þar. Filterdælan gengur í annari svo bakteríuflóran drepist ekki og loftdælan gengur í hinni.
Öll handklæði hússins eru blaut.
Ég þarf að redda nýju búri á morgun! Ætli það gangi að setja það upp og fiskana í samdægurs eða þarf ég að koma þeim í "fóstur"?

Sjálfsagt má fá góð búr í flestum verslunum.
Í Fiskabur.is var að koma búrasending í dag, þar er meðal annars búr sem hentar þér sennilega ágætlega. Juwel Rio 125
http://www.juwel-aquarium.de/en/rio.htm?cat=4
Eða Juwel Rekord 110
http://www.juwel-aquarium.de/en/rekord.htm?cat=16

Búrið var nú ekki nema 60L. Sá það þegar ég var búinn að tæma það að það var sprunga eftir botnglerinu endilöngu en ekki líming sem fór.
Skýringin er hugsanlega að búrið stóð á kommóðu. Hana er jú verið að opna og loka reglulega. Við það eru smá högg sem leiða upp í búrið. Ef smá veila hefur verið í glerinu hefur það kannski dugað til. Margt smátt gerir eitt stórt. Búrið sprakk samt ekki þegar verið var að loka skúffu.
Nýtt búr getur heldur ekki farið á neinn annan stað.

Juwel Rio 125L frá Fiskabúr.is varð fyrir valinu. Búrið fór upp í dag og fiskarnir eru komnir í það, frelsinu fengir. Reyndar þoldi einn Daníóinn ekki vistina í fötunni og stökk uppúr og inn í eilífðina meðan ég gæddi mér á marsipantertu í afmæli.
Plönturnar urðu ansi undarlegar af fötuvist, hringaðar og skrítnar. Þær eru líka komnar í, vonandi jafna þær sig þegar þær hafa ljósið til að teygja sig í á morgun.
Eplasnigillinn og ryksugan æða um í leit að fæðu, en enga að fá enda mölin úr gamla búrinu skoluð ásamt 2 pokum af nýrri möl (sem ekki veitti af). Glerið líka tandurhreint. Ég verð að reyna að gefa þeim eitthvað líklega á morgun.
Þegar loftskýið fer úr vatninu verður myndavélin dregin upp.
Sýrustigið og KH gildið komu mér á óvart. Sýrustigið á nýju vatninu mældist pH 6.4 (kannski lægra?) og KH gildið undir 3 gráðum skv. strimli.
Þetta er bara kalt vatn úr krananum í Kópavoginum. EKkert heitt vatn, bara blandað úr mörgum hraðsuðukötlum og pottum til að ná réttu hitastigi sem fyrst. Fróðlegt að sjá hvernig það þróast.

Til hamingju með nýja búrið
Já það var lagið. Til hamingju með nýja búrið þitt. Juwel stendur sig vel í þessu og er ég mest hrifnastur af dælubúnaðinum þeirra, að vísu tekur hún sinn toll í búrinu en maður sleppur öllu vatna sulli með tunnudælur og samskonar dælur. Sjálfur er ég með RIO 400L og eitt Rekord 70L. Ég vona bara að þú hugsir vel um nýja gripinn og passir hurðar og skúffur í framtíðinni.
Sjálfur ætla ég að reyna að eignast fleiri búr í RIO seriunni og jafnvel að ég fengi mér 2 stykki RIO 125 eins og þú varst að fá þér. Hugmyndinn er nefnilega að reyna að koma upp smá fiskarækt í nákominni framtíð.
VIVA LA Juwel eigendur!

Heilaþveginn af fiskum - Blessaður af vatni
Ég er ekki lengur með pH mælinn góða og er ekkert að stunda mælingar vanalega. Þú ert samt velkominn með vatnið við tækifæri og ég skal m´la það með strokutesti en ég hef litla trú á að Íslenskt kranavatn geti mælst svona lágt og sérstaklega að pH hækki eftir að það fer í búrið, nema þú hafir soðið vatnið.
Hvað er annars með nýja búrið, myndir ?
Hvað er annars með nýja búrið, myndir ?
Jæja, hér er nýja Juwel Rio 125L búrið eins og það er í dag.
Vatnið er en pínu skýjað af lofti en það minnkar óðum.
Í því eru
3 gullbarbar
1 zebra daníói
1 leopard daníói
1 pleggi
1 eplasnigill
Gróður:
Hygrophilia Polysperma
Limnophila sessiliflora
Echinodorus subalatus
Plastus ljótus
Hygrophila Polysperma plantan er frekar ræfilsleg. Hún ætti að vera fljót að jafna sig og dafna. Fróðlegt verður að sjá hvort Echinodorus plantan nær sér á strik.
Þegar búrið nær betra jafnvægi verður að fjölga fiskum. Hvað það verður veit nú enginn.
Búrið sem sprakk leit svona út:
[/img][/url]

Bara af því að ég hef verið að garfa í að hressa gróðurinn að undanförnu ákvað ég að taka mynd til að skjala stöðuna í dag.
Hygrophila polysperma (sem á að vera auðveldasta planta í heimi) er ekki að þrífast hjá mér. Ég lagðist í rannsóknir og hef komist að því að
a) Ljós mætti auka (þó H. polysperma eigi að þurfa lítið ljós). Sá þetta á því að Limnophilia sessiliflora var orðin mjög gisin. Það að þrífa peruspegla hjálpaði hér
b) Þótt ég hafi verið að gefa næringu (járn og snefilefni) var járn of lítið trúlega. Þetta sá ég með því að mæla járnið. Skammturinn sem ég var að gefa dugði til að viðhalda réttu járni en ekki til að koma því upp í gott magn. Gaf góðan skammt.
c) Nú þegar járn og ljós hafa batnað þá virðist nitur og fosfat varla mælast í búrinu, gróðurinn hakkar það í sig. Hef því gefið smá næringu með því.
Sjáum hvað gerist. Svona er staðan í dag.
http://picasaweb.google.com/hrafnkelle/ ... 9972165522

Jæja smá update á búrið.
Kribbapar hefur bæst í búrið og ég er farinn að nota Estimative Index aðferðina til að gefa næringu á gróðurinn.
M.v. síðustu mynd (rúmur mánuður síðan) er gróðurinn töluvert meiri. En ég er búinn að klippa hann niður amk 3svar síðan þá! Það væri ekki pláss fyrir fiskana ef ekki hefði verið klippt.

Þetta er Limnophila Sessiliflora.
Já ljósmagnið gæti verið meira, það er alveg rétt. 2x20W T8, en það er það sem Juwell ljósastæðið býður upp á fyrir þetta búr.
Ég kýs að líta þannig á það að mér takist þetta með þessu ljósmagni
Juwel er komið með T5 lok sem gæti verið gaman að skipta í. Ókosturinn við þau er að það er óhefðbundin perustærð í þeim þannig það er bara hægt að nota Juwel perur. Annar möguleiki væri að kaupa auka straumfestu (e. ballest) fyrir T5 perur og festa auka spegla í Juwel lokin. Veit ekki hvort það er pláss fyrir það.

Ásta wrote:Hvaða fiska ertu með í búrinu?
6 gullbarba,
7-8 zebradaníóa,
7 svartneontetrur,
1 brúsknefur,
1 SAE,
1 Flying fox,
kribbapar.
Svona ódýrt bland í poka