Aðstoð með innihald búrinsins míns

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Petur92
Posts: 193
Joined: 15 Dec 2008, 18:12
Location: Reykjavík

Aðstoð með innihald búrinsins míns

Post by Petur92 »

Gott fólk ég var að spá vegna þess að ég er að fá 200-300 lítra búr hvað ég ætti að hafa í því. Ég er byrjaður með því að fá mér einn pangasíus long tail shark. sem er sirka 11 cm. mér langar mjög mikið til í að búa til monster tank. En ég þarf að hafa þetta ódýrt og ég er ekkert á móti því að þurfa að fá litla fiska til að ala upp. endilega segið hvað ykkur finnst.
-------------------------------------------------------------------------------------
KV. Pétur
Pétur
8455242
---------------------------------
mikill áhugamaður hér á ferð
User avatar
mixer
Posts: 700
Joined: 02 Feb 2008, 14:44
Location: Hvolsvöllur City/ Grafarholt

Post by mixer »

til að byrja með þá ættirðu að fá þér stærra búr en 200-300 ef þú ætlar að hafa þetta monster búr því það er góð ástæða afhverju þetta eru kölluð monster búr :wink:
er að fikta mig áfram;)
User avatar
Petur92
Posts: 193
Joined: 15 Dec 2008, 18:12
Location: Reykjavík

Post by Petur92 »

já ok skil þig. en hvað þarf ég stórt búr sirka ?
------------------------
KV. Pétur
Pétur
8455242
---------------------------------
mikill áhugamaður hér á ferð
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Það er mælt með því að Hafa 3+ metra langt búr, allt undir því mun ekki virka til frambúðar, þannig að svona 3000 - 7000 lítrabúr er að gera góða hluti, svo eru þetta hóp fiskar þannig að 5 eða fleiri er mjög gott

Mæli frekar með minni fisk :P

Hérna eru smá upplýsingar um þessa tegund
http://en.wikipedia.org/wiki/Iridescent_shark
Kv. Jökull
Dyralif.is
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Í rauninni á ekki að flytja þessa fiska inn því það er ekki til búr á landinu undir þessar skepnur.
Ég bjargaði einum 25cm úr 200 lítra búri og er með hann í 1000 lítra 2 m löngu búri og þáð má varla vera minna.

Ég mundi frekar mæla með að þú skoðir fiska sem hæfa búrinu.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Já er alveg sammála þér að það ætti ekki að flytja þessa fiska inn, verða allt of stórir fyrir venjuleg búr og kaupendur oft illa upplystir um hversu stórir fiskarnir virkilega verða
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Petur92
Posts: 193
Joined: 15 Dec 2008, 18:12
Location: Reykjavík

Post by Petur92 »

jáá okei ég skil. En strákarnir í fiskó sögðust geta tekið hann aftur þegar hann verður stærri og borgað fyrir hann. pabbi félaga míns vinnur þarna. mér finnst fiskó vera með gott úrval á svona rán fiskum. En mæliði með eitthverjum fiskum sem ég get haft í 300L búri?
----------------------------------------
KV. Pétur
Pétur
8455242
---------------------------------
mikill áhugamaður hér á ferð
User avatar
Petur92
Posts: 193
Joined: 15 Dec 2008, 18:12
Location: Reykjavík

Post by Petur92 »

Ég las á netinu að pangasiusinn minn getur orðið 90 cm í búri. En 160 cm í nátturunni. það er sjúkt en allavegna alltof stórt. Planið mitt var að láta hann vaxa svolítið og hafa gaman af því áður en ég myndi selja hann.
----------------------------------
Pétur
Pétur
8455242
---------------------------------
mikill áhugamaður hér á ferð
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Já það eru ófáir með þennan hugsunarhátt en hann virkar oftast ekki þar sem að fáir hafa aðstöðu til þess að hýsa svona stóra fiskar sem þíðir að hann selst ekki, og þarafleiðandi situr fólk uppi með fisk sem er í allt of litlu búri eða þarf að gefa hann frá sér

Mæli með Óskar, Walking cat fish, discus og margt fleira
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

þessi tegund getur orðið enn stærri en það er svosem ekki algengt.

hvað ertu með stórt búr núna??
ef það er mjög lítið myndi ég bara skila fiskinum sem fyrst og velja þér eitthvað sem vex hægar.
Ef þú ert búinn að ákveða að fá þér 300L mjög fljótlega er svosem ekkert leiðinlegt að halda honum í nokkra mánuði og skila honum svo aftur í búðina fyrst þeir voru búnir að bjóðast tl að taka við honum. (þó þeir hafi reyndar ekki nein sérstaklega stór búr undir hann sjálfir og gæti því farið illa um hann...)

Squinchy gaf reyndar link á aðra tegund en þú ert með, en tegundin sem hann linkaði á verður að öllu jafna miklu minni og myndi ég frekar mæla með henni ef þú vilt fá hafa svona fisk.
Báðir eru í Pangasius fjölskyldunni frekar líkir.
Þinn heitir Pangasius Sanitwongsei en minni gerðin heitir Pangasius Hypophthalmus.
Þeir eru t.d. til í Dýragarðinum núna, venjulegir og líka þrælflottir albino.

Hypophthalmus líta svona út:
Image

albino:
Image
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Petur92
Posts: 193
Joined: 15 Dec 2008, 18:12
Location: Reykjavík

Post by Petur92 »

ok takk fyrir það en getur eitthver sent myndir af walking cat fish ? hef alltaf langað í cat fish. eins og t.d hafiði séð nesa sem var í fiskó mér langaði ofsalega í hann.
------------------------------------
KV. Pétur
Pétur
8455242
---------------------------------
mikill áhugamaður hér á ferð
User avatar
Petur92
Posts: 193
Joined: 15 Dec 2008, 18:12
Location: Reykjavík

Post by Petur92 »

já og hvað getur Hypophthalmus orðið stór í búri ?. Ég var að spá í að skipta pangasiusinum mínum uppí óskar par en veit ekki alveg
-----------------------------------
KV. Pétur
Pétur
8455242
---------------------------------
mikill áhugamaður hér á ferð
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

ertu kominn með stærra búr? hef ekki enn séð hvað þú ert með stórt búr núna.

Hypophthalmus verða yfirleitt 30-40cm í búrum en hafa möguleika á að verða amk helmingi stærri en það ef búrið er mjög stórt (1000L++)
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Petur92
Posts: 193
Joined: 15 Dec 2008, 18:12
Location: Reykjavík

Post by Petur92 »

ég fæ 300 lítra búr Ég var að spá í að kaupa mér tunnudælu í það ef eitthver á svoleiðis ódýrt þá er ég til í að kaupa.
---------------------------------------------
KV. Pétur
Pétur
8455242
---------------------------------
mikill áhugamaður hér á ferð
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Hérna er mynd af mínum skörum þegar þeir voru smá pollar (Í kringum 15cm) og WC þarna líka
Image
Og hérna er mjög hreyfð mynd af Wc
Image

Wc getur verið mjög skemmtilegur en hann ætti ekki að hafa með fiskum sem eru minni en hann, því hann getur verið mjög ágengur á aðra fiska þegar matmáls tíma nálgast

En annars mjög skemmtilegur fiskur sem hægt er að handmata

Mæli eindregið með tunnudælu ef þú ætlar að fá þér svona stórt búr, annað er bara kjánaskapur ;)
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Petur92
Posts: 193
Joined: 15 Dec 2008, 18:12
Location: Reykjavík

Post by Petur92 »

takk jökli þetta eru mjög fallegir fiskar hjá þér :) sérstaklega skaranir. En það er mjög skiljanlegt að WC væri ágengur :wink: sérstaklega í matartímum. En mér lýst betur á skarana heldur en WC mitt persónulega álit. hvað eru þessi stykki að kosta? og hvar fáast þeir.
-----------------
KV. Pétur
Pétur
8455242
---------------------------------
mikill áhugamaður hér á ferð
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Þeir hljóta að fást í gæludýraverslun, ekki satt? :)
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Já óskarinn er langt um skemmtilegri en WC enda er ég löngu búinn að gefa mína wc frá mér

En ég tók eftir nokkrum óskörum í dýragarðinum svo hafa þeir oft verið til í fisko
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Petur92
Posts: 193
Joined: 15 Dec 2008, 18:12
Location: Reykjavík

Post by Petur92 »

já ég sá óskara í gær í fiskó og þeir voru nokkuð flottir en ég fíla ekki svona albino en það var einn venjulegur til samt. takk fyrir upplýsingarnar allir
----------------------
KV. Pétur
Pétur
8455242
---------------------------------
mikill áhugamaður hér á ferð
Post Reply